blaðið - 08.12.2006, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 2006
blaðið
miðvikudagur
i*e«^-aSK?@æB35S>. ?*.%..•••>>'.'•. V* *-
Skammt stórra högga á milli
Sfufí er s/'óan menn fögnuðu vel
§ heppnuðu borverki. Nú gætir
óöryggis vegna notkunar Epoxy.
mmnœn*
f M mM ■ rÓLlt ■ BJEKUB
Martha ErnsUdóttlr ijúkraþjillari Jðlabnkurnar hellla þe»a
r notar hlaupihuga sinn til að dagana. Guöni Th. Jðhannesson
st/rkja og hvetja siúklinga i Kleppi sagnlrsoðingur helur lallið '
tli útiveru og hreylingar |»>» I GuðnaiSunnu
Tæringarvörn i þrýstipipum Kárahnjúkavirkjunar
Eiturefni við Kárahnjúka
■ Mælt með að önnur etnl yrðu notuð ■ Efnið er krabbameinsvaldur
a SrSrirSíilS £*
s saagKSRSSs í'
Byrjað aö spreyja eiturefnum við Kárahnjúka í dag:
Dauðhræddir í
eiturgöngum
Óttast að efnið fari víða Loftræstingu ábótavant Fullyrt að öryggi sé tryggt
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Ég held að við byrjum að spreyja
þessu í dag, öllum starfsmönnum
til blendinnar gleði. Hingað til
höfum við sætt okkur við sífellt
ryk og drullu í andrúmsloftinu
en getum ekki sætt okkur við
svona hættuleg efni. Ég tel ekki
mjög girnilegt að fá þetta ofan
í sig,“ segir starfsmaður í Kára-
hnjúkavirkjun, sem treystir sér
ekki til að koma fram undir
nafni af ótta við að missa vinn-
una. Hann segir ólgu rikja meðal
starfsmanna vegna notkunar Ep-
oxy koltjöru við fóðrun stálpípna
við Kárahnjúka og bendir á að
fjöldi þeirra vinni neðanjarðar
allan daginn. Oddur Friðriksson,
trúnaðarmaður starfsmanna við
Kárahnjúkavirkjun, hefur heyrt
af ótta starfsmanna við notkun
tjörunnar. Sjálfur hafði hann
áhyggjur af málinu og leitaði
því til staðarstjóra um svör. „I
fyrradag fékk ég þau svör að
öryggi manna verði gulltryggt
og vinnureglum framfylgt. Slík
fullyrðing er nóg fyrir mig í bili,“
segir Oddur. „Óneitanlega hef ég
áhyggjur af þessu máli og mun
fylgjast með framvindu mála.“
Svífur yfir
Sigurður Arnalds, upplýsingafull-
trúi Kárahnjúkavirkjunar, hefur
ítrekað að fyllsta öryggis sé gætt
við notkun koltjörunnar. Heimild-
armaður Blaðsins telur ekki nóg
að gæta aðeins öryggis þeirra sem
meðhöndla sjálft efnið. „Það er
náttúrlega verið að vinna í ýmsum
verkum allt í kring og því verða
allir í ilminum af þessu yfir dag-
inn. Loftræsting hjá okkur er rosal-
ega langt frá því að vera góð og ég
get ekki séð að gerðar hafi verið sér-
stakar ráðstafanir með þetta,“ segir
starfsmaðurinn. „Þetta er búið að
vera nógu ömurlegt andrúmsloft
nú þegar svo ekki sé bætt við bölv-
uðum eiturefnum. Að heyra svo að
önnur minna skaðlega efni komi
til greina, þá tók alveg steininn úr.“
Öryggi verður að tryggja
Aðspurður telur Oddur að-
stæður á vinnustað viðunandi þar
sem blástur leikur um rörin sem
húðuð verða. Hins vegar bendir
Oddur á að önnur svæði séu ekki
eins trygg. „Auðvitað eru menn
Tryggja verður
að efnið fari
ekki um svæðið
Oddur Friðriksson
trúnaðarmaður
starfsmanna við
Kárahnjúkavirkjun
þarna víða við önnur störf og ör-
yggi þeirra verður að tryggja. Það
verður bara að tryggja að efnið
fari ekki um svæðið,“ segir Oddur.
„Hingað til hef ég getað treyst full-
komlega því öryggiseftirliti sem
hér er og því mun ég gera það
áfram hvað þetta mál varðar.“
Eins og námuvinna
Annar heimildarmaður Blaðs-
ins, sem starfar við Kárahnjúka,
hefur verulegar áhyggjur
af því að heilsu starfs-
manna sér ógnað. „Við
störfum stöðugt neðan-
jarðar og fáum aðeins
fara upp í hádegismat.
Ryk og efni sem notuð
eru berast þarna um
allt fjallið og mjög erfitt að
eiga við loftræstingu við þessar
aðstæður,“ segir starfsmaðurinn.
„Þetta er eins og námuvinna og við
slíkar aðstæður verður ekki ráðið
við fullkomna loftræstingu. Þegar
allt var sandblásið hér þá fór rykið
um allt. Ég get ekki ímyndað mér
að þetta verði hamið eitthvað
frekar.“
Veiktust út af Epoxy koltjöru:
Þetta er bölvað eitur
„í fyrstu komu kláði og útbrot. Þrátt fyrir hlífðarfatnað og loftræst-
ingu náði efnið i gegn og brenndi húðina. Þetta er bölvað eitur og við
vissum ekkert af því,“ segir Guðmundur Lýðsson rafvirki sem starfaði
síðasta vetur í Búrfellsvirkjun. Þar var notað Epoxy eiturefni, líkt og
nú er notað við Kárahnjúkavirkjun, og nokkrir starfsmenn voru frá í
nokkrar vikur vegna mikilla veikinda.
Guðmundur verður í viðtali í Blaðinu á morgun.
Lárus Bjarnason Málið er i
rannsókn hjá okkur og mun hugs-
anlega verða kært í kjölfarið.
Eiturefnanotkun
við Kárahnjúka:
Rannsakað
af sýslu-
manni og
lögreglu
„Málið er í rannsókn hjá
okkur og mun hugsanlega
verða kært í kjölfarið. Við
höfum ásamt lögreglunni
óskað eftir upplýsingum
um hvers vegna verið sé að
nota þetta eiturefni. Efnið
er leyfisháð og embættið
hefur ekki veitt leyfi fyrir
núverandi notkun,“ segir
Lárus Bjarnason, sýslu-
maður á Seyðisfirði.
Hann bendir á
að embættið hafi
veitt eldra leyfi,
árið 2005, sem
gildi ekki fyrir þær
framkvæmdir
sem nú standa
yfir. Lárus ítrekar
að eðlilega hafi verið
staðið að eldri leyfisveit-
ingu og fyllilega farið að
lögum. „Við veittum eldra
leyfi á grundvelli umsagnar
frá Umhverfisstofnun og
þar var mælt með þessu.
Jafnframt lá fyrir úttekt
Vinnueftirlitsins á eiturefna-
geymslum. Málið átti sér
því mjög eðlilegan farveg
hjá okkur,“ segir Lárus. Að-
spurður segir Lárus að beðið
verði eftir svörum áður en
næstu skref verða tekin. „1
kjölfarið er líklegt að farið
verði fram á að verkið sé
stöðvað þar til tilskilin leyfi
liggja fyrir. Samkvæmt með-
alhófsreglunni geri ég ráð
fyrir að vinna verði annað
hvort stöðvuð eða málið fari
í kæru,“ segir Lárus.