Orðlaus - 30.09.2004, Blaðsíða 18
Þegar ég var að ffjúga heim til fslands eftir stutt frí fyrir nokkrum dögum las ég grein í flugtímaritinu sem fjallaði um það hvað
íslendingar fylgdust vel með tísku og að þú fyndir varla þá íslensku konu sem ekki væri klædd samkvæmt nákvæmum leiðbeiningum
erlendra hönnuða. Um sannleiksgildi þessara staðhæfinga ætla ég ekki að dæma en þetta varð þó til þess að ég fór að horfa aðeins
í kringum mig. Það sem ég tók þá eftir er að íslenskar konur klæða sig allavega ekki eftir vexti. Við konur erum allar mismunandi
vaxnar og þó eitthvað sé flott á vinkonu minni þá þarf það ekki að fara mér vel. Margar stelpur, og þar á meðal ég, virðast vera
gjarnar á að klæða sig í of litlar stærðir, líkt og þær séu að refsa sér fyrir að vera ekki þvengmjóar með því að troða sér í allt of lítil
föt. Að velja föt sem fara þér vel og hampa þínum náttúrulega vexti er nefnilega ekki alltaf jafn auðvelt og margur gæti haldið.
Málið er að við erum allar gullfallegar en við eigum mis gott með að koma því á framfæri. Þótt fötin geti hjálpað til þá má ekki
gleyma að það sem mestu skiptir er hvernig maður ber sig. Hér með er ég hvorki að halda fram að ég sé vaxin eins og Paris Hilton
né að ég sé búin að fullkomna þá list að klæða mig eftir vexti en ég er að gera mitt besta í að fikra mín hænuskref í rétta átt og er
eingöngu að miðla minni nýju visku.
Stuttar lappir miðað við búk:
Ef þú ert með stuttar lappir miðað við búkinn
þá skaltu forðast lágar og stuttar buxur. Hvort
tveggja styttir lappirnar allverulega. Einnig ætti
að forðast víðar hangandi buxúr þar sem klofið
er komið niður á hné og einnig uppbrettar
buxur. Pils og kjólar ættu ekki að ná níður fyrir
hné því það lengir iappirnar. Ef kjóiarnir eða
pilsin eru þrengst í mittinu frekar en að sitja á
mjöðmunum lengir það einnig iappirnar. Háir
hælar gera líka ótrúlega mikið fyrir mann þar
sem þeir einfaldlega lengja lappirnar og jafna
þannig út hlutföll líkamans.
Langar lappir miðað við búk:
Þetta virðist kannski ekki vandamál en getur
þó verið það. Stelpur svona vaxnar geta verið
ánægðar með það að sleppa hælunum þar
sem þeir ýkja bara lengd lappanna. Ef maður
er svona vaxinn ætti maður að ganga í lágum
buxum og forðast pils, kjóla og buxur sem
ná upp í mittið og láta þær frekar sitja á
mjöðmunum. Einnig er líka sniðugt að ganga
í stuttum buxum.
Peruvöxtur:
Það þýðir að þú fitnar frekar að neðan meðan
maginn helst nær spegilsléttur og þú ert með
langan búk og styttri lappir. Kosturinn við
þennan vöxt er að stelpur svona vaxnar bera
það yfirleitt mjög vel að fitna og geta vel borið
þó nokkur aukakíló. Konur með þennan vöxt
ættu alltaf að forðast að vera í lágum buxum
sama hversu mikið þær geta verið í tísku þar
sem lágar buxur láta lappirnar líta út fyrir að
vera styttri og búkinn lengri. Stelpur svona
vaxnar ættu frekar að vera í þröngum og
frekar háum buxum. Ef þú ert með komplexa
yfir rassinum er tilvalið að fara þá í síða peysu
yfir, þar sem peysan líka bætir á þig að ofan
og réttir þannig hlutföllin. Ef stelpur eru mjög
grannar að ofan er gott að fara í mynstraða
boli, jafnvel þverröndótta.
Pils fara einnig mjög vel á svona vexti en þá
verður að passa að þau nái ekki niður fyrir
hné þar sem það aftur lætur lappirnar virðast
styttri. Ef stelpur eru með komplexa yfir
kálfunum þá er bara að skella sér í stígvél. Það
er hægðarleikur núna þar sem það er gott
úrval af þeim i nær öllum búðum.
