blaðið - 07.09.2007, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
blaóið
Heimskautaísinn gæti
horfið á tuttugu árum
■ Fimmtungi minni ís en 2005 ■ Hiti við Svalbarða mörgum gráðum hærri en í meðalári
ÍSINN BRÁÐNAR
Noregur
Rússneskar
vélar á flugi
Norðmenn og Bretar sendu
orrustuþotur til móts við átta
rússneskar sprengiflugvélar á
flugi yfir Norður-íshafi í gær.
Tu-95 vélar flugu inn á al-
þjóðlegt flugsvæði yfir Bar-
entshafi og sneru þar við, að
sögn talsmanns norska hers-
ins. Vélamar flugu ekki inn í
norska lofthelgi.
Nokkur sambærileg tilfelli
hafa átt sér stað síðustu vik-
umar.
• Leikföng Hu Jintao Kína-
forseti segir að kínversk stjórn-
völd taki fféttir af göllum í kín-
verskri framleiðslu alvarlega og
muni vinna að því að auka og
bæta eftirlit. Leikfangafram-
leiðandinn Mattel innkallaði
nýverið fleiri hundruð þúsund
leikföng sem búin voru til í
Kína, eftir að blýmagn í þeim
mældist of hátt.
• Herþotur Sýrlensk yfirvöld
segja að þau hafi skotið á ísr-
aelskar herþotur sem flugu
inn í lofthelgi Sýrlands aðfara-
nótt gærdagsins. ísraelsher
hafði áður skotið á ótilgreind
sýrlensk skotmörk.
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladld.net
Heimskautaísinn við norðurpól-
inn hefur aldrei bráðnað hraðar
en á nýliðnu sumri. Vísindamenn
eru undrandi á þróuninni og ótt-
ast að svæðið gæti orðið íslaust að
sumri þegar eftir tuttugu ár, ára-
tugum fyrr en vísindaneftid Sam-
einuðu þjóðanna um loftslags-
breytingar hefur áætlað. Aldrei
hefur jafn mikill ís bráðnað á jafn
stuttum tíma við norðurheim-
skautið og nú. „Þróunin er mjög
dramatísk. Þetta er eitt af skýrustu
merkjunum um hlýnun loftslags
jarðar sem nokkru sinni hefur
mælst,“ segir Pál Prestrud, for-
stjóri norsku Cicero-rannsóknar-
stofhunarinnar um loftslag, í sam-
tali við Adresseavisen.
Fimmtungi minna
ísbreiðan þar nyrðra mælist
vanalega minnst í síðari hluta
septembermánaðar á ári hverju.
Flatarmál ísbreiðunnar hafði aldr-
ei mælst minna en í lok sept-
ember árið 2005, eða 5,3 milljónir
ferkílómetra. í ár var metið hins
vegar slegið þegar í ágúst og ísinn
hefur haldið áfram að bráðna
hratt síðan. Samkvæmt mæling-
um Háskólans í Colorado í
Bandaríkjunum, sem mælt hefur
víðfeðmi ísbreiðunnar ffá árinu
1979, mældist flatarmál íssins 4,4
milljónir ferkílómetra á mánudag-
inn, eða tuttugu prósentum
minna en metárið 2005.
Prestrud segir að ef bráðnun
íssins haldi áfram á sama hraða út
september, líkt og búast megi við,
muni ísbreiðan hafa minnkað um
tuttugu til þrjátíu prósent sam-
anborið við árið 2005. „Það jafn-
ast á við þrefalt eða fjórfalt flat-
armál alls Noregs.“
Methiti á svæðinu
Margt bendir til þess að hraði
bráðnunarinnar muni neyða vís-
indamenn til að endurmeta hve-
nær ísinn á norðurskautssvæðinu
hverfi að sumri. Vísindanefnd
Sameinuðu þjóðanna um lofts-
lagsbreytingar lýsti því yfir í febr-
úar að það myndi fyrst gerast árið
2070. Einn fremsti heimskautavís-
indamaður heims, Mark Serreze
við Colorado-háskóla, segir nú að
norðurheimskautið gæti verið
laust við ís að sumri þegar árið
2030. „Það lítur út fýrir að norð-
urheimskautið verði allt öðruvísi
staður en nú þegar í okkar lífstíð,
og alveg örugglega í lífstíð barna
okkar.“
Orsakir hærra hitastigs í
Norður-íshafi í sumar eru
meðal annars öflug háþrýsti-
svæði sem hafa haft í för með
sér heiðskírt veður í margar
vikur.
