blaðið - 25.11.2006, Side 20
20 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006
bla6i6
Útgáfufélag:
Stjórnarformaður:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúar:
Ár og dagurehf.
SigurðurG.Guðjónsson
Sigurjón M. Egilsson
Brynjólfur Þór Guðmundsson og
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Elín Albertsdóttir
Janus Sigurjónsson
Hálfur milljarður
milli vina
Hvað með fimm hundruð milljónirnar? Ætlar sveitarfélagið Ölfus að skila
þeim til Orkuveitu Reykjavíkur? Milljónirnar fengust með sérstökum samn-
ingi þeirra á milli. Svo boraði Orkuveitan til að mæta stækkun álversins í
Straumsvík.
„Hreppurinn hefur selt Orkuveitu Reykjavíkur sálu sína fyrir þessa fram-
kvæmd," sagði Björn Pálsson í viðtali við Blaðið þann 20. október. Björn er
héraðsskjalavörður og hefur verið leiðsögumaður um Hengilssvæðið síðasta
áratug. Túlka megi samninginn sem mútugreiðslur. „Búið er að leggja vegi
upp á fjallið og gröfurnar byrjaðar. Vinnubrögðin í málinu kalla ég að skjóta
fyrst og spyrja svo.“ Framkvæmdirnar hafa nú verið kærðar og stöðvaðar.
Sveitarfélagið Ölfus veitti Orkuveitunni bráðabirgðaleyfi að sögn bæjar-
stjórans. Hvernig er hægt að veita bráðabirgðaleyfi fyrir borunum? Hvað
verður um borholurnar, vegina og jarðraskið sem leyft var til bráðabirgða
verði leyfið afturkallað?
Ekstrablaðið danska yrði ánægt ef það fyndi önnur eins vinnubrögð innan
íslensku fyrirtækjanna sem fjárfest hafa í Danmörku. Blaðamennirnir um-
deildu leituðu að svona fúski. Hafa bara ekkert fundið. Nei, til að finna slíkt
þurfum við að líta okkur aðeins nær, ofan í buddu sveitarfélagsins Ölfuss,
sem hefur bólgnað, og á reikningsyfirlit Orkuveitunnar, sem átti hálfan millj-
arð. Fyrirtækið er í eigu borgarinnar, þar sem kjörnir fulltrúar ríflega þriðj-
ungs þjóðarinnar sitja. Ekki heyrist múkk frá þeim þó að svo virðist sem
ákveðið hafi verið að kaupa sér leyfi fyrir fimm hundruð milljónir framhjá
ríkisvaldinu; sérfræðingum á Skipulagsstofnun.
Þann 6. nóvember birtist skýrsla Transparency International þar sem ís-
land trónaði ásamt Finnlandi á toppi þeirra landa þar sem spilling er minnst.
Löndin fengu 9,6 af 10 í einkunn. Spyrja má: Telst það ekki til spillingar að
gera samkomulag við sveitarfélag um leyfi, sem það hefur ekki leyfi til að
veita, og greiða þvi á sama tíma fimm hundruð milljónir? Ætli svona sam-
komulag hefði haft áhrif til lækkunar á einkunninni?
Framkvæmdirnar voru stöðvaðar, eins og greint var frá í Blaðinu á
þriðjudag.
„Það var samdóma álit okkar og Orkuveitunnar að stöðva framkvæmdir,“
sagði bæjarstjórinn. „Við viljum hvorki vera í stríði við Skipulagsstofnun né
neinn annan. Við erum friðsemdarmenn,“ bætti hann við. Forstjóri Orku-
veitunnar tók undir og sagði: „Við bíðum eftir að leyfisveitendur klári sín
mál.“ Kokhraustur bætti hann við. „I augnablikinu erum við ekkert að æsa
okkur yfir þessari töf og vonumst til að halda áætlun." Ætli hann sé svona
viss um að klúðrinu verði kippt í liðinn af mönnunum sem sitja í stjórnum
fyrirtækisins- og sveitarfélaganna beggja- og hlutaðeigandi ráðherrum?
Sómaeinkunn landsins verði í námunda við tíu.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Rítstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
PENZIM
ÍSLENSK NÁTTÚRUVARA UNNIN
ÚR SJÁVARRÍKINU UMHVERFIS
ÍSLAND
Dr. Jón Bragi Bjamason, prófessor í lífefoafræði, hefiir
unnið að rannsóknum og þróun Pensímtækninnar um
áratuga skeið og er hún nú einkaleyfisvarin um allan heim.
