blaðið - 01.09.2007, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 1.SEPTEMBER2007
blaöiö
FÉOGFRAMI
vidskipti@bladid.net
7Hópefli sem slíkt er mjög skemmtilegt og er
mikið hlegið. Það fær fólk til að fara út úr sínu
venjulega starfsumhverfi og vinna með samstarfs-
fólkinu í öðru umhverfi og við aðrar aðstæður.
Landsbankinn skoðar
írskan sparisjóð
Landsbankinn er sagður vera að íhuga að gera tilboð í írska sparisjóð-
inn Irish Nationwide. Fulltrúar frá Landsbankanum hafa verið að
skoða bókhald sjóðsins, en áhuginn kviknaði eftir að írsku löggjöfinni
var breytt fyrr í ár og sjóðnum leyft að leita sér kaupenda á markaði.
Það er HSBC sem veitir Landsbankanum ráðgjöf varðandi kaupin.
Landsbankinn er þó ekki einn um hituna því fleiri aðilar hafa verið að
rýna í bókhald Irish Nationwide, sem hefur um 12; þúsund stofnfjáreig-
endur. Hver þeirra er talinn fá 10 til 15 þúsund evrur út úr sölunni. mge
Actavis vex
í Búlgaríu
Sala Actavis í Búlgaríu jókst um
10,6; prósent á fyrri helmingi
þessa árs. Námu tekjurnar 23,1
milljón evra, eða um 2 millj-
örðum króna. Það sem af er ári
hefur Actavis sett á markað 24
nýjar vörur og er búist við að 20
til viðbótar bætist við áður en
árið er liðið. Actavis er stærsti
lyfjaframleiðandi i Búlgaríu, en
starfsemi fyrirtækisins nær til 39
landa og eru starfsmenn þess 11
þúsund talsins. mge
Líf í krónubréfa-
útgáfu
Gjalddagar krónubréfa eru á
næsta leiti og undanfarna daga
hefur mikið líf færst í útgáfu
krónubréfa. Alþjóðabankinn til-
kynnti á miðvikudag um 3 millj-
arða útgáfu með gjalddaga í maí
2009 og í fyrradag bárust tilkynn-
ingar um tvær útgáfur, samtals 9
milljarða virði. Á vef Greiningar
Glitnis segir að krónubréfaútgáfa
í ágúst hafi verið 55 milljarðar
króna. Bréf á gjalddaga í sept-
ember nema alls 82,5 milljörðum
króna að nafnvirði og því ljóst að
enn vantar töluvert upp á að fram-
boð nýrra krónubréfa nægi til
að framlengja krónubréfastöðu
þeirra sem eiga bréf á gjalddaga í
næsta mánuði. mge
Mikill vöruskiptahalli í júlí
í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 17,9 milljarða króna og fluttar
inn fyrir 32,7 milljarða króna. Vöruskiptin í júlí voru því óhagstæð um
14,8 milljarða króna. Þetta er mesti halli í einum mánuði það sem af er
þessu ári. Þetta kemur fram í tölum sem Hagstofan birti í gær.
Fyrstu sjö mánuði ársins hafa vörur verið fluttar út fyrir 157,9 millj-
arða króna, en inn fyrir 213,2 milljarða króna. Halli á viðskiptum við
útlönd samsvarar því 55,4 milljörðum króna það sem af er ári. Er það
34,4 milljörðum minna en á sama tíma í fyrra.
Mest er flutt út af sjávarafurðum og iðnaðarvörum og má rekja 14 pró-
senta aukningu frá fyrra ári til aukins álútflutnings. Á móti kemur að
minna er flutt út af lyfjum og lækningatækjum. Innflutningur á neyslu-
vöru fyrir utan mat- og drykkjarvöru hefur aukist á meðan samdráttur
er í innflutningi á flugvélum og fjárfestingarvörum. mge
Hópefli til að stilla
strengi starf smanna
H Haustið er mikilvægasti tíminn fyrir hópejfli innan fyrirtækja
H Hvataferðum með hópeflisívafi fjölgar
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur
heida@bladid.net
Á haustin þegar sumarfríum er
lokið og samstarfsmenn farnir að
vinna aftur saman er mikilvægt
að fyrirtæki þjappi samstarfsfólki
saman til að endurvekja starfs-
andann, að sögn Marínar Magn-
úsdóttur, framkvæmdastjóra
Practical. „Mannauðurinn er dýr-
mætasti auður fyrirtækja,” segir
Marín. „Hópefli er eitthvað sem
við teljum vera mjög mikilvægt á
þessum tíma til að stilla strengi
starfsmanna."