Á hverju ári hefur ísbreiðan
við norðurheimskautið mælst
minnst í lok septembermán-
aðar.
ingar lýsti því yfir í febrúar
síðastliðnum að heim-
skautaísinn myndi fyrst
hverfa að sumri árið 2070.
Vísindamennirnir vita ekki
með vissu hví ísinn hefur bráðn-
að svo miklu hraðar í ár en fýrri
ár, en líklega kunni methitinn á
svæðinu að vera hluti skýring-
arinnar. Prestrud segir að í kring-
um Svalbarða hafi sumarhitinn í
ár verið tveimur gráðum yfir
meðaltali, en lengra austur og
norður hefur hitastigið verið fjór-
um til fimm gráðum hærra.
HVAÐ VANTAR UPP Á?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
.Ofrce
88«
Espresso upplifun.
ui/Aun
ITALY'S FAVOURITE COFFEE
iflvAiin
Skýrsla um öryggismál íraka
Geta ekki
starfað óstuddir
íraskar öryggissveitir eru ekki í
stakk búnar til að taka að við ör-
yggismálum landsins úr höndum
Bandaríkjahers á næstu átján mán-
uðum, samkvæmt nýrri banda-
rískri skýrslu. Skýrsluhöfundurinn
og fýrrum hershöfðinginn James
Jones segir írösku þjóðaröryggis-
lögregluna vera svo undirlagða af
átökum trúarhópa að best væri að
leggja hana niður. í skýrslunni seg-
ir þó að árangur hafi náðst hjá
íraska hernum, en að hann sé ekki
reiðubúinn til að starfa óstuddur.
1 næstu viku skýra yfirmenn
Þýskaland
Tíu manna
leitað
Þýska lögreglan leitar tíu manna
sem grunaðir eru um að hafa að-
stoðað þremenningana sem
handteknir voru í vikunni vegna
áformaðra hryðjuverkaárása á
Frankfurt-flugvöll og bandarísku
herstöðina í Ramstein.
Talsmaður stjórnvalda segir
mennina vera af þýsku, tyrk-
nesku og fleiri þjóðernum. Þre-
menningarnir tengdust hryðju-
verkahópnum tslamska Jihad og
höfðu útvegað sér um 700 kíló af
efiium til sprengjugerðar. a(
Erfið staða Lögreglan logar í átökum.
Bandaríkjahers í írak Bandaríkja-
þingi frá gangi mála í írak og því
hvaða árangur stefna Bushstjórn-
arinnar hafi borið.
atlii@bladid.net
Bandaríkin
Thompson
í framboð
Fyrrum öldunga-
deildarþingmað-
urinn og leikarinn
Fred Thompson
hefur tilkynnt að
hann sækist eftir
því að verða for-
setaefni banda-
rískra repúblikana í forsetakosn-
ingunum á næsta ári.
Tilkynningarinnar hafði verið
beðið um hríð, en Thompson
lýsti loks yfir framboði í spjall-
þætti Jay Leno. Thompson er vin-
sæll í Repúblikanaflokknum og
þykir hafa íhaldssamar skoðanir,
meðal annars á fóstureyðingum
og vopnaeign. Hann var öld-
ungadeildarþingmaður Tenness-
ee í áratug og hefur einnig starfað
sem leikari, m.a. í sjónvarpsþátt-
unum Law & Order. a(