blaðið - 07.09.2007, Blaðsíða 36
FOSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
blaóiö
LÍFSSTÍLLHELGIN
helgin@bladid.net
Það verður paramarkaður fyrir staka sokka. Það eru
allir hvattir til að taka stöku sokkana sem leynast
víða í skúffum og skápum, koma með þá með sér og
athuga hvort þeir f inni ekki einhvern sem gengur við þá.
UM HELGINA
v.
f
• Ókeypis Hjálmar
Reggíhljómsveitin Hjálmar
leikur og syngur á skemmti-
staðnum Nasa við Austurvöll í
kvöld. Húsið verður opnað á mið-
nætti og er aðgangur ókeypis en
aldurstakmark 20 ár.
• Hipphoppveisla
Efnt verður til dansveislu á
skemmtistaðnum Organ á
laugardaginn í tilefni af þvi að
vefsíðan hiphop.is hefur gengið
í endurnýjun lífdaga. Margir
helstu rapptónlistarmenn lands-
ins koma fram.
• Greifarnir á Players
Hin sívinsæla hljómsveit
Greifarnir heldur uppi stuði á
skemmtistaðnum Players í Kópa-
vogi i kvöld.
• Rockstar-hetjur á Gauknum
Magni og Á móti sól halda uppi
fjörinu á Gauki á Stöng á laug-
ardagskvöld. Þeim til halds og
trausts er Rockstar Supernova-
hetjan Josh Logan. Húsið verður
opnað kl. 22 og er aðgangseyrir
1000 kr.
• Gleði og tregi
Hljómsveitirnar Flökkurónarnir,
Johnny and the Rest og Touch
leika blússkotna gleðitónlist á
Gauki á Stöng í kvöld. Húsið
verður opnað kl. 22 og er að-
gangseyrir 500 krónur.
• Kennslustund í Tímaþjófi
Alda Björk Valdimarsdóttir
bókmenntafræðingur verður
með opna kennslustund í skáld-
sögunni Tímaþjófnum eftir
Steinunni Sigurðardóttur á sal
Menntaskólans í Reykjavík á
laugardag kl. 16. Aðgangur er
ókeypis og eru allir velkomnir.
• Sungið fyrir mömmu
„Fyrir rnömmu" er yfirskrift
tónleika sem haldnir verða í
Iþróttahöllinni
á Akureyri
sunnudaginn
9. september
kl. 16. Kristján
* Jóhannsson
óperusöngvari
verður þar í aðalhlutverki en
ásamt honum koma fram Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands og
gestasöngvarar.
• Rússnesk söngkona I
Salnum
Rússneska messósópransöng-
konan Irina Romishevskaya
heldur tónleika ásamt Jónasi
Ingimundarsyni í Salnum í Kópa-
vogi í kvöld kl. 20.
• I skugga Griegs
Harald Björköy tenórsöngvari
og Selma Guðmundsdóttir pí-
anóleikari flytja sönglög eftir Ed-
vard Grieg og sporgöngumenn
hans á tónleikum í Norræna
húsinu á laugardag kl. 16.
LÁTTU VITA
Hringdu ( síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
rinTnMf~~ Mirm—~\
Heimsmet í sippi Grafarvogsbúar
reyndu að setja heimsmet í sippi á £
Grafarvogsdeginum fyrir tveimur árum. B
Það mistókst. Núna stefna þeir á að
ýma einstæðum sokkum í hverfinu. §
isesík í.
Grafarvogsdagurinn haldinn hátíðlegur
Grafarvogsbúar
skemmta hver öðrum
Grafarvogsbúar stefna
á að útrýma stökum
sokkum og bjóða upp á
heimalöguð skemmtiat-
riði á Grafarvogsdeginum
á morgun.
Eftir Einar Örn Jónsson
einar.jonsson@bladid.net
Grafarvogsbúar gera sér glaðan
dag á morgun þegar hinn árlegi Graf-
arvogsdagur verður haldinn hátíð-
legur. Hátíðarhöldin fara að mestu
leyti fram í og við Hamraskóla að
þessu sinni og á dagskránni er bæði
að finna fasta liði og nýjungar. Að
venju er mikil áhersla lögð á heima-
löguð atriði. „I rauninni er nánast
allt sem i boði er á Grafarvogsdag-
inn heimatilbúið. Frá upphafi hefur
dagurinn snúist um að Grafarvogs-
búarskemmti Grafarvogsbúum. Það
er fullt af fínu fólki sem býr hérna
og það er yfirleitt mjög tilbúið til að
taka þátt í þessum degi með okkur
segir Hera Hallbera Björnsdóttir
sem hefur farið fyrir undirbúnings-
nefnd Grafarvogsdagsins.
Opnar vinnustofur listamanna
Sem dæmi má nefna að lista-
menn sem eru með aðstöðu á Korp-
úlfsstöðum opna vinnustofur sínar
almenningi milli kl. 11 og 13. „Korp-
GRAFARVOGSDAGURINN
Dagurinn var fyrst haldinn
haustið 1998.
Aðalhátíðarhöldin fara fram
á nýjum stað í hverfinu á
hverju ári.
Þema dagsins að þessu
sinni er „Fjölskyldan og
frístundir".
úlfsstaðir verða alveg iðandi af lífi
á laugardagsmorgun. Að öllu jöfnu
eru listamennirnir ekki með vinnu-
stofurnar sínar opnar fyrir almenn-
ingi þannig að fólki gefst tækifæri
til að kíkja aðeins á bak við tjöldin.
