blaðið - 07.09.2007, Side 28
28
NAMSKEIÐ
FÖSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
blaöiö
Tölvunámskeið og trúarbragðafræði
Langlífi - lífsnautnin frjóa
Tryggvi Gíslason, fyrr-
verandi skólameistari
Menntaskólans á Akur-
eyri, situr ekki auðum
höndum í vetur. Hann
mun sækja námskeið og
halda námskeið og segist
munu læra svo lengi sem
hann lifir.
Eftir Kristjönu Guðbrandsdóttur
dista@bladid.net
„Ég ætla nú að sækja tölvunám-
skeið hjá Apple-umboðinu því ég
hef notað slíka tölvu um árabil og
þarf að kunna meira en ég kann.
Þó að ég hafi notað tölvu í 25 ár er
alltaf hægt að læra meira,“ segir
Tryggvi Gíslason, magister og fyrr-
verandi skólameistari Menntaskól-
ans á Akureyri. „Vafalaust sæki ég
námskeið af einhverju tagi í allan
vetur. Ég mun koma til með að
sækja námskeið í Háskóla íslands
í heimspekideild og guðfræðideild
að nema trúarbragðasögu og tákn-
fræði. Ég er að skrifa svolítið um
Völuspá og tengi Völuspá kristinni
trúarheimspeki. Svoleiðis að ég þarf
að sækja hjá dr. Pétri Péturssyni
vini mínum námskeið og fyrirlestra
í trúarbragðafræðum og hlakka
mikið til. Eg mun síðan starfa með
Ástu Kristrúnu Ragnarsdóttur að
fyrirlestrum um Auð efri ára í vetur.
Þetta námskeið hennar eða okkar
verður líka í Háskólanum í Reykja-
vík og svo kann að vera að ég flytji
einhvers staðar fyrirlestur um Völu-
spá. Ég var með slíkt námskeið á
umræðugrundvelli í Endurmennt-
unarstofnun fyrir um þremur árum.
Þangað koma grúskararnir og þar
verða lifandi umræður.“
Tryggvi segist læra svo lengi sem
hann lifir. „Ég sótti skemmtilegt
námskeið í fyrra sem hét: „Er ellin
úrelt? “ ogþar voru margir góðir fyrir-
lesarar. Einn af þeim var eistneskur
gyðingur sem lærði í Moskvu og er
prófessor í New York. Hann flutti
þarna frábæran fyrirlestur um það
að ellin er úrelt. Innihaldið snerist
um; ef þú vilt halda þér vakandi, þá
geturðu vakað lengi þótt auðvitað
skipti heilsan máli. Þetta er að
mestu spurning um áhuga. Lang-
lífi segir Jónas Hallgrímsson að sé
lífsnautnin frjóa. Það er að segja að
hafa áhuga á lífinu. Jónas var orð-
hagari en allir menn aðrir.“
btttttt Iff. Botto III
tMn-lMk
IIRAW
Hi iMÍncssWtx'k
Women
Entfopreneurs
liusitiessWcek
The
Welcli Way
10
SKY
NEWS
mbl.is
HLAÐVARP
VIDEO
PODCASTS
Viltu fá sjónvarp og útvarp í iPod* og tölvuna þína?
Hlaövarpssíða mbl.ls opnar þér leift að
útvarps- og sjónvarpsefnl sem hægt er horfa á (tölvunnl
efia taka mefi í IPod efia afirar tónhlöfiur.
Með Hlaðvarpi ert þú þinn eigin dagskrárstjóri
og úrvalið er nánast óendanlegt. Það sem betra er,
Hlaðvarþið kostar ekkert og er öllum opið sem hafa aðgang að netinu.
Það eru fleiri möguleikar í Hlaðvarpi.
Á vinsælasta vefsvæði landslns geta nú allir framleitt slna eigin
útvarps- og sjónvarpsþætti. Það eina sem þarf til er áhugi og frumkvæði.
Kynntu þér Hlaðvarp mbl.is og horfðu á það sem þú vilt,
þegar þú vilt... þar sem þú vilt.
Bloggumræða um Hlaðvarp / Podcast er á; hladvarp.blog.ls
ú
Apple IMC
POD
Hlaðvarp Llttu eftir þessu merki á torslðu mbl.is
mbl.is
'Hlaðvarp mbl.ls er bæöl fyrlr MAC og PC stýrlkerfl og fyrlr flestar tölvur og tónhlöður/mp3 spllara
102 ára
skólabarn
Það er aldrei of seint að byrja að
læra en þó fannst hinni 102 ára
gömlu Stephaniu Marien illa
að sér vegið þegar henni var til-
kynnt með bréfi að nú mætti hún
fara að undirbúa skólagöngu sína.
Marien, sem býr í Sint-Katelijne
Waver í Belgíu, hafði umsvifa-
laust samband við skólayfir-
völd og benti á þessi hvimleiðu
mistök. „Ég hef nú heyrt talað
um að ganga í barndóm en það
kom mér samt á óvart að fá þetta
bréf sem sagði að ég ætti að fara
að undirbúa mig fyrir skólann.“
Skólayfirvöld á svæðinu hafa nú
játað mistök sín og beðist afsök-
unar. Stephania hefur hins vegar
ekki áhuga á því að setjast aftur
á skólabekk. „Ég fékk nóg af
skólanum þegar ég var þar síðast
og ég hef engan áhuga á að endur-
taka það,“ sagði hin úrilla ekkja í
samtali við belgíska fjölmiðla.
Æfðu ítölskuna
á Netinu
Á bresku vefsíðunni www. bbc.
co.uk/languages má fikra sig
áfram í námi á byrjendastigi í
hinum ýmsu tungumálum. Þar
má finna orðasöfn, talæfingar
og léttar málfræðiæfingar sem
skemmtilegt er að spreyta sig á
með aðstoð nýjustu nettækni.
Tungumálin eru fjölmörg,
franska, ítalska, þýska, kínverska,
gríska og portúgalska. Margir
vilja kynnast tungumáli þeirra
þjóða sem þeir heimsækja á
ferðalögum sínum og á vef www.
bbc.co.uk er mögulegt að hlaða al-
gengum orðatiltækjum og orðum
á MP3-spilara áðuren haldið er
til framandi lands. Að lokum má
ætíð reyna á kunnáttuna með því
að reyna að iesa fréttir af þessum
víðfræga fréttavef á því tungu-
máli sem numið er en bbc.co.uk
birtir fréttir á 33 af tungumálum
heimsins.
dista@bladid.net