blaðið - 01.09.2007, Page 33
blaöið
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2007
33
*
Lífshlaupið „Ég hóf ferð
sem ég veit ekki hvar endar. '
Ég er ákaflega sátt og þakk- {jj
lát fyrir það sem ég á í dag.“ ' -
mér
inni þótt ég þurfi vissulega að eiga
minn samstað. Ég er í fjarnámi í há-
skóla í San Fransisco þar sem ég er
í bachelor-námi 1 auglýsingagerð, er
á öðru ári af fjórum og ætla mér að
halda áfram að ganga menntaveginn.
Mér finnst gaman að mennta mig
enda opnar menntun margar dyr.“
Lífið tileinkað dótturinni
Hvernig er með ástarlífið?
„Það fer nú afskaplega lítið fyrir
því, reyndar ekki neitt. Ég hef ekki
verið við karlmann kennd hátt í
þrjú ár. Það er alveg ágætt. Ég er
búin að vera ein svo lengi að það
er örugglega erfitt að breyta til og
fara í samband en auðvitað smellur
það allt saman þegar það á að gerast.
Það er fínt að vera í góðu sambandi
en mér líður svo vel einni að ég hef
ekki verið tilbúin í neitt annað.
Um helgar fer ég gjarnan upp
í sveit til foreldra minna og er þar
með stelpuna mína og hunda og svo
er ég mikið heima hjá mér þar sem
mér líður afskaplega vel. Eins og er
þarf ég ekkert annað. Svo er það nú
þannig að á Islandi reynir enginn
karlmaður við mig. En ég fer heldur
aldrei neitt og ekki standa þeir í
röðum og banka upp á heima hjá
mér.“
Af hverju heldurðu að sam-
böndin sem þú varst í hafi ekki
gengið? Voru þetta ekki menn
fyrirþig?
„Þetta voru ekki menn fyrir mig
og ég var ekki kona fyrir þá. Ég er
heldur ekkert óskaplega auðveld
kona. Gamall kærasti minn sagði
við mig fyrir nokkrum dögum
að karlmenn væru hræddir við
sjálfstæðar konur, það væri miklu
minna vesen að vera með konu sem
lætur að stjórn. Ætli ég láti nokkuð
svo vel að stjórn, enda verið ein
lengi. Kannski er það skýringin.“
Hefurðu ekki orðið ástfangin
siðustu þrjú árin?
„Nei. Það hefur ekkert gerst. Líf
mitt er tileinkað dóttur minni, fsa-
bellu. Öll ást mín fer til hennar. Ég
hef ekki verið tilbúin til að gefa ást
mína annað.“
Mesta blessunin
Hvernig breytti dóttir þín lífi
þínu?
Líf mitt er til-
einkað dóttur
minni, ísabellu.
Öll ást mín fer til
hennar. Ég hef ekki verið
tilbúin til að gefa ást
mína annað.
„Hvar á ég að byrja? Hún er mesta
blessun sem mér hefur hlotnast.
Hún fyllti upp í tómarúmið sem var
í lífi mínu og breytti lífssýn minni.
Það er unaðslegt að vera móðir og
fyllast óendanlegri ást. Ég hefði
ekki viljað fara á mis við það, enda
hafði ég í langan tíma þráð að verða
móðir. ísabella er draumurinn
minn, allt sem ég óskaði mér og svo
miklu, miklu meira.“
Hvernigpersónuleiki er hún?
„Hún er nýorðin tveggja ára og er
að mótast sem einstaklingur. Hún er
MIKIÐ
URVAL
Karoíin
Svefnsófi
ELDHUS
BORÐUM
STÓLUM
SERSMIÐUM
ELDHÚSBORÐ
íslenikur stól
Suprima
90x200cm 33.280,- áður 41 ,öGC
1 20x200cm 42.400,- áður 53.uG
1 40x200cm 49.360 - áður 61 /G
Rafmagnsrúm veró áóur 1 U1,600
www. toscana. is
SMIÐJUVEGI 2, KOP S:587 6090
HÚSGÖGNIN FASTEINNIG HÚSGAGNAVAL, HÖFN S; 478 2535
>