Orðlaus - 30.09.2004, Qupperneq 8
4
Hversu oft gerir þú eitthvað fyrir kærastann þinn eins
og til dæmis að gefa honum rakspíra að tilefnislausu?
a) Þú gerir eitthvað fyrir hann þegar þú hefur gert eitthvað af þér...
með öðrum orðum, aldrei að tilefnislausu.
b) Þú ert mikið fyrir að gefa gjafir og koma honum á óvart.
Örugglega svona einu sinni í viku.
c) Þú gefur honum af og til, nokkrum sinnum á ári.
Kærastinn þinn er að fara í strákapartý. Þú...
a) ert ekkert smá hress með það því þá getur þú hitt vinkonur þínar.
b) ferð í fýlu af því hann vill ekki vera með þér.
c) ferð með honum! Það kemur ekkert annað til greina.
d) segir ekki neitt en það sést langar leiðir að þú ert fúl.
Þú ert síðan í stöðugu sms og símasambandi við hann allt kvöldið...
Þegar kærastinn þinn er veikur...
a) heldur allt áfram sinn vanagang. Þú ferð í vinnu og kemur heim
en ert heima um kvöldið því hann er veikur.
b) þá ferðu út í apótek og út í búð fyrir hann, leigir videó og eldar
það sem hann langar í. Þú hugsar mjög vel um hann.
c) þá held ég mér í fjarlægð til þess að ég smitist alveg
örugglega ekki!
Kærastinn þinn elskar að horfa á fótbolta en ekki þú.
Þegar hann vill horfa á boltann á sunnudögum þá...
a) ferðu alltaf að ryksuga eða þrífa beint fyrir framan skjáinn.
b) sestu niður með honum og nýtur þess að gera eitthvað með
honum sem hann hefur gaman af.
c) rekur þú hann út á fótboltabar til að horfa á boltann.
d) gerir þú samning við hann... hann fær að horfa á boltann með
strákunum og þú á „Sex in the city" með stelpunum.
Þú ert á djamminu og sérð sætan strák sem er
greinilega að horfa á þig. Hvað gerir þú?
a) Heldur þig í fjarlægð frá þessum strák.
b) Spjallar við hann en segir honum strax að þú sért á föstu.
c) Daðrar við hann og lætur hann ekki vita af kærastanum þínum.
d) Þú heldur framhjá.
Hvað ætlast þú til að kærastinn geri mikið af
heimilisstörfunum?
a) Öll heimilisstörfin.
b) 75%
c) 50%
d) 25%
e) Að hann geri engin húsverk.
Þér finnst kærasti þinn ekki klæða sig í flott föt, þú...
a) ert alltaf að gefa honum ný föt til þess að hann klæði sig eins og
þú vilt.
b) hugsar ekki um það. Það skiptir þig engu máli hvernig hann
klæðir sig.
c) ert alltaf að láta hann vita af því að þér finnist hann ekki nógu
fínn í tauinu.
d) minnist á það af og til en hlærð bara að þessu... þú reynir ekki
að breyta honum.
Hefur þú haldið framhjá kærastanum þínum?
a) Já og farið alla leið.
b) Já, en það var bara koss.
c) Já og oftar enn einu sinni.
d) Nei.
Kærastinn þinn gleymir símanum sínum heima.
a) Aha! loksins getur þú skoðað öll SMS-in hans og símaskrána.
b) Þú ferð með símann í vinnuna til hans.
c) Þegar þú sérð það hlakkar í þér því að þú veist að hann á eftir
vc að sakna hans.
d) Þér finnst það ömurlegt af því þá getur þú ekki náð í hann.
Eru margir hlutir sem þú vilt breyta í fari kærasta
þíns?
a) Nei, engir hlutir.
b) Já, það eru svona þúsund hlutir sem fara í taugarnar á þér.
c) Já, einhverjir en það eru ekki hlutir sem skipta máli.
10-16 stig.
Þú ert yndísleg kærasta og
kærastinn þinn er eflaust
hæst ánægður með þig, en
það eru til takmörk fyrir
öllu. Þú verður að passa þig
á því að hugsa bara um hann
og ekkert um sjálfa þig. Það
getur allt gerst og þá er
ekki gaman að hafa lagt allt
undir á rangan hest. Það er
lika ekki óhugsandi að þú
verðir að sjálfsögðum hlut
þar sem þú ert alltaf tilbúin
til að fórna þér fyrir hann.
Farðu út með vinkonum
þinum, þær hafa eflaust
legið á hakanum of lengi,
mundu að kærastar koma
og fara en vinir eru komnir
til að vera. Hugsaðu um þig
og þín áhugamál og reyndu
að deila því jafnt niður á
þig og kærastannva.
17-24 stig.
Þú ert kannski ekkert
besta kærasta i heimi en
það er líka bara gott. Þú
nennir ekkert að láta allt
lifið þitt snúast um hann
og hans þarfir enda er það
ekki góður grundvöllur
fyrir sambandi. Þú sérð
hlutina eins og þeir eru og
ert tilbúin til og langar að
leggja þig fram við að gera
honum til hæfis en þó innan
skynsamlegra marka og án
efa ertu að fá jafn mikið til
baka frá honum, eða það er
vonandi!
25-31 stig.
Þú ert eflaust ekki mjög
hamingjusöm og sambandið
kannski orðið hálf úrelt. Allt
sem þér fannst æðislegt
fyrst er farið að fjara út
og eftir stendur frekar
leiðinlegur kærasti sem
þig langar til að breyta.
Þetta gerist í mörgum
samböndum, fyrst er fólk
yfir sig ástfangið og lokar
augunum fyrir þvi sem það
vill ekki sjá en það gengur
ekki að eilífu og það er sárt
að þurfa að opna augun.
Það er ekkert verra en að
vera í þreyttu sambandi,
það er bara annaðhvort
að þið hættið saman eða
þá að þú/þið sættið ykkur
við hvort annað eins og
þið eruð! Annars ertu bara
að fara að enda sem súra
kærastan...
32-38 stig.
Annað hvort ertu ekki
ástfangin eða þá að þú
kannt ekki að meðhöndla
fólkið sem stendur þér
næst. Til hvers að vera í
sambandi með manneskju
sem þú hefur ekki minnstan
áhuga á að vera góð við eða
gera hluti fyrir. Þú ættir
heldur betur að endurskoða
sambandið þitt eða fara í
alvarlega sjálfsskoðun, það
getur náttúrulega verið
að ástæðan fyrir því að þú
hegðir þér svona sé einnig
honum að kenna. Sambönd
snúast um að tveir aðilar
deili lifinu sinu saman en
til þess að það gangi upp
þurfa báðir aðilar að hafa
löngun til þess að gera
sáttamiðlanir og löngun
til þess að fórna sér upp
að vissu marki. Ef að báðir
aðilar gangast undir þessi
skilyrði þá ætti sambandið
að ganga.