Orðlaus - 01.10.2005, Blaðsíða 32
en ekki lent í hræðilegu bílslysi.
Sumir beindu spjótum sínum að
bresku konungsfjölskyldunni sem
hafi mútað bílstjóranum Henri
Paul til að drepa Díönu og Dodi
þar sem hann var múslimi. Aðrir
kenndu bresku leyniþjónustunni
um dauða prinsessunnar og
sögðu valdamenn innan hennar
hafa talið Díönu ógn við bresku
krúnuna sem varð því að ryðja úr
vegi. Ekki hefur þó tekist að sanna
að um neinn glæp hafi verið að
ræða.
Þó að svörin við þessum
spurningum og fleirum sem
framtíðin mun bera í skauti
sér fáist líklegast aldrei halda
sögurnar þó áfram að spinnast.
Bókahyllurnar fyllast af mis
gáfulegum útskýringum sem fólk
kaupir í heilu bílförmunum og
netsíðunum fjölgar með hverjum
deginum og á meðan lifir fólkið í
hugum mannanna sem reyna að
leysa ráðgátuna.
TIMIFY
ÆRI?
Morð á valdamiklum og dáðum
mönnum og konum eins og forset-
um, ráðherrum eða skemmtikröft-
um hafa oftar en ekki orðið tilefni
skrautlegra kenninga sem oft eiga
mis mikla stoð í raunveruleikan-
um. I mörgum tilvikum liggja hug-
myndafræðilegar eða stjórnmála-
legar ástæður að baki morðanna
sem fá samsæriskenningarmenn
til þess að lyfta brúnunum, taka
upp tölvuna og drita niður kenn-
ingum um launmorðingja sem
starfa fyrir stjórnvöld, leyniþjón-
ustur eða önnur leynileg samtök.
Oft eru það hátt settir menn sem
ásakaðir eru um að standa að baki
hinum og þessum launmorðum
og endalausum pappír og tíma er
eytt í vangavelturnar sem oft eru
mjög skemmtilegar og áhugverð-
ar og já, vekja mann til umhugsun-
ar. Bókatitlarnir skipta þúsundum;
The 80 Greatest Conspiracies of
All Time, Conspiracies and Cover
Ups: What the Government Isn't
Telling You, JFK Assassination Fi-
les: The Case for Conspiracy, The
Lincoln Murder Conspiracies, Who
Murdered Yitzhak Rabin? og svo
mætti lengi telja. Heimasíðurnar
á netinu sem koma inn á samsær-
iskenningar af þessu tagi ná hátt
í aðra milljón og Hollywood hefur
að sjálfsögðu lagt sitt að mörkun-
um.
Þegar morðið á forsetanum Abra-
ham Lincoln er skoðað á netinu
má lesa um sæmsæriskenningar í
kringum morðið á yfir 300.000 síð-
um. John Wilkes Booth skaut for-
setann þann 14. apríl árið 1865 og
var dauði hans mikið áfall og fljótt
fóru að heyrast raddir manna sem
töldu að ekki hefði verið um venju-
legt morð að ræða heldur samsæri
þar sem Booth var lítið púsl í mun
stærra púsluspili. Samsæriskenn-
ingarnar í kringum morðið á Mart-
in Luther King fylla einnig ógrynni
blaðsíðna og velta menn því fyrir
sér hvort James Earl Ray hafi stað-
ið einn að baki morðinu eða hvort
sökinni hafi verið jafnvel komið
á hann. Enn eru menn einnig að
velta því fyrir sér hver stóð á bak
við morðið á Malcolm X.
Morðið á John F. Kennedy 1963
var mönnum svipuð ráðgáta og
nær hann að sigra í google leit-
inni með rúmar 400.000 síður. Þar
er spurningunum hver réð Lee
Harvey Oswald til að drepa for-
setann og hvaðan kom Jack Ruby
sem drap Oswald tveimur dögum
seinna velt upp en því hafa menn
reynt að svara í rúm 40 ár. Sumir
segja að sökinni hafi verið komið
á Oswald sem hafi verið njósnari
fyrir FBI eða CIA og eru hinir grun-
uðu allt frá Fidel Castro til Lyndon
Johnson, KGB, FBI, CIA og Mafí-
unni. Eftir að bróðir forsetans, Ro-
bert Kennedy, var drepinn fimm
árum síðar styrktust þær raddir
enn frekar.
Bandarískir forsetar fá mikið
pláss í þessum vangaveltum og
eftir árás John Hinkley Jr á Ronald
Reagan árið 1981 fóru menn að
spyrja sig hvort Hinkley hafi í raun
verið að reyna að öðlast hylli leik-
konunnar Jodie Foster eða hvort
meira hafi búið að baki og fóru
samsæriskenningarmenn að rekja
tengsl George Bush eldri við Hinkl-
ey fjölskylduna. Þær sögur þögn-
uðu þófljótt, munfyrren kenning-
arnar um forsetana hér að undan,
en enn eru þó einhverjir sem telja
að ekki hafi verið allt með felldu.
Stuttu síðar var tilraun gerð til að
myrða páfann, John Paul II, og
þegar slíkar opinberar manneskjur
verða fyrir áras er óhjákvæmilegt
að fólk fari að tala sín á milli og
bentu einhverjir í átt til Sovétríkj-
anna.
