blaðið - 25.11.2006, Page 50
LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 2
54
Banvæn sprauta
Síðasti fanginn sem tekinn var af lífi í rafmagnsstólnum
í Texas var Joseph Johnson en hann var líflátinn árið
1964 en Texasríki hóf að nota banvænar sprautur til
þess að lífláta fanga á dauðadeild árið 1977.
blaöiö
Hengdir
Á árunum 1819 til 1923 voru glæpamenn
teknir af lífi í Texas í Bandaríkjunum með
því að hengja þá en farið var að nota raf-
magnsstólinn árið 1924.
Dúnúlpur
Rúskinnsúlpur
Leðurjakkar
Vattkápur
Hattar — Húfur
Leðurhanskar
Ullarsjöl
Góð gjöf
r
Utsöluhorn
50 % afsl.
Góðar vörur Mörkinni 6, Sími 588-5518
Opið virka daga frá kl. 10-18
og laugardaga frá kl 10-16
i t m K3 1
[ W ffÉi^ g § a tósfí Jf**J
Quebec
Toronto
Winnipeg
Niagara fossarnir
Klettafjöllin
Mont Tremblant
- fjölskytduparadísin við Montreal
10.000 kr.
afsláttur
Þeir sem bóka strax geta tryggt
sér 10.000 kr. afslátt á mann.
Fyrstu 1000 sætin
Mundu
MasterCard
j ferðaáinsunina/6
/Rt
w
(.icasu
Frábært verð
Frá 38.595 kr.
- Montreal í viku
Netverð á mann með 10.000 kr. afcl., m.v. 2
fuliorðna og 2 börn, 2-17 ára, vikufcrð 17. maí,
á Hotcl Lord Berrí ***+ í Montreal.
Frá 49.995 kr.
- Mont Tremblant í viku
Netverð á mann mcð 10.000 kr. afcl., m.v. 2 fullorðna
og 2 börn, 2-17 ára, vikuferð 17. maí,
á Hotel La Tour des Voyageurs ****
í Mont Tremblant.
*) Netvcrð á mann. Flugszti báðar leiðir mcð
sköttum. fárgjald A. - ath. mjög takmarkaður fjöldi
sæta í boði á þcssu verði.
Takmarkað sætaframboð með afclætti á hvcrri
dagsetningu. Lzgsu fargjald uppsclt á cinhvcrjum dags.
Heimsferðir
Skógarhlíó 18 • 105 Reykjavik • Simi 595 1000 • Fax 595 1001
Akureyri sími: 461 1099 • Hafnarfjörður simi: 510 9500
heimili
if 9 M* fsl* f:«l
Auglýslngasimlnn er
510 3744 i Frr.TtvH
Christian Jungers var 48 ára gam-
all þegar hann missti sveindóminn.
Hans fyrsta kynlífsreynsla var með
eldri konu, en þegar hann var orðinn
sextugur varð hann ástfanginn af 13
ára stúlku - barnabarni konunnar
sem hann var með.
Njósnaði um konur
Frá kynþroska fram undir miðjan
aldur fullnægði Jungers þörfum sín-
um í gegnum draumóra sína. Hann
var með ungar stúlkur á heilanum
og varð ástfanginn af 11 ára nágranna-
stúlku sinni þegar hann var 22 ára.
Hann njósnaði um hana á meðan hún
lék sér í garðinum heima hjá sér og
dag einn tók hann af henni mynd þeg-
ar hún sá ekki til. Þegar myndin hafði
verið framkölluð klippti Jungers and-
litið út og límdi á mynd af nöktum
kvenlíkama úr klámblaði.
Jungers baö hana um
að sækja fyrir sig drykk.
Á meðan hún fór inn í
eldhús tók hann upp
hnífinn. Þegar hún kom
aftur með drykkinn
stökk hann á hana og
rak hnífinn í bringu
hennar.
Þetta stundaði hann fram eftir aldri.
Skemmtilegast þótti honum að taka
myndir af stúlkum og konum sem
hann þekkti. Andlitin límdi hann
alltaf á myndir úr klámblöðum. Áður
en hann gældi við sjálfan sig skrifaði
hann viðbjóðslegar setningar undir
myndirnar sem lýstu hvað hann vildi
gera við þær. Meðal þess sem hann
skrifaði var að hann vildi stinga nál-
um í brjóst þeirra, bíta brjóst þeirra
af og rista þær á hol. Þrátt fyrir sjúka
draumóra sina taldi sálfræðingur
hann ekki hættulegan þegar seinna
komst upp um myndasafn hans.
Gekk vel í starfí
Eftir að skólagöngu Jungers lauk
fékk hann vinnu sem yfirmaður hjá
póstþjónustu. Honum gekk vel í starfi
og var fljótlega hækkaður í tign. Laun-
in sín notaði hann til að kaupa dýr
föt, en stórum hluta eyddi hann í að
reyna að kaupa sér vini, með því að
bjóða fólki út að borða og í leikhús.
Þá var hann duglegur við að splæsa
á barnum. Þrátt fyrir þetta eignaðist
hann aldrei alvöru vini.
Dag einn á seinni hluta tíunda ára-
tugarins hittir hann Régiane. Hún
var eldri kona sem fannst Christian
Jungers frábær fengur. Dóttir Régi-
ane og hennar börn dáðu Jungers.
