blaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 38

blaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 38
LAUGARDAGUR 1. SEPTEMBER 2007 blaöiö ÍÞRÓTTIR ithrottir@bladid.net «| Ólíkt íslenskum kollega sínum sem sjaldan ^ virðist raunsær fyrir landsleiki hefur lands- liðsþjálfari Spánverja, Luis Aragones, miklar áhyggjur af leiknum gegn fslandi. SKEYTIN INN Athygli vekur að Chels- ea hafa borist nokkur tilboð í Andriy Shevchenko undanfarna daga og vikur og þó þeim hafi öllum verið hafnað þykir spekingum ljóst að stjarnan verði seld fáist viðunandi boð. Engar tilkynn- ingar um að hann sé ekki falur hafa verið gefnar út og víst er að mikil vonbrigði voru með frammistöðu hans á síðustu leiktíð og tækifæri hans nú verða örugglega færri fyrir vikið. David Dein, fyrrum stjórnar- formaður Arsenal og einn helsti bak- hjarl Arsene Wen- ger, segir framtíð liðsins ráðast af því hvort núver- andi stjórnarmenn vilji selja er- lendum íjárfestum sinn hlut. Sjálf- ur seldi hann sinn 15 prósenta hlut rússneskum auðkýfingi og segir hann fjársterka aðila grund- völl þess að Arsenal verði áfram stórlið á evrópskan mælikvarða. Blendnar tilfinningar bærast í brjóstum þeirra Nani og Cristi- ano Ronaldo hjá Manchester United en hð þeirra mun mæta Sporting Lissabon í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Báðir léku með Sporting áður en leiðin lá til Englands og þar eru þeir báðir enn í guðatölu hjá aðdáendum. Frakkinn Franck Ribery heldur áfram að gera garðinn frægan og var hann valinn leikmaður mánaðarins í þýsku Bundesligunni í vikunni. Hann hefur leikið stórkostlega og skor- að eitt mark og lagt upp nokkur og er vafalaust kaup ársins í evrópska boltanum hingað til. Forráðamenn Real Madrid leita allra leiða til að selja ungstirni sín í grænum hvelli til að geta með góðu móti gert lokatilboð í Daniel Alves hjá Sevilla. Alves er dýr og effir sleitulitla eyðslu undanfarið eru blankheit farin að gera vart við sig hjá Real. Fáttþykirsum- um meira heillandi en að græða á óförum annarra. Flestir veðbankar evrópskir gefa spilasjúkum færi á að leggja pen- ing undir um hvaða þjálfari fær fyrstur sparkið í deildum Evrópu og standa þrír þjálfarar höllust- um fæti eins og sakir standa ef marka má veðspekinga. Bernd Schuster, þjálfi Real Madrid, hefur ekki sannfært nokkurn mann og þykir valtur, Martin Jol hjá Tottenham fær sparkið ábyggilega fyrr en síðar en flest atkvæði fær eftirmaður Sam Allardyce hjá Fulham, Sammy Lee. Lee þykir með vanhæfari þjálfurum að mati getspakra og fær fyrstur allra að fjúka. Leikmerm KR sammngsbundnir liðinu hvort sem það fellur eður ei Hætta á flótta úr Vesturbænum „Enginn leikmaður liðsins er með slíka klásúlu og ég fullyrði að falli liðið komi sami mannskapur því aftur upp,“ segir Jónas Kristinsson, stjórnarformaður KR Sport, en heim- ildir Blaðsins herma að allnokkrir leikmenn KR hafi klásúlur í samn- ingum sínum sem geri þeim kleift að fara frjálsir ferða sinna falli liðið. Jónas segir það rangt en setur þó þann varnagla að hlaupi einhver frá borði þegar hallar á skipið segi það allt sem segja þarf um manndóm viðkomandi leikmanna. Allmargir aðdáendur liðsins hafa fengið sig fullsadda á hörmu- legu gengi KR og heyrast raddir um að Jónas beri á því mikla ábyrgð og eigi að víkja sem stjórn- arformaður en þvf er Jónas ekki sammála. „Auðvitað ber ég mína ábyrgð en það eru fleiri í stjórn en ég og ég er enginn einvaldur í KR eins og margir virðast trúa. Ábyrgðin liggur mun víðar og það er argasta kjaftæði að ég sé ein- ræðisherra innan stjórnar. Þetta er samvinnuverkefni og ég tek glaður þátt í því af áhuga fyrir KR og hef gert í 20 ár. Hafi einhver út á mig eða mín störf að setja verður viðkomandi að hafa þor til að segja mér það berum orðum.