Hver viðburður einstakur
Practical er þjónustufyrirtæki
og er hópefli einn þeirra viðburða
sem það skipuleggur fyrir fyrir-
tæki. Hjá þeim er hópefli byggt
upp á samvinnuþrautum þar sem
reynt er bæði á huga og hönd. Hver
hópeflisviðburður er einstakur þar
sem hann er sniðinn sérstaklega að
þörfum hvers hóps.
„Það er mjög mikilvægt fyrir
okkur að komast að því að hverju
hópurinn er að leita og sníða pró-
grammið að því,“ segir Marín.
„Hópefli sem slíkt er mjög skemmti-
legt og er mikið hlegið. Það fær
fólk til að fara út úr sínu venjulega
starfsumhverfi og vinna með sam-
starfsfólkinu í öðru umhverfi og
við aðrar aðstæður. Það er ofboðs-
lega mikilvægt fyrir fyrirtæki að
krydda tilveruna með einhverju
svona.“
Hópefli í hvataferðum
Marín segir algengt að fyrirtæki
flétti hópefli inn í hvataferðir sínar,
en slíkar ferðir á vegum Practical
hafa það að markmiði að hvetja,
fræða og skemmta þátttakendum.
Hafa mörg af stærri fyrirtækjum
landsins leitað til Practical og að
Marín Magnúsdóttir f
Segir hópefli mikilvægt. I
PRACTICAL EHF.
►
►
Var stofnað árið 2004.
Veitir alhliða skipulags- og
ráðgjafarþjónustu sem
viðkemur hvataferðum,
viðskiptaferðum, hópefli og
fundarhöldum.
►
Fyrirtækið hefur ferðaskrif-
stofuleyfi og skipuleggur
ferðir og viðburði erlendis.
sögn Marínar fara mörg þeirra í
hvataferðir minnst tvisvar á ári.
„Á vorin eru þessar ferðir meira
í líkingu við uppskeruhátíð. Fyrir-
tæki sjá sér hag í því að nýta vorin
líka og þjappa öllum saman áður
en þau missa fólkið sitt í sumarfrí.
Þessar ferðir gera svo mikið fyrir
starfsandann og þar kynnist fólk
betur auk þess að finna styrk og
veikleika hvert annars."
Dæmi um dagskrá í hvataferð er
að um morguninn væri fyrirlestur,
til dæmis um hvernig eigi að takast
á við breytingar á jákvæðan hátt, og
svo er farið i óvissuferð. Marín segir
að einnig sé það að færast í aukana
að fyrirtæki fari með starfsmenn
sína til útlanda, til dæmis á árshá-
tíð fyrirtækisins, og tengi við það
hópeflisstarf.
AIKIDO
Námskeið allt árið
í sal Aikikai Reykjavík í Faxafeni 8.
Skoðið heimasíðuna www.aikido.is
Verið velkomin f ffían prufutfma
(það eina sem þú þarft að gera er að mæta)
Byrjendapakki:
Haustönn hefst 3. september kl. 18:00.
Gráðupróf í nóvember.
Æfingar eru allt að sex á viku.
(para- og systkinaafsláttur).
Ókeyp is aikido galli
fylgir með byrjendanámskeiði!
Bamatímar
hefjast einnig 3. september.
Æft er tvisvar í viku,
á mánudögum og miðviku-
dögum milli kl. 17:00-18:00.
Aldur 7-11 ára.