Hann brást við með því að baða þau
í gjöfum. Jungers flutti inn til Régi-
ane og virtist svo ánægður með lífið
með nýju fjölskyldunni sinni að hann
gleymdi að vitja íbúðar sinnar hinum
megin í bænum. Hann gleymdi meira
að segja að borga leiguna. Leigusalinn
fékk að lokum nóg og fór inn í íbúð
Jungers og ætlaði að henda eigum
hans út á götu. Það sem hann fann
inni í íbúðinni kom honum hins veg-
ar í opna skjöldu.
Óeðlilegur áhugi á klámi
Hvereinastivegguríbúðarinnarvar
þakinn klámmyndum. Á gólfinu lágu
klámtímarit, myndbönd og myndir
út um allt. Á þessum tíma voru Belg-
ar í kasti yfir nauðgaranum og morð-
ingjanum Marc Dutroux þannig að
leigusalinn ákvað að tilkynna fund-
inn til lögreglu. Jungers var færður til
yfirheyrslu þar sem hann játaði óeðli-
legan áhuga sinn á klámmyndum.
„Það kann að hljóma undarlega," sagði
Jungers í yfirheyrslu, „en ég hef ekki
brotið lögin. Ég nauðgaði ekki neinni,
er það nokkuð?"
Hann hafði lög að mæla en lögregl-
an sleppti honum ekki fyrr en hann
hafði gengist undir sálfræðirannsókn.
„Hann segist hafa stundað þetta síðan
hann var ungur,“ sagði sálfræðing-
urinn í skýrslu sinni. „Hann er aug-
ljóslega sadisti og hann fullnægir
þörfum sínum með hjálp mynda. Það
eru samt engar líkur á að hann muni
gera eitthvað alvarlegra." Lögreglan
sleppti Jungers, sem á einhvern ótrú-
legan hátt náði að halda handtöku
sinni leyndri fyrir kærustu sinni og
börnum hennar.
Eftir nokkur hamingjurík ár fór
Jungers út af sporinu þegar Nadége,
dótturdóttir kærustu Jungers, vildi
sofa inni hjá Allyson, systur sinni.
Jungers brást reiður við og sagðist
ekki taka það í mál. Nadége mátti
ekki verða undir áhrifum frá neinum
- ekki einu sinni systur sinni. Nadége,
sem var 13 ára á þessum tíma, var
uppáhaldið hans. Hún átti að vera al-
gjörlega hrein.
Seinna kom í ljós að Jungers var ást-
fanginn af Nadége. Hann bað hana um
að giftast sér þegar hún yrði 18 ára og
gaf henni hring. Stúlkunni tókst ekki
að fela hringinn og móðir hennar var
ekki sátt. „Þú verður að hætta að gefa
dætrum mínum gjafir,“ sagði hún Jun-
gers. „Það er ekki heilbrigt að gefa 13
ára stúlku hring!“ Jungers var í miklu
uppnámi og sendi Nadége SMS-skila-
boð: „Bless, ég er farinn," og reyndi
svo að svipta sig lífi með því að taka of
stóran skammt af lyfjum. Honum var
komið á sjúkrahús þar sem lyfjunum
var dælt úr maga hans. Nadége svar-
aði ekki skilaboðum hans svo hann
reyndi aftur að fremja sjálfsmorð í
vikunni á eftir og fór aftur á sjúkra-
hús. Ekkert bólaði á svari svo hann
gerði þriðju sjálfsmorðstilraunina
sem, eins oghinar, tókst ekki.
Missti vitið
I júlí árið 2003 sendi Nadége SMS
í síma Jungers: „Ég fór í klippingu.“
Nóttina eftir gat Jungers ekki sofið.
Tilhugsunin fannst honum hræðileg.
Daginn eftir fékk hann annað SMS:
„Ég er ein heima hjá mömmu. Ég þarf
pening.“ Jungers sendi til baka: „Eg er
að koma.“ Hann fór út í bíl og hafði
með sér mynd af henni. Aftan á mynd-
inni stóð: „Nad, blóð okkar er bland-
að saman að eilífu." I vasa sínum
geymdi hann eldhúshníf.
Nadége var ein heima eins og hún
hafði sagt. Jungers bað hana um að
sækja fyrir sig drykk. Á meðan hún
fór inn í eldhús tók hann upp hnífinn.
Þegar hún kom aftur með drykkinn
stökk hann á hana og rak hnífinn
í bringu hennar. Nadége öskraði:
„Hættu! Hættu! ég skal giftast þér, ég
lofa!“ En Jungers virtist ekki heyra í
henni. Hann stakk hana aftur og aft-
ur, alls 20 sinnum. Þegar hún féll til
jarðar, blóðug og líflaus, reif hann í
föt hennar og beit annað brjóst henn-
ar af. Skömmu síðar gekk hann inn
á nærliggjandi lögreglustöð og sagði:
„Ég drap Nadége.“
í janúar á þessu ári var Christian
Jungers dæmdur í lífstíðarfangelsi.
Hann sagðist ekkert muna eftir morð-
inu en sagðist hafa farið yfir um þegar
hann sá hár hennar stuttklippt.
atli@bladid.net