Orðlaus - 30.09.2004, Page 20
ÉIH
émm I
SEGWAY HUMAN
TRA NSPORTER
Ef þú átt 319.1141 kr. þá getur þú keypt
þér Human Transporter á Amazon.
com. Petta er tækið sem þú stjórnar
með því að halla þér fram og aftur til
vinstri eða hægri, með öðrum orðum þá
skilur tækið þig! Þú þarft aldrei að ýta
þér áfram og aldrei að setja fæturnar í
jörðina en tækið kemst á 20 km hraða
sem er nú bara ágætt því ekki vill maður
slasa sig.
BRÚNKUKLEFA
Já, eins og flestum ætti að vera orðið
kunnugtnúna þá eru sólbekkirekki hollir
fyrir þig því að þeir auka alveg rosalega
hættu á krabbameini svo eitthvað sé
nefnt. Þess vegna mælum við með að
fólk fari í brúnkuklefa en Supernova,
hárgreiðslustofa í Pósthússtræti 13,
býður upp á þessa þjónustu en brúnkan
kemur ekki úr klefa heldur framkvæmir
starfsmaður Supernova hana með því að
sprauta á þig. Þannig getur þú verið viss
um að fá mjög jafna og fallega brúnku
en þeir þykja vera mjög reyndir í þessu.
RÓMANTÍSKT KVÖLD
Núna þegar það er orðið kalt og haustið
er komið er ekkert jafn skemmtilegt
og að dúða sig upp, keyra síðan rétt
fyrir utan borgarmörkin, en það nægir
reyndar alveg að fara út á Gróttu) og
fylgjast með norðurljósunum og horfa á
stjörnunurnar. Það er líka mjög líklegt
að þú sjáir stjörnuhrap ... er eitthvað
rómantískara en það?
AIRWAVES
Þá er loksins að koma að tónleikahelgi
ársins, lcelandic Airwaves, sem verður
frábær í ár. Laugardalshöllin verður
ekki með í þetta sinn en við fögnum því
útaf því að stemningin í bænum er mun
skemmtilegri. Það ótrúlega við þetta
er að passinn á hátíðina kostar aðeins
5000 kr. sem er auðvitað fáránlega lágt
verð fyrir svona margar hljómsveitir og
fimm daga af skemmtun. Miðarnir eru
seldir í Skífunni og í Tourist Information
Center.
O jæja... þá er mínu lengsta sambandi formlega iokið. Ég reyndi og reyndi og gerði mitt allra besta en ég held
einfaldlega að hann Kristó eigi við einhver vandamál að stríða. Ég viðurkenni að ég hefði hugsanlega átt að
kveikja aðeins fyrr, eins og til dæmis að hann taki því sem hrósi að vera kallaður dúlla, eða þegar hann vildi
láta flengja sig og alla vegana þegar hann sagði síðan öllum vinum sínum frá því!
Eftir að hafa hlaupið út af Brennslunni
þegar ég komst að því að hann
hafði sagt öllum vinum sínum frá
flengingunni miklu þá endaði ég í
fanginu á vini hans sem reyndist vera
hinn mesti herramaðurog hraðhuggaði
mig þar til ég hljóp til Hildar. í stað
þess að fatta á þeirri stundu að þetta
samband okkar Kristófers væri ekki
að fara að leiða til giftingar í náinni
framtíð þá var ég staðráðin í að
afneita öllum hans göllum og láta
þetta ganga. Daginn eftir hringdi
veginn að kremja fram eitt falskasta
bros sem ég hef sent á ævi minni og
afsakaði mig svo á klósettið. Ég veit
ekki alveg út af hverju en ég labbaði
út úr bíóinu og heim til Hildar! Ég veit
ekki hvað ég var að pæla en alla leiðina
hugsaði ég um hvað ég væri búin að
vera mikið fífl að vera eitthvað að
rembast við að vera með einhverjum
gaur sem væri augljóslega eitthvað
skrýtinn. Hildur auðvitað trylltist úr
hlátri þegar ég sagði henni þetta og ég
eiginlega gat ekki annað en hlegið af
kannski þétt) og með lítil brjóst (sem
er kannski soldið satt) og að ég væri
með ömurlegan hlátur og að ég væri
asnalegasta manneskja í heimi og ég
veit ekki hvað. Hildur var að hlusta
líka og það fauk svo í hana að hún reif
af mér símann og hraunaði einhverja
óskiljanlega vitleysu yfir hann þangað
til að hún skellti á og við emjuðum úr
hlátri. Næstu daga heyrði ég ekkert
frá honum nema að hann sendi mér
einstaka sms sem voru öll í svona sama
fíling og símtalið.
