blaðið - 07.09.2007, Side 26
26
NÁMSKEIÐ
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
blaöiö
laugard. 10.15-12.00
miövikud. 15:15-17:00
Gerður Leifsdóttir
Sigrföur Heiga Hauksd
10-12 ára Korpu mánud. 15:00-17:15
10-12 ára Myndlist-verkmennt-video
mánud. 15:00-17:15
9- 13ára Myndlist-tæknifikt
þriðjud. 15:00-17:15
10- 12 ára miðvikud. 15:00-17:15
9- 11 ára Leirrennsla og mótun
fimmtud. 15:00-17:15
8-11 ára Myndlist-verkmennt
fimmtud. 15:00-17:15
10- 12 ára Myndlist / myndasögur
föstud. 15:00-17:15
10-12 ára Leirrennsla og mótun
laugard. 10:00-12:15
Helgi Þórsson
Gerður Leifsóttir
Anna Hallin og
Pétur Örn Friöriksson
Þorbjörg Þon/aldsdóttir
Guðbjörg Káradóttir og
Anna Hallin
Gerður Leifsdóttir
Þorbjörg Þorvaldsd.Búi
Kristj. Bjami Hinriksson
Guðbjörg Káradóttir og
Anna Hallin
Leirkerarennsla mánud.17:30-20:15
Leirmótun og rennsla þriðjud.17:30-20:15
Grundvallaratriði miðvikud. 18:00-22:00
I keramik
Leirrennsla morgunt. föstud. 09:00-11:45
Guöbjörg Káradóttir
Guðný Magnúsdóttir
Guðný Magnúsdóttir
og Guðbjörg Káradóttir.
Guöbjörg Káradóttir
Módelteikning mánud. 17:45-20:30 Þorbjörg Þorvaldsdóttir
Teikning 1 þriðjud. 17:30-21:30 Eygló Harðardóttir
Teikning 1 morgunt. miðvikud. 09:00-11:45 Sólveig Aðalsteinsdóttir
Teikning 1 miövikud. 17:30-21:30 Sólveig Aðalsteinsdóttir
Teikning 2 mánud. 17:30-21:30 Hilmar Guöjónsson
Portretteikning fýrir byrjendur fimmtud. 17:30-20:30 Karl Jóhann Jónsson
Módelteikn.-mótun-hreyfimynd miðvikud 17:30-20:30 Sigríður H. Hauksd.
Bókverk mánud. 17.30-21.30 Ósk Vilhjálmsdóttir
Stafræn Ijósmyndun mánud. 18:00-20.45 Brooks Walker
Svart / hvft Ijósmyndun mánud. 18:00-20.45 Erla Stefánsdóttir
Form, rými og hönnun mið. 17:30-20:30
Brynhildur Pálsdóttir, Guöfinna Mjöll Magnúsdóttir og Guja Dögg Hauksd,
Skapandi starfsvettvangur (portfolío)
þriöjud. 17:30-20:15 Ósk Vilhjálmsdóttir
Indesign/photoshop Helgarnámskeið (tfmi augl.sfðar) Magnús V.Pálsson
JL-húsinu, Hringbraut 121
og á Korpúlfsstöðum
www.myndlistaskolinn.is
BARNA- OG UNGLINGADEILD
___14 vikna námskeið fyrir 3-5 ára
námskeið fyrir 6-9 ára vetrarlöng og 14 vikna
14 vikna námskeið fyrir 8-12 ára
14 vikna námskeið fyrir ungt fólk
KERAMIKDEILD
14 vikna námskeið í leirrennslu og -mótun
TEIKNIDEILD
undirstöðugreinar sjónmennta
form/rými - bókverk - portfoiio - Ijósmyndun - indesign
MALARADEILD
I N N R I T U N
sími 551 1990
www.myndlistaskolinn.is
Steinunn H. Hafstað Fjarnám
verður vinsælla með hverju árinu
sem líður. BlaOið/Sverrir
Fjamám sívinsælt
Krefst mikils sjálfs-
aga og skipulags
KYNNING
Það er alltaf gott að líta um
öxl. Líta yfir farinn veg og spá
í hvað maður hefði viljað gera
betur eða á annan veg. Óft þegar
fólk leggst í svona sjálfskoðun
kemur það upp úr dúrnum að
fólk hefði gjarnan viljað hafa eytt
meiri tíma í að mennta sig, ljúka
stúdentsprófinu og jafnvel verða
sér úti um enn meiri menntun
í háskólum landsins. Á undan-
förnum árum hefur fjarnám
verið að sækja í sig veðrið sem
vinsæll námsvettvangur og sífellt
fleiri íslendingar sækja fjarnám
til að afla sér meiri menntunar.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla
hefur allt frá árinu 2002 boðið
upp á fjölbreytt úrval af fram-
haldsskólaáföngum í fjarnámi
og lýkur nú senn skráningu fyrir
haustönnina en umsóknarfrest-
urinn rennur út að kvöldi dags
10. september.
