Orðlaus - 30.09.2004, Síða 14
K r i s t u r
Því eldri sem ég verð, þvi sannfærðari verð ég um að trúarbrögð séu óþarfi. Og ekki bara óþarfi,
heldur einn mesti ógnvaldur heimsfriðar í dag.
Þeir sem láta trúarbrögð stjórna lífi sínu vilja trúa því að allt sem er fallegt sé gert í þeirra nafni.
En eins og staðan er í dag, er staðreyndin akkúrat þveröfug. í dag eru trúarbrögð aðallega notuð
sem hlífiskjöldur fyrir illvirki. Þannig hefur það kannski alltaf verið? Ég hefði að minnsta kosti
líklegast verið brenndur á báli fyrir 400 árum fyrir að skrifa grein eins og þessa. Ekki vegna þess
að guð vildi það, heldur vegna þess að sú hugmyndafræði myndi ógna þeim sem vilja stjórna.
Nafn Jesú Krists er í dag notað til þess að réttlæta græðgi. í Mið-Austurlöndum spilar ásjóna
Jesú Krists svipað hlutverk og sjóræningjafáni. Heittrúaðir múslimar, langþreyttir á stöðugum
krossferðum vesturlandabúa síðustu þúsund ár eða svo, sjá sig tilneydda til þess að ráðast á
vestræna óargadýrið innan frá, eins og vírus. Halda því þannig skjálfandi af hræðslu. Þegar
lifandi verur verða hræddar um líf sitt er stutt í ofbeldi. Undarlegt hvernig trúarbrögð, sem eiga
að vera friðsæl í eðli sínu, geta hrint af stað svona miklu hatri. Ástæðan fyrir þessum árekstrum
eru mennirnir, ekki trúarskoðanir þeirra. Þarna eru veikar og skaðlegar mannskepnur á ferð sem
reyna í blindni að troða trúarsannfæringu sinni upp á aðra. Hvað varð um að bjóða hina kinnina?
í stað þess að gera það, ákváð hrædda óargadýrið frekar að rífa hálft andlitið af ógnvaldi sínum.
All is full of love? Nei, Björk... ekki alveg ennþá. Það eru nefnilega trúarbrögð í tafli. Það ætti
að banna trúboð með lögum. Ef þú aðhyllist trúarbrögð, gott og blessað, en vinsamlegast haltu
þeim fyrir sjálfa þig nema að fólk leiti til þín.
Maurabúið Jörð
Segjum sem svo að þessi greinaskrif mín verði til þess
að þið sjáið öll Ijósið og trúarbrögð verði lögð niður
í þynnkunni næsta sunnudag. Það þýðir ekki að það
sé ekki pláss fyrir guð lengur. Hann sér áfram um
sína. Hann þarf ekki mannúldin trúarbrögð, sem eru
komin langt yfir síðasta söludag, til þess að starfa.
Hann var löngu byrjaður áður en við þróuðum með
okkur nægilega mikið vit til þess að byrja að hugsa
fyrir hann.
Hafið þið einhvern tímann
séð og fylgst með maurum?
Eða kynnt ykkur hvernig
býflugur lifa? Maurar eða
býflugur geta ekki hugsað.
Lífið bauð þeim bara ekki
uppá þann möguleika. Samt,
á einhvern óskiljanlegan
hátt, veit hver einstaklingur
hvert hans hlutverk er. Hann
sinnir því, og engu öðru,
og hin samlífi þeirra býr til
lifandi hlut án lífs... sem er
maurabúið sjálft, í tilfelli
mauranna. Náttúran velur
einhvern veginn hver fær
það hlutverk að sækja mat, hver á að grafa göng og
hver það er sem fær þann lúxus að stunda hópkynlíf
í nokkrar mínútur, bara til þess að verpa eggjum
það sem eftir er ævinnar. Æðri máttur mauranna er
maurabúið. Deyi maurabúið, þá deyja allir maurarnir.
Maurarnir eru blessunarlega lausir við frjálsan
vilja og hugsun og er þannig ekki einu sinni gefið
tækifæri til þess að efast. Sem betur fer. Þeir fylgja
bara sinni eðiisávísun og þeim er borgið, eins lengi
og móðir náttúra ákveður ekki eitthvað annað. Það
hefur ekki gerst ennþá, svo vitað sé til, að einn maur
flæki samlífi mauranna með skilgreiningum á því
hver stjórni tilvist þeirra. Þannig er enginn maur sem
setur sig í foringjahlutverk og reynir að búa til nýjar
leikreglur um hvernig best sé að sinna maurabúinu.
Leikreglurnar hafa alltaf verið til, prentaðar inn í
kerfi þeirra. Þeir geta aldrei skilið hvað það er sem
drífur þá áfram, enda er það ekki þeirra hlutverk. Því
miður fáum við á hverjum degi tækifæri til þess að
efast. Er það svo galin hugmynd að við séum eins og
maurarnir, og að maurabúið okkar sé plánetan Jörð?
