Orðlaus - 30.09.2004, Side 32
Kólumbía
Stððugar uppreisnir, eiturlyfjasala, spilling og misrétti hafa
einkennt sögu Kólumbíu. Borgarastrið hefur verið í landinu
í rúma 4 áratugi, mörg hundruð þúsund manns hafa látið
lífið þar sem sprengjur springa á víðförijum stöðum og
skotbardagar eru á götum úti. Þjóðfrelsisherinn (ELN),
Skæruliðahreyfingin FARC og aðrar uppreisnarhreyfingar
berjast við hermenn stjórnvalda vegna misskipting auðs
og mikillar stéttaskiptingar í landinu. Sameinuðu þjóðirnar
hafa reynt að eiga milligöngu í friðarviðræðum en landið er
gífurlega óstöðugt, efnahagslega og stjórnmálalega.
Bandaríkin
11. september létust um 3000 manns í hryðjuverkaárás
á Bandaríkin og eftir það hélt Bush í Stríð gegn
hryðjuverkum. Hræðsla ríkir um hryðjuverkaárás al-
Qaeda í kringum forsetakosningarnar 2. nóvember.
Alsír
Alsír fékk sjálfstæði árið 1962.
Stöðugar stympingar hafa verið á
milli íslamskra bókstafstrúarmanna
og stjórnvalda og hafa þúsundir
íbúa verið myrtir og pyntaðir í
uppreisnunum.
Palestína
Margirtelja að lausn muni seint eða aldrei finnast
á átökunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Deilan
hefur staðið í rúm 50 ár frá því að frelsissamtök
Palestínu (PLO) hófu að berjast fyrir sjálfstæði
Palestínumanna árið 1964 og í hverri viku heyrast
fréttir af falli saklausra borgara og hörmulegum
lífsskilyrðum þeirra. Friðartillögur misheppnast
en óttinn magnast og hernaðarumsvifin
verða meiri með hverjum deginum. Ráðist er á
flóttamannabúðir á Vesturbakkanum, 24 létust á
Gazasvæðinu, 21 Palestínumaður og 3 ísraelar og
rúmir 100 særðir í einni árás ísraela í september
sem gerð var í hefndarskyni fyrir eldflaugaárás
á vegum Palestínumanna sem drap tvö ísralesk
börn fyrr i mánuðinum. Þrír Palsetínumenn féllu
til viðbótar í árás ísraela á flóttamannabúðir á
Gasasvæðinu l.október. ÞúsundirPalestínumanna
og hundruðir ísraela hafa látist í átökum frá
árinu 2000 og tugir Palestínumanna hafa fallið í
árásum undanfarna daga og enn fleiri særst.
Líbería
Borgarastríðinu í Liberíu virðist vera að’
linna eftir bardaga uppreisnarmanna og
hersveitar Charles Taylors forseta fram-
til ársins 2003 er hann flúði landið, en:
framtíð þessa stríðshrjáða lands er þö
enn óviss.
Nigrería
Ógnarástand ríkir um þessar mundir í Nígeríu og
hafa uppreisnarmenn þar í landi, hótað stríði gegh
stjórnvöldum landsins. Ástandið hefur hlotið mikla
athygli, meðal annars vegna þess að þar eru auðugar
olíulindir og olíusvæðin eru aðal skotmörkin sem
veldur því að heimsmarkaðsverð á olíu fer hækkandi.
Óeirðasamt hefur þó verið allt frá því að Nígería hlaut
sjálfstæði frá Bretum árið 1960, gífurleg spilling og
misskipting auðs og krefjast uppreisnarmennirnír
hlutdeildar í olíulindunum. Þúsundir manna hafa verið
drepnir á svæðinu frá því að herforingjastjórnin fór
frá völdum árið 1999.
Fílabeinsströndin
Stærstur hluti landsins er í algjörri upplausn undir stjórn
uppreisnarmanna. Árið 1999 steypti herstjórn stjórninni í
fyrsta skipti í sögu landsins. Hörð átök brutust út árið 2002 þar
sem uppreisnarmenn tóku yfir norðurhluta landsins. Tilraunir
um friðarsamkomulag sem Frakkar hafa haft milligöngu
með hafa ekki náð að stöðva óróleikann í landinu því stór
hluti var ekki sáttur við samkomulagið og voru mótmæli úr
báðum liðum tíð á götum úti. Mikil spenna er einnig á milli
Fílabeinsstrandarinnar og annarra nágrannaríkja og hafa
hundruðir friðargæsluliða reynt að koma ró á ástandið. Barátta
fyrir friði hefur staðið lengi en saka uppreisnarmenn í landinu,
sem kalla sig Ný öfl, forseta landsins Laurent Gbagbo, sem
hlaut embættið í mjög ólýðræðislegri kosningabaráttu, um
að tefja friðarferlið og krefjast þess að nýjar forsetakosningar
verði haldnar. Mannskæð átök hafa haldið áfram á þessu ári.
Angóla
Fyrir rúmum 40 árum gerðu Angólar uppreisn gegn veru Portúgala
í landinu og braust þá út mikill skæruhernaður. Á þeim tima var
MPLA-hreyfingin stofnuð sem var studd af Sovétríkjunum og
Kúbu, en auk hennar komu fram FNLA-og UNITA- hreyfingarnar
og börðust þær allar innbyrðis. Angólamenn fengu þó sjálfstæði
árið 1975 en ( kjölfar þess braust út heiftug borgarastyrjöld, sem
hefur fellt rúma milljón manns. UNITA-skæruliöarnir héldu áfram
að berjast við MPLA, sem fór með stjórn í landinu, og geisaði
borgarastríðið í nærfellt aldarfjórðung. Margar friðartilraunir
hafa verið gerðar á tímabilinu og sem betur fer lítur út fyrir að
þetta stríð sé á enda eftir að Jonas Savimbi, sem stofnaði UNITA-
hreyfinguna, féll í bardaga við stjórnarherinn árið 2002. Landið
er þó enn glfurlega fátækt og óstöðugt. Þúsundir flóttamanna
þurfa heimili og vinnu og skæðir sjúkdómar og næringarskortur
draga fólk til dauða.
HÖRMUNGARI21. ALDAR
Ógnarástand ríkir víða um heiminn þar sem stríðsátök, hungur, mismunun og sjúkdómar draga fólk til dauða og ekkert
lát virðist vera á. Á þessari opnu má sjá einungis brot af þeim átökum sem hafa einkennt síðustu ár og áratugi.