Orðlaus - 30.09.2004, Side 26
GETIIR ÞÚ
EKKISOFNAÐP
Það eru fáir sem lenda aldrei í því að þjást
af svefnleysi. Þetta getur komið fyrir besta
fólk því ástæðurnar geta verið margar.
Helstu ástaeður svefnleysis eru þó taldar vera
stress, kvíði, þunglyndi, vandamál í vinnunni,
spenna eða ófullnægjandi kynlífsþörf. Það er
ekkert smá óþolandi að lenda í því að vera
andvaka heilu næturnar, kannski vikunum
saman en það eru til ráð til að hjálpa þó að
það lagi kannski ekki allan vandann.
Forðastu áfenga drykki seint á kvöldin. Sumir
slaka þó á við að fá sér einn bjór eða eitt
léttvínsglas fyrir svefninn en þetta getur líka
haft slæm áhrif og haldið fyrir þér vöku.
Slakaðu á í kaffi og te drykkju og öðrum
drykkjum sem innihalda koffein. Þú verður of
"hyper" og þá sérstaklega ef þú ert að drekka
koffeindrykki á kvöldin.
Ekki fá þér stóra heita máltíð rétt fyrir
svefninn. Fyrir utan hvað það er óhollt að
borða áður en þú ferð að sofa þá þarf líkaminn
að melta matinn.
Það er alveg ótrúlegt hvað skrift getur sagt til um persónuleikann þinn. Skriftin þín getur komið
upp um öll þín heilögustu persónueinkenni og í dag eru vinnuveitendur í Bandaríkjunum farnir
að ráða sérfræðinga til að lesa í skriftir hjá umsækjendum sínum og álit þeirra haft til hliðsjónar
þegar fólk er ráðið í vinnu. Það er því eins gott að kynna sér fræðin til að pota sér áfram og vera
klókari en vinnuveitandinn.
(Ég mæli með að þú skrifir niður 3-4 setningar á autt blað í stað þess að skrifa bara nafnið
þitt.)
Fast eða laust
Fast: í þínum huga eru hlutir geymdir en ekki
gleymdir. Þú átt auðvelt með að fyrirgefa en gleymir
því ekki. Þú ert ástríðufull og mjög tilfinninganæm
og hefur gott innsæi.
Meðalfast: Þú ert ástríðufull á köflum en lætur ekki
tilfinningarnar hlaupa með þig i gönur. Þú átt það þó
til að halda í gamlar minningar, slæmar sem góðar,
sem gerir þér erfiðara fyrir að stefna fram á við.
Laust: Þú átt auðvelt með að fyrirgefa öðrum og
ert ekki mikil tilfinningamanneskja. Það er fátt sem
slær þig út af laginu og þú ert seinasta manneskjan
á staðnum til að halda uppi "dramashowi".
Hallinn
Hvort hallar skriftin til hægri, vinstri eða skrifarðu
alveg þráðbeint?
Hægri: Þú ert mjög lokuð manneskja og vilt halda
hlutunum fyrir sjálfa þig. Þú hugsar þig vel um áður
en þú framkvæmir og ert mjög varkár þegar það
kemur að hlutum sem skipta máli.
Vinstri: Þú ert mjög opin og getur hæglega rætt
opinskátt um sjálfa þig við vini, kunningja og jafnvel
ókunnuga. Það gerir það að verkum að þú kemur
fyrir sem frekar hvatvís einstaklingur og stundum
hefur hvatvísin þau áhrif að þú rasar út í hluti sem
þú hefðir betur sleppt. Þú hefur sterkar skoðanir á
lífinu og tilverunni en átt auðvelt með að setja þig í
spor annarra og sjá báðar hliðar málsins.
Beint: Þú ert mjög meðvituð um sjálfa þig og lætur
ekki hjartað stjórna ferðinni. Þú átt það til að velta
þér upp úr öllum kostum og göllum áður en þú
dembir þér í hlutina. Þó að þú sért varkár flestum
stundum þá koma tímar þar sem tilfinningarnar ráða
ferðinni.
Þú átt það til að týna þér í hlutum sem skipta minna
máli og missa sjónar á því sem raunverulega skiptir
máli.
Spássfur
Vinstri spássía: Segir til um í hversu mikilli fjarlægð
þú vilt halda þér frá fólki. Stór spássía merkir mikla
fjarlægð á meðan lítil spássia merkir nálægð. Ef þú
hefur enga spássíu þá viltu helst hafa fólk ofan í þér
og þínum málum alla daga.
Hægri spássía: Á meðan vinstri spássían er mun
meðvitaðri af þér þegar þú skrifar og lýsir hversu
mikla fjarlægð þú vilt halda fólki þá lýsir hægri
spássían hversu vel þér tekst til. Hún lýsir í raun
hvar þú heldur fólki og það sama á við hér og að
ofan, stór spássía merkir mikla fjarlægð á meðan lítil
spássía merkir nálægð.
Bil á milli lína
Stutt bil milli lína: Þú hefur gaman af því að
vera í kringum fólk og átt auðvelt með mannleg
samskipti.