Er það svo galin hugmynd að hvert okkar sé búið
hæfileikum, sem okkur ber að sinna án þess að velta
því of mikið fyrir okkur? Eru trúarbrögð þá ekki bara
meingallaðar leikreglur samdar af verum sem eru
að reyna skilja eitthvað sem þeim er ómögulegt að
gera? Við getum ekki skilgreint guð, af því að það
er einfaldlega ekki okkar hlutverk. Þannig getum
við trúað á æðri mátt, sem nær yfir alla, án þess að
skipta okkur í öfgafulla hópa sem reyna að hafa vit
fyrir hver öðrum, eins og krakkar í leikskóla. Þar sem
krakkarnir keppast við að fá aðra til þess að spila
eftir sínum leikreglum. Mannlegar, gallaðar, reglur
sem guð kom ekkert nálægt. Eins og hjá maurunum
hafa reglurnar alltaf verið til, í eðlisávísun okkar. Við
getum alveg eins kallað það samvisku.
Enginn maður er heilagur, af því að það er ekki
okkar hlutverk. Ekki páfinn í Róm, ekki Jesú Kristur,
ekki Múhammeð, ekki Osama bin Laden, ekki
Móðir Theresa, ekki Dalai Lhama, ekki forsetinn
eða Björgvin Halldórsson. Bara breyskir menn. Fólk
sem kúkar og pissar þegar það er ekki að sinna
hlutverkum sínum. Það losnar enginn við skítinn.
Nokkrir þarna tileinkuðu lífi sínu kærleika sem er
ástæða þess að þeir hafa ennþá áhrif í dag. Þeir sem
fremja illvirki gleymast fyrr.
Trúarbrögð eru pólitík
í dag eru trúarbrögð pólitík og hafa kannski alltaf
verið. Pólitík er í eðli sínu valdabarátta manna, ekki
guða. í græðgi okkar svífumst við svo einskis þegar
kemur að mannslífum. í sjálfselsku okkar, og vegna
þeirra leikreglna sem okkur er sagt að aðhyllast,
er það í góðu lagi að brjóta nokkur egg til þess að
búa til omilettu. Bara eins lengi og eggin eru ekki
úr okkar eigin hæsnabúi. Pólitík og andleg málefni
eru olía og vatn. Við getum ekki stjórnað því sem
okkur er æðra, stundum
verðum við bara að
sætta okkur við það að
við fáum ekki að stýra
skútunni. Sama hvað við
vælum mikið í mömmu
og pabba. Þannig
virðast trúarbrögð í dag
ekkert snúast um andleg
málefni. Ég erað minnsta
kosti nokkuð viss um
að Jesú Kristur hefði
ekki látið sér detta það
í hug að hætta lífi sínu
fyrir olíu með vélbyssu
og „Burn, Motherfucker
Burn" á fullu blasti í talstöðvarkerfinu. Nafn hans
hefur ítrekað verið notað af veikum mönnum til þess
að réttlæta illvirki í gegnum mannkynssöguna, og
það á líka við núna í tilfelli (raksstríðsins. Ég legg
því til að Kristur verði frystur í bili. Sæjonara, nice to
know you. Takk, en nei takk. Reynum ekki að skilja
hluti sem við getum ekki skilið. Reynum ekki að klína
okkar leikreglum á aðra. Þannig verður tilgangur
lífsins bara að sinna okkar hlutverki og lifa, reyna að
njóta þess og vera þakklátur fyrir tækifærið.
Texti: Birgir Örn Steinarsson
Þeir sem láta trúarbrögð stjórna lífi sínu vilja trúa því
að allt sem er fallegt sé gert í þeirra nafni. En eins og
staðan er í dag, er staðreyndin akkúrat þveröfug. í dag eru
trúarbrögð aðallega notuð sem hlífiskjöldur fyrir illvirki.
au
m
«(A
Au PairíBandaríkjunum
Au pair býr hjá fjölskyldu í eitt ár,
gætir barna og sinnir léttum
heimilisstörfum í 45 tíma á viku.
Au pair fær 139 USD á viku í vasa
pening og 500 USD í styrk til náms.
Au Pair Educare
Ert þú 20 ára og með stúdentspróf ? Hefur þú áhuga á að
vera félagi barna G ára ogeldri, aðstoða þau við heimanám
ogtómstundir 30 tíma á viku. í staðinn færð þú 105 USD
á viku í vasapening og 1.000 USD styrk til háskólanáms.
Au pairfá einnig:
• Fríttfæði og húsnæði
• Fríarferðirtil ogfrá Islandi
• Tveggja vikna frí með vasapening
• 4 daga námskeið við komuna til USA
táms. , . x • /'Acif
. (J<A i *!//* lJ°Sl'
Au Pair Extraordinarie
Ert þú leikskólakennari á aldrinum 20-26 ára eða hefur þú
2 ára reynslu af því að vinna á leikskóla. Þú færð 200 USD
á viku ívasapeningog 500 USD ístyrktil náms að eigin vali.
STUDENTA
e it.is
BANKASTRÆTI 10 - 101 REYKJAVÍK - SÍMI 5 6 2 2 3 6 2 - INF0@EXIT.IS - WWW.EXIT.IS
KRAFTAVERK