Hringið f eftirfarandi símanúmer
til að fá nánari upplýsingar:
840-4923 & 897-4675
eða kíkið á heimasíðuna:
MARKAÐURINN í GÆR
Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á íslandi, 31, . ágúst 2007 • Mest viðskipti í Kauphöll OMX í gær voru með bréf Kaupþings, fyrir um 2,7 milljarða króna. Næstmest viðskipti voru með bréf Landsbank- ans, fyrir 2,2 milljarða. • Mesta hækkunin var á bréfum Kaupþings, eða 1,66%. Bréf Icelandair hækkuðu um 1,49% og bréf Century Aluminum um
Viðskipti í krónum ATH. = Athugunarlisti Félög í úrvalsvísitölu ▲ Atorka Group hf. A Bakkavör Group hf. A Existahf. ▲ FL Group hf. Viöskipta- verð 9,33 66,90 33,80 26,20 Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi breyting viösk.verös viöskipta 0,11% 31.8.2007 6 0,15% 31.8.2007 17 1,20% 31.8.2007 41 f,í6% 31.8.2007 25 Heildar- viöskipti dagsins 25.140.254 61.991.265 271.867.553 172.016.043 Tilboð í lok dags: Kaup Sala 9,33 9,40 66,40 66,90 33,65 33,80 26,00 26,30
A Glitnir banki hf. ♦ Hf. Eimskipafélag íslands ▲ lcelandair Group hf. 28,45 41,10 27,20 1,07% 0,00% 1,49% 31.8.2007 31.8.2007 31.8.2007 53 5 7 819.697.849 2.167.993 82.211.008 28,35 41.10 27.10 28,45 41.20 27.20
A Kaupþing banki hf. 1162,00 1,66% 31.8.2007 80 2.683.721.917 1157,00 1162,00
A Landsbanki íslands hf. 41,45 1,22% 31.8.2007 103 2.163.528.930 41,45 41,80 1,45%. • Mesta lækkunin var á bréfum 365, eða 3,61%. Bréf Foroya Banka lækk-
Mosaic Fashions hf. A Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 17,50 20,45 0,49% 17.8.2007 31.8.2007 37 371.699.010 20,35 20,45
▼ Teymi hf. 6,15 -0,32% 31.8.2007 5 3.821.200 6,15 6,20
♦ össurhf. 105,00 0,00% 31.8.2007 10 14.298.059 104,50 106,00
Önnur bréf á Aðallista uðu um 1,08% og bréf Eik Banka
▼ 365 hf. 2,67 -3,61% 31.8.2007 4 5.405.000 2,66 2,69
Actavis Group hf. - 20.7.2007 - - ' - - um 0,72%.
♦ Alfesca hf. ▼ Atlantic Petroleum P/F 5,87 1078,00 0,00% -0,37% 30.8.2007 31.8.2007 10 6.109.145 5,86 1075,00 5 94 1080,00 • Úrvalsvísitalan hækkaði um
▼ Eik Bankj 685,00 -0,72% 31.8.2007 3 2.548.361 684,00 690,00 1,18% í gær og stóð í 8.294 stigum í lok dags.
♦ Flaga Group hf. 1,54 0,00% 30.8.2007 - - 1,53 1,55
▼ Foroya Bank 228,00 ■1,06% 31.8.2007 11 2.136.218 223,00 228,00
iceiandk Group hf. 5,95 - 22.8.2007 - - 5,90 5,98 • íslenska krónan veiktist um
▼ Marefhf. 92,80 ■0,22% 31.8.2007 4 10.135.245 92,80 93,30
♦ Nýherji hf. 21,50 0,00% 30.8.2007 - 21,50 21,90 0,43% í gær.
A Tryggingamiðstöðin hf. 39,80 0,25% 31.8.2007 1 4.975.000 39,50 40,10
Vmnslustöðin hf. 8,50 - 22.8.2007 - - - • Samnorræna OMX40-vísitalan hækkaði um 0,99% í gær. Breska FTSE-vísitalan hækkaði um 1,5%
First North á íslandi * CenturyAluminium Co. 3084,00 1,45% 31.8.2007 4 36.846.000 3070,00 3104,00
HB Grandi hf. 10,80 - 18.7.2007 - - - 10,80
Hampiðjan hf. 6,50 - 20.6.2007 - - - 6,60
og þýska DAX-vísitalan um 1,6%.