Engu minna púðri er eytt á net-
inu í að velta fyrir sér spurningum
í kringum morðið á ísraelska for-
sætisráðherranum Yitzhak Rabin
árið 1995. Morðið hafði gífurleg
áhrif á þróun mála fyrir botni Mið-
jarðarhafs og samsæriskenningar
spruttu upp nánast samstundis.
Launmorðinginn Yigal Amir náðist
strax eftir að hann skaut Rabin og
neitaði ekki að hafa framið morð-
ið sem hann er talinn hafa gert
til þess að hindra frið milli ísraela
og Palestínumanna. Menn eru þó
ekki sammála um að hann hafi þar
veriðeinnaðverki þarsemsönnun-
argögnin sýni annað. Til að mynda
er bent á að Amir skaut bara einu
skoti en áverkar eftir fleiri kúlur
fundust á líkama Rabin.
Ekki eru það þó bara hátt
settir pólitíkusar sem lenda í
þessari umræðu. John Lenn-
on hefur fengið sinn skerf og
samsæriskenningarnar komust á
flug stuttu eftir morðið á honum.
Þrátt fyrir að það þyki sannað að
Mark David Chapman hafi skoðið
Bítilinn til bana má lesa greinar
meðfyrirsögninni „Hverdrap John
Lennon?" og hefur fingrunum
verið beint að Yoko Ono, Paul
McCartney og jafnvel bandarisku
ríkisstjórninni og FBI.
Dauði Díönu prinsessu olli enn
meira fjaðrafoki og taldi einn fjórði
Breta að Díana hafi verið myrt
UM HVAÐ ER TEXTINN?
Hún er stúlkan mín (en hún á mann) með Baggalút
32
■■
Bragi Skúlason, meðlimur í ritsjórn og köntrísveit Baggalúts.
Já, hún á einstaklega skemmtilegan
mann.
Hún á mann og elskar hann.
Því ætla ég að drekka mig fullan, fara
svo til hans með stólfót aö vopni,
Króa hann af og enda svo á því að
lemja lúsablesann þann.
Sjáið hana hrína eins og stungið alisvín
- það er stúlkan mín.
Stumra yfir ræflinum svo þokkafull og
fín - það er stúlkan min.
Já, sjáið hana siga pólitíinu á mig - það
er stúlkan mín.
Og segja mér að drullast til að hætta
að bögga sig - það er stúlkan mín.
Því hún á mann, já hún á mann.
Já, hún á ofboðslega myndarlegan
mann.
Hún á mann og hann henni ann.
Því ætla ég að sitja af mér dóminn,
fara svo heim og massa mig upp,
Drekka mig fullan og fara niður í bæ,
finna þar fíflið, öskra aðeins á hann,
Hlæja eins og bjáni og ganga svo í að
lemja lúsablesann þann.
Lag og Ijóð: Skúlason
Æ, sjáið þessa yfirmáta yndisfríðu snót
það er stúlkan mín.
Sem ilmar eins og nýuppslitin æti-
hvannarót það er stúlkan mín.
Já, rassgatið í upphlutnum með uppá-
hellinginn - það er stúlkan min.
Með undirhökur, spékoppa og túnat-
rjóða kinn - það er stúlkan mín.
En hún á mann, já hún á mann.
Já, hún á afskaplega huggulegan
mann.
Hún á mann og elskar hann.
Því ætla ég að drekka mig fullan og
lemja lúsablesann þann.
Sjáið hana raða í sig rjómapönnsunum
hún er stúlkan min.
Með rabarbarasultutau í litlu tönnsun-
um - hún er stúlkan mín.
Sjáið hana tipla um svo töfrandi að sjá
- hún er stúlkan mín.
Og tígurlegur afturendinn vaggar til
og frá - hun er stúlkan min.
En hún á mann, já hún á mann.
Hin alíslenska kántrýplata Baggalúts, Pabbi þarf að
vinna, kom út fyrir stuttu síðan þar sem heyra má ansi
grátbroslega texta flutta af stórsveit Baggalúts. Meðal
þeirra er lagið Hún er stúlkan mín þar sem aumingjans
ræfillinn drekkur sig fullan til þess að lúskra á „lúsa-
blesa" stúlkunnar sem hann vill.
Hver er þessi stúlka?
Þetta er nú bara hin íslenska heimasæta sem á afskap-
lega huggulegan mann, hún finnst auðvitað líka í borg-
inni.
En svo kemur einhver lúsablesi til að lemja yndis-
lega manninn, ertu að styðja ofbeldi?
Nei, maður verður náttúrulega að setja sig í spor fífl-
anna líka. Þetta er bara þessi almenni viðreynslubjáni,
svona lítill, samanrekinn, uppmassaður naggur sem er
eitthvað að þenja sig.
Finnst þér slíkt einkennandi fyrir lífið í sveit-
inni?
Já, já, þetta á sér stað á öllum pönnukökuhátíðum sem
ég hef farið á. Stúlkan er nú i afskaplega góðum mál-
um og á myndarlegan mann en síðan er auðvitað litla
blinda fíflið sem sér hana sem sína draumaprinsessu og
þar sem einhver er fyrir gengur hann bara í það mál.
Þetta eru samt svo sem ekkert miklar meiningar, við vor-
um aðallega að reyna að skapa sveitó stemmningu og
taka á þessum kántrýþemum eins og ást, fylleri og karl-
rembu sem fylgir hörðum heimi kántrýtónlistarmanna.