Það er ekki á hverjum degi sem
manni býðst að koma inn á vinnu-
stofur listamanna og sjá hvað þeir
eru að gera,“ segir Hera og bætir við
að jafnframt verði Myndlistarskól-
inn með opið hús á Korpúlfsstöðum
sem og Korpúlfar sem eru samtök
eldri borgara í Grafarvogi.
Stökum sokkum útrýmt
Grafarvogur er tiltölulega ungt
hverfi og segir Hera að Grafarvogs-
dagurinn hafi því mikið gildi og
þjappi íbúum saman. Það er því
ekki undarlegt að mikið sé lagt upp
úr því sem Hera kallar samstöðu-
verkefni í dagskránni.
„í hittifyrra var reynt að setja
heimsmet í sippi. Það tókst reyndar
ekki en það mátti reyna. Við reynum
sjálfsagt við það aftur síðar,“ segir
Hera. Samstöðuverkefni morgun-
dagsins er ekki síður metnaðarfullt.
„Núna ætlum við að útrýma
stökum sokkum í hverfinu. Það
verður paramarkaður fyrir staka
sokka. Það eru allir hvattir til að
taka stöku sokkana sem leynast
víða í skúffum og skápum, koma
með þá með sér og athuga hvort þeir
finni ekki einhvern sem gengur við
þá. Ef þeir finna hann ekki geta þeir
sett sinn í púkkið þannig að næsti
maður geti hugsanlega fundið einn
á móti sínum,“ segir Hera og bætir
við að hún hafi fengið þessa óvenju-
legu hugmynd að láni.
„Þetta var gert á Borgfirðingahá-
tíð fyrir nokkrum árum og lukkað-
ist svona ljómandi vel. Borgnesingar
streymdu að með stöku sokkana
sína þannig að okkur í undirbún-
ingsnefndinni datt í hug að það
væri kominn tími til að tékka á því
hver staðan væri í Grafarvogi með
stöku sokkana,“ segir Hera sem
vonast eftir góðum viðtökum ná-
granna sinna. „Fólki finnst þetta
að minnsta kosti góð hugmynd en
viðtökurnar koma í Ijós á laugardag-
inn,“ segir hún.
Fyrirtækjaglíma
Af öðrum dagskrárliðum má
nefna Grafarvogsglímuna sem
Hera segir að sé orðin heilög hefð
á Grafarvogsdegi. „Þetta er nátt-
úrlega ekki glíma í orðsins fyllstu
merkingu. Við förum ekki í belti og
tökum danssporin. Þetta er keppni
í óhefðbundnum íþróttagreinum
milli fyrirtækja og stofnana í hverf-
inu,“ segir Hera. Meðal annars hafa
menn keppt í því hver væri fljót-
astur að þræða nál með vettlinga
á höndum og álíka þrautum sem
reyna á fimi og útsjónarsemi frekar
en líkamlegt atgervi.
„Þetta er meira grín og þannig upp-
byggt að það eiga allir sem vilja að
geta tekið þátt. Þú þarft ekki að vera
með íþróttamann í fremstu röð á
þínum snærum til að geta verið
með,“ segir Hera.
Þá verður að venju efnt til sögu-
göngu í hverfinu á morgun og að
þessu sinni fræðir Einar Birnir
göngumenn um voginn. Gangan
hefst við Hamraskóla kl. 11 og lýkur
á sama stað um tveimur tímum
síðar. „Þessar sögugöngur hafa
verið mjög vel heppnaðar undafarin
ár. Þó að þetta sé nýtt íbúðahverfi
er saga svæðisins mikil og það eru
margir sem gera sér ekki grein fyrir
því,“ segir Hera að lokum.
Dagskrá Grafarvogsdagsins má
nálgast í heild sinni á vefsíðunni
grafarvogur.is.
Nonni í máli og myndum
Bækur rithöfundarins og jesúíta-
prestsins Jóns Sveinssonar, Nonna,
njóta enn talsverðra vinsælda bæði
hér á landi og erlendis. Bækur hans
hafa verið þýddar á ótal tungumál
og óhætt er að segja að verk fárra ís-
lenskra rithöfunda hafi náð jafnmik-
illi útbreiðslu og verk Nonna.
Á þessu ári eru 150 ár liðin frá fæð-
ingu rithöfundarins en hann fæddist
þann 16. nóvember árið 1857. Af því
tilefni mun Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Islands, opna sýninguna
,Pater Jón Sveinsson - en kallaðu
mig Nonna“ í Þjóðarbókhlöðunni á
morgun, laugardag, kl. 14.
Sýningin fjallar um merkilegt
lífshlaup Jóns Sveinssonar í máli og
myndum. Konur í Zontaklúbbi Ak-
ureyrar sem reka Nonnahús á Akur-
eyri höfðu veg og vanda af gerð sýn-
ingarinnar. Á þessu ári eru einmitt
50 ár frá því að þær opnuðu Nonna-
hús á Akureyri formlega. Húsið var
opnað á afmælisdegi rithöfundarins
árið 1957 og í því hefur verið rekið
safn sem er tileinkað honum.
Sýningin í Þjóðarbókhlöðunni er
sett upp i samvinnu við þjóðdeild
Landsbókasafns íslands - Háskóla-
bókasafns og stendur til 6. október.
Sýningin verður einnig sett upp á
Amtsbókasafninu á Akureyri og í
Köln í Þýskalandi síðast á árinu en
þar í landi hefur Nonni alltaf átt
stóran hóp aðdáenda.
Úr Nonnahúsi Sýning tileinkuð lífi og
störfum Jóns Sveinssonar verður opn-
uð í Þjóðarbókhlöðunni á morgun.