Orðlaus


Orðlaus - 30.09.2004, Síða 6

Orðlaus - 30.09.2004, Síða 6
Hverju leitar þú helst að í fari kvenna? Hlýju, útgeislun og jákvæðni... Hvað er það sem fer mest í taugarnar á þér í sambandi við konur? Sömu hlutir og fara í taugarnar á mér hjá sjálfum mér, það er þröngsýni, dómharka og stjórnsemi. En ég reyni að einbeita mér að því sem fer ekki í taugarnar á mér... Ef þú fengir að vera kona í einn dag hver myndir þú vera og af hverju? Ég væri til í að prófa að vera Snæfríður Sól dóttir mín og fá að sjá lífið i gegnum augun hennar. Hvert er átrúnaðargoðið þitt? Ég gæti til dæmis sagt Bono, því hann er frábær söngvari og tónlistarmaður, og svo er hann líka að nýta sér vald sitt sem „seleb" til þess að breyta heiminum til hins betra. Svo er hann líka geðveikt flottur á sviði... stærri en nokkur annar. Hver er uppáhalds íþróttagreinin þín? Golf, engin spurning! Hver er besti maturinn sem þú hefur smakkað? Ætli það sé ekki jafntefli hjá jólarjúpunum hennar mömmu og BBQ-spare-ribs sem ég geri sjálfur. Er eitthvað sem þú skilur ekki í sambandi við konur? Já það er ansi margt...til dæmis þetta með skóna...hversu mörg skópör getur ein kona átt? Við hvað myndir þú helst vilja vinna? Ég valdi mér nú eiginlega það starf sem mig langaði helst til að vinna við, ég væri líka til í að vera kvikmyndagerðarmaður og tónlistarmaður...þá geri ég það bara... Hvar myndir þú helst vilja búa og af hverju? Ég er nú bara ánægður með Reykjavík, en ég væri til í að búa í London eða París, það eru æðislegar borgir og mikið að gerast. Einnig væri ég til í að búa tímabundið inn á einhverjum glæsilegum golfvelli í Flórída. Ef þú mættir breyta einhverju í heiminum, hverju myndir þú breyta? Ég myndi vilja að þeir sem eiga í erjum í heiminum myndu stoppa aðeins og hlusta í alvöru á hinn aðilann, og setja sig í spor hans...og myndu svo í framhaldi af því reyna að finna út lausn á vandamálum sínum sem báðir aðilar gætu sætt sig við, ekki bara sá sterkari sem neyðir hinn undir sína lausn... það er engin lausn! Það væri mjög góð byrjun að byrja að hlusta hvor á annan, og vera óhræddur við að fyrirgefa hinum aðilanum. Hefur þú einhvern tímann svikið mikilvægt loforð? Já...því miður... Hvað er klám fyrir þér? Ofbeldi og stríð. Hvað er á döfinni? Ég er að leika spastískan mann með blettaskalla í kvikmyndinni Bjólfskviðu, svo er ég að skrifa og leika í nýrri viðbót við eldra jóladagatal Ríkissjónvarpsins, og er að fara að frumsýna nýtt leikrit í Borgarleikhúsinu, Héra Hérason, auk þess að vera að leika í þremur leikritum frá síðasta vetri (Chicago, Línu Langsokki og Belgísku Kongó)...þannig að mér leiðist ekki þessa dagana... Mvnd: Atli FAÐIRVORertryllingslegafyndintragfkómedía sem fjallar um samband þriggja systra við föður sinn. Verkið er leikið af þeim Arndísi Hrönn, Elmu Lísu og Þrúði en þær léku síðast saman í "BEYGLUR MEÐ ÖLLU". Hjálmar Hjálmarsson bættist síðan í hópinn sem faðirinn. Agnar Jón Egilsson er leikstjóri en hann var að leikstýra þáttunum í sumar sem Baltasar framleiddi fyrir stöð tvö og var aðstoðarleikstjóri í Þetta er allt að koma. Við hittum Elmu Lísu og fengum hana til að segja okkur aðeins betur frá leikritinu. Um Hvað er leikritið? Leikritið fjallar um flækt og flókin mannleg samskipti. Faðirinn, Tómas Erlingsson, er margverðlaunaður kvikmyndagerðarmaður. Hann á dæturnar Rebekku sem er með BA í frönsku og Rut vídjólistakonu með konu sinni Bertu Bjarnason Erlingsson verðlaunaarkitekt. Allt líf systranna hefur meira og minna litast af frægð föðurins og verkum hans. Faðirinn deyr mjög snemma í verkinu og þær fara að rifja upp allskonar hluti og þegar lítt þekkt hálfsystir þeirra Rakel, sem hann eignaðist í framhjáhaldi og hefur aldrei viljað viðurkenna, slær óvænt i gegn með skáldsögu sinni "The Lost Father" er eins og líf þeirra allra fari úr skorðum. Þetta er svona systradrama beint upp úr samtímanum þar sem margar furðulegar og fyndnar persónur koma við sögu. Hvernig myndirðu lýsa systrunum? RebekkasemÞrúðurleikurerbrjálæðislegastjórnsöm og meðvirk. Allt á að vera fullkomið á yfirborðinu Frumsýning verður í Iðnó 23. október. en síðan er allt í rugli undir niðri, maðurinn að halda framhjá henni og börnin í tómu tjóni. Rakel/Arndís Hrönn, miðsystirin er síðan eiginlega venjulegust af þeim. Hún er búin að skrifa metsölubókina um týnda föðurinn, fræg líkt og pabbi þeirra sem gerir hinar systurnar er svolitið afbrýðissamar út í hana. Hverju eru þið að vonast eftir að sýningagestir fái út úr sýningunni? Þetta er grátbroslegt, fyndið en jafnframt sorglegt og kaldhæðið. Fólk á eftir að geta speglað sig í mörgum af þessum karakterum og ef ekki þá getur það allavega hlegið að þeim. Þetta verk er mjög ólíkt því sem við vorum að gera síðast í Beyglunum. Við erum að reyna að fara þá leið að gera þetta mjög sanna karaktera og ég held að það geti allir fundið sig í þessum persónum á einhvern hátt. Er þessi sýning frábrugðin öðrum? Hún er náttúrulega frábrugðin öðrum sýningum að þvt leyti að þetta er nýtt íslenskt samtímaverk sem er ekki oft á fjölunum í íslensku leikhúsi. Það er sjálfstæður leikhópur sem að sýningunni stendur og verkið er skrifað í samvinnu við okkur. Síðan er útfærslan þannig að við leikum niður á gólfinu og það er setið allt í kringum okkur. Við leikum líka öll marga karaktera sem er mjög mikil áskorun fyrir okkur þar sem við förum aldrei út af sviðinu en þurfum stöðugt að vera að skipta um karaktera. Jóhann Freyr danshöfundur vinnur náið með okkur í hreyfingum og útfærslum á skiptingum þar sem við geturm ekki farið út af sviðinu. Hann hjálpar okkur með hreyfingarnar og að koma okkur úr einu hlutverki í annað. -HBS-

x

Orðlaus

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.