Stöðug aukning
Steinunn H. Hafstað, fjarnáms-
stjóri FÁ, segir að aðsóknin hafi
verið góð á undanförnum árum
og aðsóknin eykst með hverju ári.
„Nemendum fer fjölgandi. Mest hafa
verið skráðir hjá okkur um 1400 nem-
endur. Núna hafa skráð sig ríflega
1000 og þá eiga eftir að bætast við
yfir 200 grunnskólanemendur og
samt eigum við eftir að skrá fram á
mánudag.“ Fjölbrautaskólinn við Ár-
múla býður upp á fjarnám allan árs-
ins hring. Yfir sumarið er boðið upp
á átta vikna nám og Steinunn segir
að margir sem falli á vorprófum
nýti sér þann möguleika til að þurfa
ekki að sitja áfangann aftur.
íslenska 403 Qölsótt
Steinunn segir að nemendur i fjar-
námi séu á ýmsum aldri, frá fjórtán
ára aldri og upp undir sjötugt, og
hver hefur sínar eigin ástæður fyrir
því að hefja fjarnám. Þó eru sumir
hópar sem eru stærri en aðrir. „Þeir
sem hættu í skóla á sínum tíma og
vilja núna taka upp þráðinn til þess
að ljúka stúdentsprófi eru einn af
þessum stærstu hópum sem eru í
námi hjá okkur. Þá er þetta mjög
góð leið því nemendurnir þurfa
ekki að hætta alveg i vinnunni eða
flytja burt ef þeir búa úti á landi þar
sem er ekki framhaldsskóli."
Aðspurð um hvaða áfangar séu
fjölmennastir segir Steinunn að ís-
lenska og enska dragi oftast til sín
flesta nemendur. „Það eru margir
íslenskuáfangar, sérstaklega efri
áfangar eins og þrjú, fjögur og
fimm hundruð-áfangarnir, og svo
enska. Þetta eru yfirleitt fjölmenn-
ustu áfangarnir. Núna í sumar var
fjölmennasti áfanginn hjá okkur
islenska 403“ Þess má geta til gam-
ans að námsefnið í íslensku 403 er
meðal annars íslandsklukka Hall-
dórs Laxness.
Fjarnámið er erfitt
Fjarnám er mjög krefjandi nám
og þurfa námsmenn því að vera
mjög sjálfstæðir og agaðir í vinnu-
brögðum til að standa sig með
sóma. Steinunn segir að þeir sem
skipuleggi sig ekki við upphaf náms-
ins muni að öllum líkindum lenda
fljótt i vandræðum. „Þeir sem ráða
illa við að vinna upp á eigin spýtur í
námi finna það nú mjög fljótt. Þeir
fara þá i dagskóla eða skipta um gír
og endurskoða námsstíl sinn. Fjar-
nám krefst mikils sjálfsaga og skipu-
lagningar þannig að menn þurfa í
raun og veru að setja sér sina eigin
stundaskrá. Annars er hætta á að
þeir vakni upp við vondan draum
á síðustu stundu. Margir halda að
fjarnámið sé léttara, að það sé hrein-
lega hægt að kaupa sér einingar, en
það er þvílíkur misskilningur. Fjar-
námið er erfiðara og það eru flestir
sammála um það sem hafa reynt
það.“
SalsaleikfLmi fyrir konur
Fyrir konur sem elska aö dansa
Krisztina Agueada í Hreyfilandi,
Stangarhyl 7, býður upp á skemmti-
legt námskeið fyrir eldri konur sem
elska mamba, salsa og tsjatsjatsja.
„Konur sem elska að dansa og
stunda líkamsrækt sem þær hafa
ánægju af geta komið í stórskemmti-
lega salsatíma til okkar í vetur. Þetta
eru tímar fyrir allar konur og kennt
er á kvöldin. Námskeiðin eru gríðar-
lega vinsæl og hingað fáum við heilu
saumaklúbbana sem skemmta sér
stórkostlega. „Sporin eru einföld
og tónlistin yndisleg," segir Kriszt-
ina og nefnir að eróbikk-æfingar
með salsaívafi séu bara svo miklu
skemmtilegri en þær hefðbundnu.
„Þetta er afslappandi og góð hreyf-
ing í góðum félagsskap kvenna.“
Salsaleikfimi Verður
kennd í Hreyfilandi í vetur
Blaöið/Brynjar Gauti
/T
%
V\
VVÍ
KYNNING