blaðið - 25.11.2006, Síða 30

blaðið - 25.11.2006, Síða 30
30 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 blaðið Þreytt á að vera hlutlaus Eg held að pólitískur áhugi hafi alltaf fylgt mér. Hvað er að hafa áhuga á pólitík? Það er að hafa áhuga á samfé- laginu og því hvernig lífi við lifum og hvernig við hugsum um okkur sjálf og aðra í kringum okkur. Ég lít til dæmis á það sem ákveðna pólitík að kenna ungum stúlkum skák og hjálpa örlítið til við að um- bylta karlaveldinu í skákheiminum," segir Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksambands íslands, sem býður sig fram í prófkjöri Vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu. Auk þess að vera forseti Skáksambands- ins hefur hún starfað sem alþjóða- ritari á alþjóðasviði Alþingis og sem framkvæmdastjóri þingmanna- nefndar um norðurskautsmál. „f tíu ár bjó ég erlendis, í Bandaríkj- unum, Þýskalandi og Bretlandi og tók þátt í alls kyns grasrótarstarfi. Ég var meðlimur í sjálfboðaliða- hreyfingum og vann mikið með heimilislausum, börnum úr fátækra- hverfum og innflytjendum. f Banda- ríkjunum lærði ég sagnfræði og stjórnmálafræði í Harvard og síðar fór ég í framhaldsnám í heimspeki í Cambridge í Bretlandi. Ég held að vera mín úti þar sem ég hafði sjálf aðgang að öllu því besta en var um leið að vinna við að hjálpa fólki sem hafði orðið undir í lífsbaráttunni hafi gert mig róttæka. Sú róttækni hefur fylgt mér síðan,“ segir hún. ,Eftir námið í Bandaríkjunum bjó ég í Berlín í eitt ár og vann meðal annars í innflytjendamiðstöð fyrir kúrdískar og tyrkneskar konur sem höfðu margar búið í Berlín í mörg ár en töluðu varla stakt orð í tungu- málinu og voru nánast innilokaðar heima hjá sér. Svona starf er hápólitískt að því leyti að maður er að reyna að breyta samfélaginu til hins betra. Það sem fékk mjög á mig á þessum árum var að sjá grófa misskiptingu i návígi. Annars vegar fólk sem hafði miklu meira en allt til alls og svo lítil börn sem voru vannærð. Ekki bara van- nærð vegna skorts á mat og húsnæði heldur skorti þau einnig umhyggju og kærleika og þörfnuðust þess að einhver tryði á þau. Ég var erlendis í tíu ár en það sem ýtti mér hingað heim árið 2000 var sá möguleiki að senda íslenskt kvennalandslið í skák á Ólympíumót. Það hafði ekki verið gert í sextán ár og var búið að vera baráttumál okkar skák- kvenna lengi. Það verkefni tókst.“ Kom grátandi heim Víkjum að skákinni. Vaknaði skák- áhuginn strax þegarþú varst krakki? „Ég ólst upp á heimili þar sem það þótti jafn eðlilegt að tefla eins og að fá sér morgunmat og hlusta á fréttir. Amma Lilja var snjöll skák- kona og tefldi við okkur krakkana. Það sama gerði pabbi og móðurafi minn. Frá því ég var fimm ára var taflmennska hluti af lífinu. Mér fannst skrýtið að uppgötva að það voru ekki allir sem tefldu. Kannski vegna þess að ég kynnt- ist skák í gegnum ömmu mína þá hef ég alltaf litið á skák sem ákveðið tjáningar- og samskiptaform. „Maður verður alltafað finna einhvern leik jaftwel þótt staðan virðist vonlaus. Þatinig endurspeglar skákin sjálft lífið. Það er dýrmæt lexía í lífinu að ntaður eigi alltaf einhvern leik." Glœsilegt úrval af undirfatnaði.

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.