blaðið - 07.09.2007, Page 47
- LANDVELAR -o,.cm
BLOGGARINN...
Guð skapaði
húmorinn
Kristnir menn geta eiginlega ekki veriö
húmorslausir þótt ábyggilega megi benda
á undantekningar frá þeirri reglu. Góð
rök hafa verið færð fyrirþviað Guð hljóti
að hafa skapað húmorinn (meira um það
síöar). Sé allt hendingum háð er tilveran i
eðli sínu húmorslaus. Tilviljunin hefuP ekk-
ert skopskyn. Þá rikir ekkert nema isköld
alvaran, krakkar mínir.
Svavar Alfreð Jónsson
www.svavaralfred.blog.is
Blikandi
stjarna
I gær var mér tjáð að ég gæti sleppt
þvíað vera bjartsýn á tilraunir minar til
að eignast Kommúnistaávarpið. Það er
nefnilega uppselt hjá útgefanda. Er ekki
alveg óhætt að fullyrða að Kommúnista-
ávarpið sé greinilega að rokseljast íkjölfar
nýrrar samsetningar ríkisstjórnarinnar? I
sérhverju svartnætti leynist alltaf blikandi
stjarna...
Steinunn Rögnvaldsdóttir
www.kommunan.is/steinunn
HÁÞRÝSTIÞVOTTADÆLUR
og annafl það sem til þarf.....
Fyrir fagmanninn og í bílskúrinn
90 - 500 bar, 7-35 |/mfn
Ein fasa og þriggja fasa
Bensín- eða glussa drifnar
Háþrýstislöngur og fíttings
Spíssar og framlengingar
Hvirfllspfssar (túrbó)
Vinstrimaður-
inn Geir
Forsætisráöherra Geir H. Haarde lét þau
ummæli falla í sjónvarpsviðtali ígærkvöldi
að vinir sínir i Framsókn væru helst til
orðnir of vinstrisinnaðir, en færði fyrir þvi
engin nánari rök. En mætti ekki heimfæra
þessa fullyrðingu á Geir sjálfan? Geir H.
Haarde stóð nefnilega til boða i vor að
mynda hérsterka borgaralega rikisstjóm
með Framsókn og Frjálslyndum en hafn-
aði því. Þar gafst honum einstakt tækifæri
að brjóta blað iislenzkri stjómmálasögu
og skapa tvær fylkingar (stjórnmálum á
Islandi til frambúðar.
Guðmundur Jónas Kristjánsson
www.zumann.blog.is
Smiöjuvegi 66 - 200 Kópavogur
F*e E<* View Bookmwfcs Wrfgets Toob HeJp
http://www.landvelar.is
"... v i?R að imeL"
STRAUMRAS
Furuvellir 3 - 600 Akureyri - S. 461 2288
straumras@straumras.is
blaóiö
FOSTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2007
Tinna Hrafnsdóttir leikkona
Nýtt andlit í söngleiknum Abbababb
Söngleikurinn Abbababb eftir Dr.
Gunna, í leikstjórn Maríu Reyndal,
kemur aftur í Hafnarfjarðarleik-
húsið og verður fyrsta sýning hausts-
insnæstkomandisunnudagklukkan
14. Nokkrar breytingar verða gerðar
á leikhópnum í haust, og meðal ann-
ars tekur Tinna Hrafnsdóttir við
hlutverki Höllu af Álfrúnu Helgu
Örnólfsdóttur sem fer í barneignar-
frí. Tinna segist hlakka mikið til að
takast á við hlutverkið. „Ég var búin
að sjá þennan söngleik tvisvar áður
en ég fór að æfa hlutverkið og hafði
verulega gaman af. Þetta er stór-
skemmtileg sýning. Vissulega er
þetta barnaleikrit en sýningin virð-
ist höfða ekki síður til fullorðinna.
Höfundurinn, Dr. Gunni, er mikill
snillingur og hefur glettinn húmor,“
segir hún.
Hvernig hefur þér gengið að setja
þig inn i hlutverkið?
„Mjög vel. Það er náttúrlega mjög
misjafnt hversu krefjandi það er að
setja sig inn i hlutverk sem aðrir
hafa farið með áður. I þessu tilfelli
er þetta eitt þriggja aðalhlutverk-
anna auk þess sem mikið er um
dansa og söngva í verkinu. En það
gerir þetta bara skemmtilegra.“
Söngleikurinn Abbababb er síður
en svo fyrsta barnasýningin sém
Tinna hefur leikið í. „Ég hef áður
verið í nokkrum barnasýningum.
Ég var í Benedikt Búálfi á sínum
tíma í Loftkastalanum, Grease í
Borgarleikhúsinu og Ávaxtakörf-
unni í Austurbæ svo fáein dæmi
séu nefnd. Börn eru frábærir áhorf-
endur vegna þess að þau eru svo
skemmtilega hreinskilin. Ef þeim
líkar ekki það sem þau sjá láta þau
það alveg í ljós en ef þau eru ánægð
verða þau svo ofsalega þakklát. Það
er því eins gott að standa sig,“ segir
Tinna.
Hversu lengi verður Abbababb
sýnt í vetur?
„Það ræðst fyrst og fremst af eft-
irspurn. Fjöldi sýninga fer eftir að-
sóngleik
Þaó
að
margt
gerast
Tinnu
þessa dagana
sókn og því hvet ég fólk til að halda
áfram að hópast á sýninguna. Þessi
sýning hefur alla burði til að lifa
lengi,“ segir Tinna að lokum.