Langt bil milli lína: Þú ert reglusöm og skipulögð. Þú
hefur stjórnunarhæfileika og ert mjög sanngjörn.
Mjög langt bil: Ef bilið er mjög mikið þá merkir þaðað
þú vilt halda fjarlægð. Þú átt erfitt með að tengjast
fólki þó ekki vegna persónuleika þíns heldur vegna
þess að þú einfaldlega kærir þig ekki um það.
Línur sem skerast: Þú ert í tilfinningalegu ójafnvægi
og átt erfitt með að halda sönsum.
Bil á milli orða
Stutt bil: Þú ert áköf og fljót að taka ákvarðanir. Þú
vilt að hlutirnir gerist núna og getur átt það til að
hrasa þegar þú ert búin að ana út í hluti án þess að
hugsa þá til enda.
Reyndu að hreyfa þig um tveimur tímum áður
en þú ferð að sofa. Það gerir þig þreyttari
þegar það kemur að því að leggjast upp í rúm
og þú ættir að sofna fljótar.
Ekki nota rúmið sem vinnustað. Það er ekkert
verra en að blanda saman svefn og vinnu.
Rúmið á að vera sá staður sem þú slakar á í
en ekki vinnuaðstaðan þín.
Drekktu heitan mjólkurdrykk áður en þú ferð
að sofa.
Hafðu bókina tilbúna. Ef þú getur ekki sofnað
hálftíma eftir að þú leggst í rúmið þá ættirðu
að snúa þér að bókinni. Lestur þreytir þig og
ef þú leggst með hana þá áttu eflaust eftir að
sofna með hana í fanginu. Einnig er sniðugt
að velja leiðinlega bók, til dæmis skólabók
því það ávísun á svefn.
Farðu í heitt bað áður en þú ferð að sofa.
Reyndu að komast hjá því að leggja þig yfir
daginn. Það kemur í veg fyrir að þú náir
eðlilegum svefni að nóttu til því þú ert þá
oftast úthvíld þegar þú leggst á koddann.
Tengingar
Allir stafirtengdir: Þú ert mjög lógískog kerfisbundin
í hugsun.
Sumir stafir tengdir og aðrir ekki: Þú ert listræn í
hugsun og hefur gott innsæi.
Flestir ótengdir: Þú ert egósentrísk.
Fyrsti stafurinn ótengdur hinum: Þú ert varkár.
Stærð
Hástafir: Þú trónir yfir fjöldann. Þú ert hugmyndarík
og kemur miklu í framkvæmd.
Lágstafir: Þú ert hógvær og látlaus. Þú einblínir á
staðreyndir en ekki hugmyndir.
Mjóir stafir: Þú ert einfari í eðli þínu. Þú hugsar
ekki mikið um hvað er að gerast hjá öðrum heldur
einbeitir þér betur að því sem þú ert að gera og þú
hefur áhuga á.
Meðal: Þú hugsar vel um þá sem standa þér næst
og nærð að halda jafnvæginu milli þess að vera of
upptekin af öðrum og einblína eingöngu á sjálfa
þig. Það skiptir þig miklu að eiga einkalíf en þegar
eitthvað kemur upp á hjá vini þínum þá ertu fljót að
hlaupa til.
Breiðir stafir: Þú hugsar meira um það sem er að
gerast hjá fólkinu í kringum þig en hjá sjálfri þér.
Langt bil: Þú ert mjög þenkjandi og segir ekkert án
þess að hafa hugsað það til hlýtar. Þú leggur áherslu
á það sem þú segir og ert föst á þínum skoðunum.
Stutt og langt til skiptis: Þú ert mjög óstabíl bæði í
hugsun og þegar það kemur að tilfinningum.
Skriftin
Niðurhallandi skrift: Þegar skriftin hallar niður á við
er það merki um leiða og neikvæðni. Þú gætir átt við
skapsveiflur að stríða sem bitnar á fólkinu í kringum
þig.
Upphallandi skrift: Þú ert jákvæð og lífsglöð
manneskja, bjartsýn og stefnir fram á við.
Þráðbein skrift: Fólk sem skifar þráðbeint á auðu
blaði er mjög stabílt og ósveigjanlegt. Þú vilt ekki
breytingar og vilt hafa allt í röð og reglu í kringum
þig.
Kúpt skrift (þegar fólk skrifar fyrst upphallandi
en síðan niðurhallandi): Þú átt það til að byrja á
verkefnum með miklum metnaði og brennandi
áhuga en missir fljótt áhugann og gefst upp áður en
verkinu yfir lýkur.
íhvolf skrift (þegar fólk skrifar fyrst niðurhallandi
en síðan upphallandi): Þú byrjar oftast verkefni
án mikilla væntinga til sjálfrar þín og ert frekar
svartsýn á að hlutirnir muni ganga upp. Þegar líður
á verkið öðlastu hins vegar sjálfsöryggi sem kemur
þér þangað sem þú vilt.
E.M.Þ