Ég veit ekki alveg út af hverju en ég labbaði út úr bíóinu og heim
til Hildar! Ég veit ekki hvað ég var að pæla en alla leiðina hugsaði
ég um hvað ég væri búin að vera mikið fffl...
„Hildur var að hlusta líka og það fauk svo í hana að hún reif af
mér símann og hraunaði einhverja óskiljanlega vitleysu yfir hann
þangað til að hún skellti á og við emjuðum úr hlátri
ég eins og góður gúbbífiskur og lét
eins og ekkert hefði gengið á og við
ákváðum að fara saman í bíó. Þetta var
allt voðlega rómantískt, við leiddumst
í gegnum Hljómskálgarðinn, fórum
í sleik á bekk við tjörnina, hann ýtti í
mig og við fórum að hlæja og bla bla
bla... Síðan fórum við inn í Háskólabió
og vorum ekki búin að ákveða hvaða
mynd við ætluðum á þannig að við
skelltum okkur á Kent Park! Hljómaði
bara svona eðlileg mynd en ó nei...
Þetta var alveg virkilega grafísk
mynd með flengríðingum og rúnki
og ekki alveg í takt við rómantísku
gönguferðina okkar. En þá kom líka
útslagið, ég sat sem sagt þarna í bíó á
einni ódeitvænlegustu mynd sem ég
hef séð og er í miðju atriði þar sem
einhver strákur er að rúnka sér þegar
ég fæ sms. Ég kíkti og þar stóð: „Hæ
sætasta rós, lov jú ;D" Sender: Kristó.
Á staðnum fékk ég einn gífurlegasta
aulahroll sem ég hef fengið á ævi
minni, ég sneri mér við og þarna sat
hann með sólheimabrosið og hélt að
hann væri sætasti kærasti í heimi og
það eina sem mig langaði að gera var
að kasta upp! Hvers konarfáviti sendir
manneskjunni sem hann situr við
hliðina á í bíó sms? Ég náði einhvern
tilhugsuninni um að Kristó sæti ennþá
inni í salnum að velta því fyrir sér af
hverju ég væri svona ógeðslega lengi á
klósettinu... Ég ákvað að fyrst ég væri
byrjuð að vera svona glötuð af hverju
þá að hætta núna. Við verðum að
taka það með í reikninginn að honum
fannst fyndið þegar vinir hans kölluðu
mig beyglu og voru leiðinlegir við mig
þannig að ég sendi bara: „Sorrý, ég
held að þetta gangi ekki. Ég er búin
að reyna mitt besta, þetta ert þú ekki
ég!"
Ég veit að þetta var kannski soldið
nastý en á þessum tímapunkti var
mér bara alveg sama... Ég átti þetta
einhvern veginn inni hjá heiminum og
hafði bara hvorki orku né áhuga á að
hanga meira með honum til að dömpa
honum „betur". Auk þess er það mín
fílósófía að því verr og asnalegar sem
þú dömpar manneskjunni því fljótari er
hún að komast yfir (aað þar sem henni
finnst þú strax algjör fáviti!
Þetta er þó ekki búið... hann hringdi
síðan i mig svona 20 sinnum þangað
til að ég svaraði loksins og þá hófst
súrrealískasta símtal sem ég hef
tekið þátt í. Hann byrjaði á því að
öskra að ég væri feit (sem eru ýkjur.
Helgina eftir ákváðum við Hildur svo að
skella okkur á djammið til að fagna því
að ég væri laus úr sambandsánauðinni
og við sórum að byrja aldrei aftur með
strák nema að hann væri með uppá
skrifað vottorð frá geðlækni. Ég ákvað
að láta Sólon eiga sig til að forðast að
hitta Kristó og ég og Hildur eyddum
því meirihluta kvöldsins í röðinni
fyrir utan Prikið. Loksins þegar allir
„fastakúnnarnir" og „frekjukúnnarnir"
voru búnir að troðast fram fyrir okkur
þá loksins komumst við inn. Ég datt
næstum því í gólfið úr hlátri þegar ég
labbaði inn fyrir dyragættina þvi að
það var eins og að derhúfusprengja
hefði sprungið þarna inni. Ég og
Hildur vorum nett fullar og bjuggum
til derhúfur úr servíettum sem við
skelltum á hausana á okkur. Ég var
síðan í miðjum Jackson snúningi (með
derhúfuna) þegar einhver feitur fullur
gaur rakst í mig og ég flaug í gólfið.
Allt í einu fann ég að það var einhver
að lyfta mér upp og þegar ég leit við
þá sá ég að það var vinur Kristós sem
ég hafði hitt á Austurvelli...
Vala