Penzim fyrir húðina, liðina og vöðvana
WPYJI HiMGfrP LsnGKa!
Vi-p 1 'BRuaA KpMr/i^ mi>
COMCLUSiVf -Ef NKVTRjCrr Á
LtlLU TrL f\T yETA bÆQ
ocr Cró-e.
Lágtekjuskattar
Það fer lítið fyrir pólitíkinni þessa
dagana því ég er í stuttu fæðingaror-
lofi. Ellert Schram situ inni fyrir mig,
einsog það heitir í þinginu. Þó kom-
umst við María auðvitað ekki hjá
því að heyra eina og eina frétt. Eins
og venjulega á þessu skeiði kjörtíma-
bils einkennast þær flestar af ábyrgð-
arlausum fjáraustri á báðar hendur
í miðri óðaverðbólgu og hávöxtum,
þegar einmitt aðhalds er þörf.
Ríkisstjórnin megnaði ekki að
fresta framkvæmdum hjá sér nema
í nokkrar vikur. Frægust þeirra frest-
ana var Tónlistar- og ráðstefnuhúsið
sem allir vegfarendur sáu að aldrei
varð hlé á. Og milli umræðna um fjár-
lög eyða stjórnarþingmenn öllum
afganginum sem lagt var upp með.
Enda ómögulegt að hemja útgjalda-
gleðina á kosningaári. Það virðist
nefnilega vænlegra til endurkjörs að
ausa fé í gæluverkefni, en halda verð-
bólgu og vöxtum niðri. Það ætti að
vera kjósendum umhugsunarefni.
Skattagleði
Óhjákvæmilegur fylgifiskur út-
gjaldagleðinnar er skattagleðin.
Enda hefur ríkisstjórnin slegið öll
fyrri met í skattheimtu og jafnvel
náð árangri á alþjóðavettvangi í
örustu aukningu skattbyrði. Hún
hefur að vísu lagt af ýmsa skatta
á eignir og háartekjur og búið til
margskonar skattaskjól fyrir þá sem
mest hafa. Fyrir vikið hefur hún
auðvitað þurft að ganga enn harðar
fram í skattheimtu gagnvart meðal-
og lágtekjufólki.
Gott dæmi um þá ofurskatta sem
venjulegt fólk býr við var í fréttum
útvarpsins I vikunni þar sem nær
allur viðbótarlífeyrissparnaður
lífeyrisþega tapaðist í sköttum og
tekjutenginum. Skilaboðin eru skýr,
ekki spara. Þegar við Islendingar
þyrftum þvert á móti hvað helst
á því að halda að almenn skilyrði
venjulegs fólks væru hvetjandi til
sparnaðar.
Helgi Hjörvar
Og það var lýsandi fyrir þessa
skattagleði að ekki einu sinni á kosn-
ingaári gátu stjórnarflokkarnir fall-
ist á að létta ofursköttum af lífeyris-
þegum sem afla sér smávegis tekna.
Tillaga um að fólk geti unnið sér
inn 75 þúsund á mánuði var felld og
eftir sem áður eiga þeir með meðal-
og lægstu tekjurnar að greiða mun
stærri hlut tekna sinna í skatta og
skerðingar en hinir sem mest hafa.
Því einhverjir verða jú að greiða
fyrir þá óráðsíu og útgjaldadagleði
sem einkennir rlkisstjórn sem setið
hefur allt of lengi.
Við höfum verið að flytjast frá
norræna velferðarkerfinu til tekju-
dreifingar eins og er i Bretlandi og
jafnvel Bandaríkjunum. Hér hefur
ríkisstjórnin sannarlega lagt sitt af
mörkum því trúlega þekkist það
hvergi að þeir sem lægstar hafa tekj-
urnar borgi hæsta skatthlutfallið, en
hinir sem mest hafa lægsta hlufallið.
Það segir sína sögu um skattkerfi
okkar í dag að trúlega væri flatur
skattur sem næði til allra réttlátari
en núverandi skipan með öllum
sínum undanþágum og og jaðar-
sköttum. Það segir meira en mörg
orð um hve langt við erum komin
frá þeim jafnaðaráherslum sem ein-
kenna norræna velferðarríkið.
