blaðið - 08.12.2006, Side 44

blaðið - 08.12.2006, Side 44
8. DESEMBER 2006 FOSTUD, Jólaskreytingum Komið ykkur í jólaskap með því að grafa upp jólaskrautið og skreyta svo heimilið eins og óð væruð. Sötrið jólaöl. missið ykkur í góðum mat og hlustið á jólatónlist. Mandarínur geta líka gert ansi mikið sé einhver ekki ennþá farinn að finna fyrir jólaandanum. Hundaæði Yfirvöld í Peking hafa ákveöiö að hver fjölskylda megi aöeins ala einn hund til þess að draga úr því vandamáli sem hefur hlotist af óskráöum hundum þar í borg. Þeir sem brjóta þessi lög verða sektaðir um 45 þúsund krónur og verða hundarnir fjarlægðir af heimili sínu. Yfirvöld sáu sig knúin til að setja þessi lög þar sem und- anfarna mánuði hefur hundaæði verið mesta heilsufarsvandamálið í borginni. Munnvatn Mannslíkaminn framleiöir um 23 þús- und lítra af munnvatni um ævina en það dugir til þess að fylla tvær sundlaugar. Asgeir er gömul sál sem elskar að dútla i eldhúsinu: Háleynileg“ piparsvemau Þáttastjórnandinn og glæsimennið Ásgeir Kolbeinsson kennir lesendum Blaðsins og piparsveinum íslands að elda kjúkling eftir háleynilegri uppskrift í eldhúsi sínu. Hann segir piparsveina íslands léttilega geta töfr- að fram flotta en einfalda rétti með smá klækjum og segist vera gömul sál sem líti upp til foreldra sinna og finnst ekkert skemmtilegra en að vera í eldhúsinu með hveiti í hárinu og súkkulaðikless- ur á nefbroddinum með syni sínum að baka köku. »46 Blaðid/Eyþór Bardukha Austurevrópsk þjóðlagatónlist með arabísku ívafi. Hljómsveitin Bardukha svíkur engan en geisladiskurinn er nýkominn í verslanir og er um að gera að festa kaup á einum slíkum fyrir jólin. Frábær tónlist hvort sem það er fyrir rólegt kvöld heima, áramótapartíið eða í brúðkaupið. Smásagnasafni Murakamis Blind Willow, «'• Sleeping Woman, fyrsta smásagnasafn japanska rithöf- undarins Haruki Murakamis. Smásögur Murakamis eru mysfískar og óræðar og bregða lit á gráan hversdagsleikann. Konfekti Hvort sem það er Nóa konfekt, Mackintosh eða eitthvað annað þá er fátt sem gleður jafn mikið og góður súkkulaöi- moli í skammdeginu. í desember er líka hægt að úða í sig samviskulaust enda á líka að takast á við alla slæma ávana á nýju ári og því óþarfi að halda í við sig. Chai Latte í Kaffitár Heit og freyðandi mjólk með krydduðum ilmi sem kemur öllum íjólaskap. Ekki spillir fyrir að drykkurinn erfrekar ódýrá mælikvarða kaffi- drykkja og kostar aðeins 190 krónur. LOFTUR ÓSKAR GRÍMSSON 1. Hvað heitir fyrsti jólasveinninn sem kemurtil byggða? Stekkjastaur 2. Hver er forsætisráðherra Bretlands? Tony Blair 3. Hver málaði málverkið Ópið? Æi, ég man það ekki, þessi norski þarna 4. Hvaða ár lenti fyrst geimflaug á tunglinu? 1969 5. Hver er stærsti foss fslands? Glymur DAVfÐ ÖRN HJARTARSON 1. Hvað heitir fyrsti jólasveinninn sem kemur til byggða? Stekkjastaur eða eitthvað 2. Hver er forsætisráðherra Bretlands? Er það ekki Tony Blair? 3. Hver málaði málverkið Ópið? Michelangelo eða eitthvað, ég man það ekki 4. Hvaða ár lenti fyrst geimflaug á tunglinu? 1999 eða eitthvað 5. Hver er stærsti foss i'slands? Það er þarna stóri fossinn frægi, Seljalands- fossar KARVELERLENDSSON 1. Hvað heitir fyrsti jólasveinninn sem kemur til byggða? Stekkjastaur 2. Hver er forsætisráðherra Bretlands? Hef ekki grænan 3. Hver málaði málverkið Ópið? Munch 4. Hvaða ár lenti fyrst geimflaug á tunglinu? 1969 5. Hver er stærsti foss fslands? Égveit það ekki, Gullfoss? MARGRÉT NANA GUÐMUNDSDÓTTIR 1. Hvað heitir fyrsti jólasveinninn sem kemur til byggða? Stekkjastaur 2. Hver erforsætisráðherra Bretlands? Ég hef ekki hugmynd 3. Hver málaði málverkið Ópið? Hvað er það? Ég veit ekki 4. Hvaða ár lenti fyrst geimflaug á tunglinu? Ég hef ekki hugmynd 5. Hver er stærsti foss fslands? Gullfoss eða eitthvað HULDA SIGMARSOÓTTIR 1. Hvað heitir fyrsti jólasveinninn sem kemur til byggða? Það er Stekkjastaur 2. Hver er forsætisráðherra Bretlands? Tony Blair 3. Hver málaði málverkið Ópið? Ég man ekki hvað hann heitir 4. Hvaða ár lenti fyrst geimflaug á tunglinu? 1967 5. Hver er stærsti foss Islands? Dettifoss

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.