blaðið - 25.11.2006, Síða 36
4 0 LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006
blaðið
Kaup Eggerts Magnússonar
ogfélaga á enska úrvalsdeild-
arliðinu West Ham í vikunni
\ hafa vakið verðskuldaða
athygli enda um heldur óvettju-
lega fjárfestingu að ræða. í
kjölfarið hafa margir veltfyrir
sér livort hér sé komittn fram
nýr kostur fyrir tslenska fjár-
festa í útrásarhug. Hver veit
nema erletidum liðum í eigu
Islendinga eigi eftir að fjölga
á næstu tnisserum og loksins
verði hægt að tala um raun-
veruleg Islendittgalið. Blaðið
Ispurði nokkra valinkunna
fótboltaáhugamenn uttt hvaða
fótboltalið þeir myttdu vilja
kaupa ef þeir hefðu tök á því.
Vill frekar kaupa handboltalið
Ég myndi vilja kaupa Liverpool ef ég væri svo rík að
geta keypt heilt fótboltalið. Ég hef haldið með liðinu síð-
an ég var fimm ára gömul og því með sterkar taugar til
liðsins.
Það er orðið ansi langt síðan þeir hafa náð í almennileg-
an titil í Englandi þó að þeir hafi unnið Meistaradeildina
og kominn tími til að þeir fari að vinna fleiri titla.
Það hefur verið leiðinlegt að horfa upp á liðið sitt spila
eins illa og þeir hafa gert á þessu tímabili. Ef ég eignað-
ist liðið myndi ég fá fagmenn með mér í lið og reyna að
snúa liðinu til sigurs. Þrátt fyrir að liðinu hafi gengið illa
þá tel ég að kaupin séu mjög gróðavænleg enda hefur lið-
ið verið topplið í Englandi i mörg ár og alltaf selt mikið
af varningi og miðum á leiki. Annars myndi ég nú helst
vilja kaupa handboltalið ef ég fengi að velja. Þá yrði ann-
að hvort fyrir valinu Viborg eða mitt gamla lið Ribe í Dan-
mörku og ég myndi þá beita mér fyrir því að koma liðinu
aftur upp í dönsku úrvalsdeildina.
Ágústa Edda Björnsdóttir, landsliöskona í handbolta
wmtmuam
Lið sem stjórnar
skapsveiflum
Þetta liggur nú nokkuð ljóst fyrir. Manchester United,
uppáhaldsklúbburinn minn og liðið sem stjórnar skapsveifl-
um mínum, hlýtur að vera liðið sem ég myndi vilja kaupa.
í fyrsta lagi er þetta stórkostlegt lið og góð fjárfesting. Eft-
ir að bandaríska innrásin hófst eru ekki allir United-menn
jafnsammála um komu þeirra til félagsins þannig að ég held
að ég myndi geta orðið nýr Eggert Magnússon yngri kynslóð-
arinnar. Ég hugsa að þeir yrðu sáttari við íslenska innrás en
bandaríska.
Mér finnst æðislegt að íslendingar séu að kaupa erlend lið
og fagna þessari íslensku útrás svo lengi sem við ráðum við
hana. Þetta má ekki vera eins og með heimilisbókhaldið þar
sem maður tekur alltaf yfirdrátt og fær allt í hausinn seinna.
Annars er ég alveg sáttur við þessar fjárfestingar, sérstak-
lega í enska boltanum.
Það má nefna að rekinn er Manchester United-klúbbur
á íslandi og hann á 50 ársmiða á Old Trafford. Á hverjum
einasta heimaleik Manchester United í vetur eru að minnsta
kosti 50 íslendingar.
Ljundberg heillar
Ég myndi kaupa fótboltafélagið Arsenal og þá einna helst
vegna þess að Ljundberg er svo sætur. Hann er ekki bara
góður fótboltamaður heldur er hann líka alger sjarmör. Ég
er reyndar í föstu sambandi þannig að ég myndi bara nota
stöðu mína sem eigandi liðsins til að geta dást að Ljundberg
úr heiðursstúkunni. Síðan myndi ég vilja kynna hann fyrir
vinkonu minni sem er á lausu en hún er einnig heilluð af feg-
urð fótboltamannsins frækna.
Arsenal er líka gott lið, í þriðja sæti í deildinni og því um
ágætis fjárfestingu að ræða að ég held. Annars fylgist ég
ekki mikið með ensku knattspyrnunni og held ekkert sér-
staklega með Arsenal, það er aðallega Ljundberg sem væri
ástæða fyrir kaupunum.
Ræturnar fyrir noröan
Ætli ég myndi ekki bara vilja kaupa Ung-
mennafélag Svarfdæla á Dalvík. Ástæðurnar
fyrir þessu vali eru nú mjög einfaldar en ég er
sjálfur Dalvíkingur og myndi vilja hlúa eilítið
að þeim rótum og reyna að koma Dalvík á kort-
ið í fótboltanum. Ég held að liðið gæti alveg náð
frægð og frama á erlendri grundu ef rétt væri á
spilum haldið. Maður þyrfti auðvitað að finna
færan þjálfara til að stýra þeim til sigurs. Ef Ung-
mennafélag Svarfdælinga væri ekki falt fyrir fé
þá hugsa ég að ég myndi vilja kaupa Liverpool
og koma því aftur í fremstu röð í ensku deild-
inni. Ég myndi byrja á því að skipta þjálfaran-
um út fyrir einhvern hæfileikaríkari. Ég veit
ekki hvort ég sjálfur væri kandídat í starfið en
mögulega myndi ég ganga í verkið og ráða mér
bara góðan aðstoðarþjálfara til að hjálpa mér
með þetta mikla verkefni. Líklega myndi ég
byrja á því að ráða Frank Rijkaard sem nú held-
ur um stjórnartaumana hjá Barcelona. Hann Björn Ingi Hilmarsson leikari
gæti ábyggilega gert góða hluti með okkur.
Truarlegar astæður ráöa valinu
Ég myndi velja Manchester United af trú-
arlegum ástæðum. Það er stærsta, flottasta
og besta lið í heimi og yrði tvímælalaust góð
fjárfesting. Ég geri ráð fyrir að maður gæti
keypt það án þess að skuldsetja sig of mik-
ið. Það er ekkert lið góð fjárfesting ef maður
skuldar allt. Það var bandarískur auðkýfing-
ur sem keypti Manchester United ekki alls
fyrir löngu en það verður líklega ekki góð
fjárfesting af því að það voru svo skuldsett
kaup. Ekkert lið í heimi stendur undir mjög
skuldsettum kaupum en ef staðið væri rétt
að málum myndi Manchester United standa
undir sér.
Maður setur svolítið spurningarmerki við
það þegar auðkýfingar eru farnir að safna
liðum. Það er erfitt að finna menn eins og
Romano Abramovits sem eru tilbúnir að
tapa milljörðum. Chelsea skilaði á síðasta
ári meiri taprekstri en nokkurt annað lið
hefur gert í sögu enskrar knattspyrnu. Ég
Adolf Ingi Erlingsson íþróttafréttamaður
er ekki viss um að Björgólfur sé tilbúinn til
þess að tapa miklu.