blaðið - 25.11.2006, Qupperneq 41
blaðiö
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2006 45
Opinber skráning bifreiöa lyrir janúar ■ april 2006 í 15 löndum: Belgiu, Finnlandi, Þýskalandi, Bretlandi, Grikklandi, Irlandi, Italiu, Lúxemborg, Noregi, Portúgal, Spáni og Sviþjóö.
sínir geti talað saman eins og fólk og
að það sé hægt að fá tíma með þeim
án stjúpforeldra öðru hvoru,“ segir
Valgerður og bætir við að hún reki
sig oft á það að fólk í stjúptengslum
líti jafnvel ekki svo á að það sé i stjúp-
tengslum. „Jafnvel þótt barn komi
aldrei á heimili annars kynforeldris
þá hefur fjarvera þess sem og fjar-
vera og afskiptaleysi kynforeldris oft
mikil áhrif. Það getur til að mynda
haft áhrif á tengsl stjúpforeldra og
stjúpbarna því foreldrið getur verið
fullt sektarkenndar og haldið aftur
af sér í samskiptum við stjúpbarn sitt.
Barn sem afskipt af foreldri upplifir
höfnun sem er mjög sár og er hún
ekki gott veganesti út i lífið.“
Uppskrift að vonbrigðum
Valgerður segist hafa lært af eigín
reynslu að sveigjanleiki sé mjög gagn-
legur i stjúpfjölskyldum og það eigi
ekki síst við fyrir jólin. „Flestir eru
með fyrirfram ákveðnar hugmyndir
um hvernig og hvar jólin eigi að vera.
Það er uppskrift að vonbrigðum ef
maður heldur alltaf í það sem var
en tekur ekki mið af breyttum að-
stæðum. Það sem hentar tveggja ára
börnum hentar kannski ekki þegar
sömu börn eru ío eða 15 ára. Einmitt
út af því þurfa foreldrar að vera i
sífelldri endurskoðun hvað varðar
hagsmuni barnanna. Það er vitan-
lega samningsatriði hvar börnin eiga
að vera um jólin og taka þarf tillit
til óska og aldurs barnanna en ef for-
eldrar geta ekki leyst það þá legg ég til
að þau leiti aðstoðar þriðja aðila. Aðal-
atriðið er að börn finni að það sé sam-
komulag á milli foreldranna og allt sé
gert í sátt. Þá geta þau farið með góðri
samvisku til pabba eða mömmu á að-
fangadag. Við sem foreldrar búum oft
til þessar hindranir sjálf. Hvað varðar
jólagjafir þá finnst mér persónulega
það vera ágæt lausn að foreldrar gefi
áfram sínum börnum gjafir saman,
ef það gengur. Stjúpforeldri og stjúp-
börn gefa þá saman. Það er hins vegar
aldrei nauðsynlegt en það getur verið
ákveðið frelsi í því.“
Mælikvarði á gæði
Valgerður segist telja að það sé
hvergi meiri þörf á þvi að fólk fái ráð-
gjöf fyrir stofnun sambands heldur en
í stjúpfjölskyldum. „Það ereinfaldlega
vegna þess að fólk skortir fyrirmyndir
en flestir fara í sambönd uppfullir af
hugmyndum um hvernig hlutirnir
eigi að vera. Þetta þarf ekki að vera
vandamál ef vitað er við hverju á að
búast og rætt er um málið. Það sem
er verst er þegar þetta verður til þess
að par fari i sundur í stað þess að
verkefnin þjappi þeim saman. Stjúp-
fjölskyldan er að glima við öll þau
verkefni sem fyrri fjölskyldan glimdi
við að viðbættum þessum tilfinninga-
tengslum. Tengsl stjúpforeldra og
stjúpbarna eru ákveðinn mælikvarði
á gæði og vellíðan stjúpfjölskyld-
unnar. Það eru þau tengsl sem þarf
virkilega að styrkja jafnframt því að
börn haldi góðum tengslum við báða
kynforeldra sina. Við fullorðna fólkið
þurfum að skilja að barnið græðir á
góðum tengslum við alla aðila. Þegar
verið er að hindra samskipti við kyn-
foreldra þá er það skammtimahugsun
vegna þess að foreldrið veit ekkert
hvenær barnið þarf á hinu foreldrinu
að halda og hvenær foreldrið þarf jafn-
vel sjálft á þvi að halda að barnið eyði
tíma með hinu foreldrinu."