Áhrif peningaaflanna
En um leið og ástæða er til að
hafa áhyggjur af þessari þróun er
vert að fagna því að með lögum um
fjárreiður stjórnmálaflokkanna eigi
nú að draga úr áhrifum peningaafl-
anna á stjórnmálin. Auðvitað má
deila um hvort rétt sé að setja þak á
framlög til flokka meðan upplýsinga-
skylda er um þau, en það er minni-
háttar aðfinnsluefni miðað við hags-
munina af því að gera fjármál flokka
gagnsæ. Þetta hefur verið eitt helsta
baráttumál Samfylkingarinnar frá
stofnun, enda mikilvægur þáttur í
að draga úr áhrifum sérhagsmuna
á pólitíkina. Peningar hafa skipt æ
meira máli í stjórnmálabaráttunni
undanfarið og í raun síðustu forvöð
að koma böndum á þróunina. Fyrir
það eiga formenn flokkanna þakkir
skildar.
Höfundur er þingmaður
Samfylkingarinnar í Reykjavik.
PENZIM erhrein,
tær og litarlaus
náttúruvara byggðá
vatni en ekkifitu.
PENZIM inniheldur
engin ilmefni,
litarefní eða gerviefni
sem geta valdiö
ofhæmisviðbrögðum.
PENZIM inniheldur
engar fitur, ofiur eða
kremblöndursem
geta smitað og eyðiiagt
fllkureðarúmföt
PENZlM j
PENZIM PENZIM
GtL WrfH ALl NAH KAl sina ícnu MAJWWíNZTiAfES Aavantta Skin 6c tkxly c**c LOTlpN WITJf MJ NAtl JLU. M.-WK ÁCTtyt MAJMNC PJGnAIW Aijvitmrtf Slrtnte Rndy l"«r 11«n iui» Moi<4u>t»ng tc
j nul4> wJ i - — pENZlM
j llltAf TltY ** «18 MÁIN i AI.NJNíá lirAI.THV ? ANI» M1 i$GITS ' á IOTKJN y
Penzim fæst í apótekum og heilsubúðum um land allt.
penzim.is
Klippt & skorid
Hinn góðkunni skopmyndateiknari
Blaðsins, Halldór Baldursson,
hefur nú gefið út
teikningar sínar á bók, sem
ber nafnið 2006 í grófum
dráttum og þar er sjálfsagt
aðfinna betri samtímaspegil
yfir árið, sem senn er liðið,
en í nokkrum fréttaannál
sem má búast við á næstunni. Heyrst hefur
að sumum viðfangsefnum hans lítist ekkert á
að skopmyndir af sér öðlist framhaldslíf með
þessum hætti og á það ekki síst við um við-
skiptavesíra landsins. Flestir stjórnmálamenn
virðast hins vegar minna hörundsárir, enda
sagði einn þingmaður við klippara að pólit-
íkusar væru ekki búnir að „meika'ða" fyrr en
birst hefði af þeim skopmynd í blöðunum.
Eins og fram hefur komið í fréttum er mik-
ill kurr í sjálfstæðismönnum víða um
land vegna fyrirhugaðs framboðs Árna
Johnsen á vegum flokksins og hafa úrsagnar-
beiðnir úr flokknum hrannast inn
I Valhöll. Þykir til marks um al-
vöru málsins, að Geir H. Haarde,
formaður, hafi óskað eftir að fá
þær allar á sitt borð. Sumir velta
fyrir sér hvort unnt sé að koma í veg fyrir að listi
Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi verði boð-
inn fram meðÁrna á honum og einhverformleg
úrræði munu vera til þess, en slíkt er talið afar
ólíklegt. Hins vegar munu ýmsir sjálfstæðis-
menn I kjördæminu farnir að ræða sérstaka her-
ferð (kosningabaráttunni fyrir því að kjósendur
flokksins striki Árna út. Til að það hafi áhrif þarf
a.m.k helmingur kjósenda að strika hann út.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Norðaust-
urkjördæmi ferfram nú ídag og þar tak-
ast menn nokkuð á eftir kjördæmum.
Um efsta sætið bítast þau Krist-
ján ÞórJúlíusson - Stjáni blái,
bæjarstjóri Akureyrar, og Arn- *’■
björgSveinsdóttir, þingflokks- JM
formaður að austan. Hins vegar il
er mál manna að spútnik prófkjörsins kunni
að reynast Ólöf Nordal, framkvæmdastjóri
Orkusölunnar á Egilsstöðum, sem telst vera
austanmegin hryggjar en á sínar tengingar
norður. Svo þótti hún svo Ijómandi hressileg
í Silfri Egils um liðna helgi og veitir víst ekki
af ungum og ferskum konum á þing fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
andres.magnusson@bladid.net