“ Jónas borubrattur Vísar allri gagnrýni á sig og sin störf til föðurhúsanna. Fyrirliðinn Leikur Eiðs Smára gegn Spánverjum síðasta vetur var einn sá daprasti af hans hálfu í bún- ingi landsliðsins en þá hafði hann lítið fengið að spila með Barcelona. Sama er uppi á teningnum nú. Eiður með áskríft Áfram í liðinu Áfram fyrirliði Ekki leikið til sigurs Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@bladid.net Þrátt fyrir dapra og á stundum hörmulega daga í landsliðsbún- ingnum síðustu leiki og þrátt fyrir að hafa verið meiddur og ekkert spilað með liði sínu mun Eiður Smári Guðjohnsen hefja leik með fyrirliðabandið í komandi lands- leikjum íslenska karlalandsliðsins f knattspyrnu gegn Spáni og Norður- írlandi verði hann heill. Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari er samur við sig; mótherjarnir eru gríðarlega firnasterkir, svo mjög reyndar að hann talar ekki lengur um að íslenska liðið spili til sigurs. Reiðir sig á sama hóp Eyjólfur tilkynnti leikmannahóp- inn fyrir leikina tvo í riðlakeppni Evrópumótsins í gær og er þar að finna tvo nýliða en að öðru leyti er um góðkunningja að ræða. Eyjólfur var brattur fyrir hönd landsliðsins og nefndi vináttuleikinn við Kan- ada um daginn sem afar jákvætt skref eftir að botninn datt úr lið- inu í 1-5 tapi íslands gegn Svíþjóð f sumar. Eru þeir vandfundnir sem taka undir með honum að 1-1 jafnt- efli á heimavelli í pressulausum vináttuleik gegn Kanada sé ásættan- legur árangur. 4-5-1 taktík Aðspurður sagðist Eyjólfur eiga von á að nota sama íeikskipulag gegn Spánverjum og í fyrri leik lið- anna á Mallorca í mars. Þótt margir teldu Island hafa verið óheppið að tapa þeim leik 1-0 var staðreyndin önnur. ísland var heppið að tapa ekki miklu stærra enda hvarf fyrir- liðinn fljótlega sjónum manna þó enn væri á vellinum og ísland átti svo mikið sem 1 skot að marki þær 90 mínútur sem leikurinn stóð yfir. Vonandi gengur skipulagið betur næst. Aragones hreinskilinn Ólíkt íslenskum kollega sínum fsland - Kanada Fínn undirbúningsleik- ur að mati Eyjólfs Sverrissonar en sá leik- ur endaði 1 -1 og var laus við skemmtan að mestu. sem sjaldan virðist raunsær fyrir landsleiki hefur landsliðsþjálfari Spánverja, Luis Aragones, miklar áhyggjur af leiknum gegn íslandi. „Næstu tveir leikir eru ákaflega mik- ilvægir ef við ætlum okkur lengra en gengi okkar er ávallt lélegt á stöku leikvöngum og okkur gengur alltaf illa í Reykjavík." fíft Iþrótta hús áfe Sundlaug ■1 íþróttave llir St/örnuheimilið Kveðja Ásgarð Á morgun fer fram Meist- arakeppni Handknattleiks- sambands Islands í karla- og kvennaflokki og fara báðir leikir fram í Ásgarði í Garðabæ. Kvennamegin mæt- ast Stjarnan og Haukar en karlamegin Stjarnan og Valur. Verður þetta í síðasta sinn sem Stjarnan spilar í Ásgarði en leikir framtíðarinnar verða spilaðir í Mýrinni. Adolf Út? íþróttadeild Ríkisútvarpsins gæti orðið fyrir mikilli blóð- töku innan tíðar en Adolf Ingi Erlingsson er einn þeirra sem telja sig eiga erindi í starf fjöl- miðlafulltrúa utanríkisráðu- neytisins sem ráðið verður í fljótlega. Fordæmi eru fyrir því að íþróttafréttamenn á þeim bæ komist í álnir á öðrum vígstöðvum samanber Steingrím J. Sigfússon, for- mann Vinstri grænna. Vex úr grasi Ákveðið hefur verið að stækka golfvöll GR að Korpúlfs- stöðum úr 18 holum í 27 holur og fagna því efalítið margir enda bætist jafnt og þétt við biðlista ár hvert hjá golf- klúbbum suðvestanlands. í sumar hefur völlurinn þó þótt herfilegur til spilunar og skýr krafa hlýtur að vera gerð um að vanda mun betur til verka á stækkuðum velli. Magnað spennustig Mikil spenna er orðin á toppi 1. deildar karla í knattspyrnu þegar fimm umferðir eru eftir en þrjú félög berjast þar hart um eitt laust sæti í Landsbankadeild að ári. Tvö þeirra eru góðkunningjar sem áður hafa tekið þennan slag, Grindavík og Þróttur, en hið þriðja er lið Fjölnis úr Grafar- vogi sem aldrei hefur náð svo langt.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.