Báðarfjölskyldurnar skipta málf
Samkvæmt Valgerði er mikilvægt
að hafa i huga að báðar fjölskyldur
kynforeldra skipta máli, að önnur
fjölskyldan sé ekki merkilegri en
hin. „Börnin græða á tengslum við
báðar fjölskyldur. Ef það eru ekki sam-
skipti við kynforeldri þá má skoða
þann möguleika hvort það sé einhver
annar í þeirri fjölskyldu sem barnið
geti tengst við.“ Valgerður segist vera
mjög hlynnt sameiginlegri forsjá. „En
það þarf að hafa í huga að við erum að
ætlast til þess að fólk sem er að skilja
vinni mjög vel saman. Fólk sem gat
jafnvel ekki talað saman áður. Það
þarf því að styðja við þessa einingu og
styðja við fólk sem tekur þá ákvörðun
að slíta hjónabandi. Það er tilraun í
gangi um svokallaða sáttameðferð,
að fólk vinni úr deilumálunum og
reyni að finna lausnir. I sameiginlegri
forsjá þarf að hugsa hvað barninu sé
fyrir bestu. Ég hef unnið sem ráðgjafi
í grunnskóla og maður finnur að
skilnaður og samkomulag foreldra
geta haft áhrif félagsleg tengsl barn-
anna. Ef 12 ára barn fer aðra hvora
helgi til foreldris hvaða áhrif hefur
það á möguleika barnanna til að
halda vináttutengslum við jafnaldra?
Slíkt getur haft slæm áhrif ef vinirnir
koma aldrei með eða barnið fær lítið
tækifæri til að hitta þá.“
Tilraunastöðvar fyrir
öll möguleg tengsl
Valgerður talar líka um að oft virð-
ist sem stjúpmæður verði þreyttar á
ástandinu heima fyrir þar sem álagið
„ Efforeldri horfir á
tvö börn ganga inn
í herbergi og annað
er þeirra blóðbarn
þá er mjög líklegt að
foreldrið geti haft
ólíkar tilfinningar
gagnvart þessum
börnum."
sem fylgir mikilli vinnu maka virðist
stundum lenda á þeim. „Þegar par er
í barnlausu sambandi þá hefur það
tíma til að knúsast upp í sófa og ríf-
ast um tannkremstúpuna. Svo kemur
barn i heiminn og þá myndast oft alls
kyns deilur enda hefur álagið aukist.
Það sem gerist í stjúpfjölskyldunni er
að þetta kemur allt með fullum þunga
til að byrja með. Stjúpfjölskyldur eru
hálfgerðar tilraunastöðvar fyrir öll
þau mögulegu tengsl sem upp geta
komið. Ef rætt er um málin þá geta
stjúpfjölskyldur orðið mjög starf-
hæfar fjölskyldur því vandamálin
eru svo áþreifanleg að það verður að
takast á við þau. Ef ég tek sem dæmi
par með eitt barn sem kaupir íbúð
saman. Maðurinn er með hærri laun
og vinnur mjög mikið. Konan er alltaf
ein heima með barnið og er mjög
þreytt á þvi að maðurinn sé aldrei
heima. Ef við snúum dæminu við og
maðurinn á barnið þá verður konan
sem situr heima óneitanlega pirraðri,
sérstaklega í ljósi þess að barnið kom
til að hitta föður sinn,“ segir Valgerður
og nefnir annað dæmi sem er þvi
miður frekar algengt að hennar mati.
„Annað foreldrið getur staðið sig mjög
vel sem einstætt foreldri en svo fer það
í samband og þá er barninu hálfpart-
inn hent í fangið á nýja makanum.
Allt á því að vera eins og það var í
gamla sambandinu og sömu hlutverk
eiga að gilda. í slíkum aðstæðum má
stundum nota sömu úrlausnirnar
og þegar foreldrið var einstætt, að
útvega pössun eða einfaldlega vinna
minna. Það gengur best þegar það er
jafnrétti á heimilinu, þar sem báðir
aðilarnir hugsa um börnin og báðir
aðilar gera allt sem þarf að gera. Ef
það er þessi gamaldags kynjaskipting
þá reynir það mest á sambandið. Að
ég tali nú ekki um vinnutímann en
langur vinnudagur bitnar á öllum
fjölskyldugerðum og sérstaklega illa á
stjúpf)ölskyldum.“
svanhvit@bladid.net
Fiat Grande
nmn Númer 1 í E
e Punto
Evrópu
www.euroncap.com
Þú gætir unnið
ævintýraferð til Veróna
fi §
I V,Ti
m
m
jpMJr.
■xrez>
Bílaumboðið Saga
IFIRO
Æ
Opið:
virka daga frá 8-18
laugardaga frá 12-16
Malarhöfða 2a • HOReykjavlk
Slmi 570 9900 • www.fiat.is
Fnrrafi
X,