Stelpur svona vaxnar geta verið ánægðar í dag
þar sem kynbombur eins og J-Lo og Beyonce
hafa gert þennan vöxt eftirsóttan.
Sleikjóvöxtur:
Það þýðir að þú fitnar eiginlega bara að ofan
og ert alltaf með tágrannar lappir þótt þú
safnir bumbu. Konur með þennan vöxt bera
það yfirleitt illa að fitna og geta leyft sér að
fitna minna en peru vinkonur sínar.
Helsti feillinn sem stelpur svona vaxnar gera
er að þær byrja að ganga í pilsum í tíma og
ótíma þegar þær fitna til að sýna heiminum
sína grönnu leggi. Þetta er mjög vitlaust þar
sem þetta dregur einfaldlega athyglina að
feitari efrihlutanum sem virðist ekki passa
alveg við. Stelpur með þennan vöxt ættu að
forðast stutta jakka og peysur og njóta þess
frekar að ganga í kápum þar sem kápur fara
best stelpum með litlar mjaðmir. Einnig er flott
á þeim að vera í síðum peysum.
Þegar farið er í pils er best að fara í stígvél við
frekar en litla háhælaða bandaskó þar sem
þeir draga athyglina að grönnum fótunum.
Bandaskórnir geta þó gengið við sum pils
en eru alveg bannaðir ef pilsið er púffað
eða stendur mikið út. Ef það eru alvarleg
bumbuvandræði eru til flottir bolir með svona
mussusniði sem hanga þá beinir niðir en eru
þröngir yfir brjóstin. Það verður þó að passa
sig á því að virðast ekki vera ólétt! Stelpur
sem eru með mjög grannan rass ættu líka að
forðast að ganga í buxum með enga rassvasa
og helst vera í pilsi með rassvösum sem eru úr
frekar þykku efni (til dæmis gallapils) frekar en
að vera í alveg þunnu þröngu pilsi.
Þétta stelpan:
Þær eru oftast í tiltöiulega góðum hlutföllum
og fitna jafnt og þétt á öllum líkamanum. Þetta
getur bæði verið kostur og galli. Kosturinn er
sá að þú getur fitnað ansi vel áður en fólk fer
að taka eftir því og þú ert með mjög fallegan
vöxt þegar þú ert grönn. Gallínn er hins vegar
só að þú vext upp úr öllum fötunum á sama
tíma og þá er hætt við að þú sért farin að
líta út fyrir að ganga í fötum af litlu systur
þínni. Stelpur sem fitna svona ættu að forðast
lítil föt og passa að kaupa ekki föt sem eru í
minni kantinum. Ef þú ert í þykkari kantinum
er best að halda sig við fáa liti og dökka til
þess að forðast það að líta út eins og leiktæki
í Disney. Forðast skal munstraðar flíkur og þá
sérstaklega þverrendur. Einnig ætti að forðast
að klæða sig í mörgum lögum, það er að segja í
bol sem kemur niður fyrir annan bol og í peysu
yfir og með uppbrettar buxur og svo framvegis
þar sem þetta býr til þverrendur á líkamann og
lætur þig virðast lægri og feitari.
Háir hælar eru náttúrulega algjört töfratrikk
þar sem þeir láta þig virðast lengri og grennri.
Ég myndi þó ekki mæla með því að ganga á
háum hælum alla daga þar sem það fer illa með
bak og fætur en um að gera að eiga nokkur
pör til að grípa til þegar maður vill líta vel út.
Einnig er hægt að vera á skóm með lágum hæl,
til dæmis stígvél, því þótt það virðist ekki mikið
þá munar það samt.
Ég vona að ég hafi komið að einhverju gagni hér og að sem flestar hafi haft gaman að.
Annað sem mig langar að benda á svona rétt í lokin og er beint til ykkar allra, ekki vera
með bert á milli nema þú sért Ijósabrúnt módel á Spáni. Gangið í fötum sem ykkur líður
vel í og einbeitið ykkur frekar að því að vera í fötum sem passa ykkur vel í staðinn fyrir
að rembast við að troða ykkur í litlar stærðir.
Texti: Kristín Soffía