Bændablaðið - 11.04.2006, Qupperneq 16
Eitt af þeim atriðum í mjólkurframleiðslunni,
sem verulegu máli skiptir að sé í lagi, er júgur-
heilbrigði kúnna. Kýr, sem ekki eru júgur-
hraustar, geta ekki skilað viðunandi afurðum.
Bæði kemur þar til að kýrnar ná ekki að skila
þeim afurðum, sem eðli þeirra og aðbúnaður
býður þeim, ef þær eru með júgurbólgu og
hella þarf niður mjólk, sem ekki er söluhæf.
Þetta á jafnt við um sýnilega júgurbólgu sem
og dulda júgurbólgu. Hafa þarf vökult auga
gagnvart dulinni júgurbólgu, mjólk kúnna sýn-
ir ekki einkenni júgurbólgu nema að grannt sé
skoðað.
Frumutalan mjög
góður mælikvarði
Frumutala er mjög góður mælikvarði á júgur-
heilbrigði kúnna. Kýr sem eru með frumutölu
yfir 200.000 eru ekki með heilbrigt júgur. Það
er því mjög góð regla í hvert sinn er niðurstöð-
ur koma úr kýrsýnum frá RM, sem oftast er
strax daginn eftir að bóndinn sendir sýnakass-
ann frá sér, að gera bláskálarpróf á þeim kúm,
sem eru yfir 200.000, og finna út hvaða júgur-
hluti/júgurhlutar eru ekki í lagi. Sé svörunin
miðlungs mikil á bláskálarprófinu og engir
strimlar, er oft hægt að hjálpa kúnum án lyfja-
meðhöndlunar við að lækna júgurbólguna. Það
er gert með því að bera myntukrem á sýkta
júgurhlutann áður en sett er á kúna og tæma
svo alveg með handhreytingu úr júgurhlutan-
um eftir mjöltun. Jafnframt þarf að gæta þess
að skola mjaltatækin eftir mjöltun á sýktum
kúm þannig að ekki berist smit í næstu kú sem
mjólkuð er. Sumir bændur hella eplaediki ofan
í kýrnar til að styrkja þær í að efla varnir sínar
eða nota aðrar lífrænar varnir.
Hins vegar ef frumutalan er t.d. yfir
500.000 og veruleg svörun á bláskálarprófi,
dugar þessi aðferð tæpast. Þá þarf að grípa til
pensillínmeðferðar. Það er reyndar dýr aðferð,
þar sem lyfin kosta sitt og mjólkinni þarf að
hella á meðan á meðhöndlun stendur. En það
er jafnframt dýrt að vera með júgurbólgusmit í
fjósinu og tapa mjólkinni sem kýrin framleiðir
ekki vegna þess að hún er með júgurbólgu.
Sagan af Frumraun og Silju
Hér á eftir er ég með dæmi af tveimur kúm í
fjósinu hjá mér. Annars vegar kú á þriðja kálfi,
sem fékk júgurbólgu og var meðhöndluð og
hins vegar af kú á öðrum kálfi, sem fékk júgur-
bólgu en hefur ekki verið meðhöndluð. Við
vigtum úr kúnum þrjá daga í röð í hverjum
mánuði og skráum meðaltal af þeirri mælingu í
mjólkurskýrslur. Mjög mörg mjaltakerfi bjóða
upp á daglega skráningu mjólkurmagns úr
kúnum. Hefðum við slíka skráningu gætum
við hafa séð fyrr að nyt þessara kúa féll óeðli-
lega hratt og þar með gripið fyrr í taumana.
Hins vegar sáum við ekki fyrr en greining sýn-
anna kom frá RM að frumutala kúnna var ekki
á réttu róli.
Frumraun bar sínum þriðja kálfi í byrjun
september 2005. Hún fór mjög fljótt eftir burð
upp í 30 kg nyt og í næstu tveimur mánuðum
mjólkaði hún 31 kg af mjólk á dag. Hins vegar
hækkaði frumutala hennar töluvert og hún
svaraði bláskálarprófi verulega á tveimur spen-
um, en ekki var um strimla að ræða í mjólk-
inni. Þegar útséð var um að myntun og hreins-
un á spenunum dygði, voru tekin úr henni
spenasýni og send í ræktun og hún tekin á
pensillínkúr í kjölfarið um miðjan desember.
Eins og sést á línuriti 1 þá lækkaði frumutala
hennar verulega eftir pensillínkúrinn og nytin
jókst. Hins vegar má alveg eins gera ráð fyrir
því að hæsta dagsnyt hennar hefði orðið hærri
ef hún hefði ekki fengið júgurbólgu.
Silja bar sínum öðrum kálfi 28. september
2005. Línurit 2 sýnir nyt hennar og frumutölu.
Í desember er hún komin með of háa frumutölu
og svörun á skálaprófi, án þess að sýna önnur
einkenni júgurbólgu. Eins og sést þá hrapar nyt
hennar niður samfara því að frumutalan hækk-
ar, sem sýnir okkur glögglega að júgurbólga
hefur áhrif á nyt, þrátt fyrir að júgurbólgan sé
ekki greinanleg nema á bláskál og niðurstöð-
um kýrsýna frá RM.
Því miður var Silja ekki meðhöndluð við
júgurbólgunni. Línurit 3 sýnir annars vegar þá
nyt, sem hún hefur nú þegar skilað þetta
mjaltaskeið, og hins vegar þá nyt, sem hún
gæti verið búin að skila ef hún hefði ekki feng-
ið júgurbólgu. Í lok mars gæti hún verið búin
að framleiða 955 lítrum meira ef hún hefði
ekki verið með júgurbólgu. Þar sem nú er
borgað fyrir alla umframmjólk auk hvatningar-
álags á mjólk þá má segja að í lok mars höfum
við tapað 46.000 kr. á því að Silja fékk júgur-
bólgu og að við meðhöndluðum hana ekki við
júgurbólgunni. Þá eru enn eftir 3-4 mánuðir af
þessu mjaltaskeiði, sem má bæta við sem tapi
vegna lélegri afurða. Dýralækniskostnaður
vegna júgurbólgumeðhöndlunar er um 9.000
kr. og kostnaður vegna mjólkur, sem þyrfti að
hella niður á meðan á meðhöndlun stæði, hefði
verið 13.867 kr. í Silju tilfelli.
Forvarnir
Þessi dæmi sýna okkur glögglega að við ættum
að reyna allt hvað við getum til að koma í veg
fyrir að kýrnar fái júgurbólgu. Það er hins veg-
ar ekki auðvelt. Í tilfellum þessara beggja kúa
er ómögulegt að segja hvað olli júgurbólgunni
hjá þeim. Þær báru mjög líklega heilbrigðar;
þær eru komnar á innistöðu þegar þær sýkjast
þannig að ekki hefur þeim orðið kalt; þær voru
ekki tómmjólkaðar; þær gætu hafa lagst í bás
sem mjólk úr sýktri kú hefur lekið í; þær gætu
verið í eðli sínu óhraustar á júgra.
Til að lágmarka júgurbólgu í kúnum þarf
meðal annars að:
· vanda allt uppeldi kvígnanna,
· vanda mjaltirnar, þannig að ekki tómmjólk-
ist neinn speni,
· mynta og handhreinsa júgurhluta sem eru
með dulda júgurbólgu/háa frumutölu,
· skola mjaltatæki eftir kýr með háa frumu-
tölu, helst þó að mjólka þær kýr síðast,
· vanda geldstöðumeðhöndlun,
· gæta þess að ekki sé staðbundinn trekkur við
bása í fjósinu.
Dulin júgurbólga, eins og bæði Frumraun
og Silja voru með, finnst ekki nema með því
að taka kýrsýni og skálapróf. Þess vegna þurf-
um við að vera dugleg með skálaprófið og taka
sýni úr kúnum um leið og við mælum í hverj-
um mánuði og senda þau til RM til greiningar.
Eftir því sem kýrnar ná hærri dagsnyt, eftir því
meiri afurðum skila þær á mjaltaskeiðinu. Séu
þær hins vegar með sýkingu í júgra geta þær
eðlilega ekki skilað þeim afurðum, sem eðli
þeirra, aðbúnaður og fóður bíður upp á. Þar
með er bóndinn að tapa verulegum tekjum og
skapa hættu á að fleiri kýr smitist í fjósinu og
tapið verði þar með enn meira.
Til gamans er hér í lokin línurit 4 með
tveimur kúm úr fjósinu hjá mér. Annars vegar
Búrkolla, sem er ung kýr á öðrum kálfi, hún
mismjólkast mikið, en með því að „tappa“
hana jafnóðum og búið er úr hverjum júgur-
hluta helst hún heilbrigð. Hins vegar er það
Pála, 10 vetra kýr, sem er í miklu uppáhaldi hjá
okkur. Hún var sjöunda nythæsta kýrin á land-
inu árið 2005 og hefur jafnframt skilað miklum
afurðum árin áður.
Guðný Helga Björnsdóttir
nautgriparæktarráðunautur
Ráðunautaþjónustu Húnaþings og Stranda
16 Þriðjudagur 11. apríl 2006
Álagsgreiðslur og útflutningsskylda
Á síðasta stjórnarfundi Markaðsráðs kindakjöts var ákveðið að breyta áður
auglýstum álagsgreiðslum í komandi sláturtíð til hækkunar, og munu þær líta
svona út:
Vika 23- 32: 1.300 kr./dilk
33: 1.100 kr./dilk
34: 800 kr./dilk
35: 500 kr./dilk
35: 200 kr./dilk
Einnig gerði Markaðsráð eftirfarandi tillögu að útflutningsskyldu:
9. júlí til og með 9. september: 4%
10. september til og með 11. nóvember:. 10%
12. nóvember og áfram: 4%
útflutning fram að sumarslátrun og
halda bara því nauðsynlegasta.
Þetta snertir ekki Bandaríkjamark-
að því hann tekur bara inn kjöt í
sláturtíðinni. Ég vil hvetja bændur
til að huga að sumarslátrun og nýta
álagsgreiðslurnar með því að setja
kjöt snemma á markað og einnig
til að nýta alla möguleika sem við
höfum til þess að fá sem mest út úr
vaxtargetu lambanna í haust, taka
við þeim af fjalli með góðri haust-
beit. Það hefur líka mikið að
segja.“
- Þarf ekki að fjölga því fé sem
sett er á?
„Jú, markaðurinn hrópar á kjöt
og þeir sem vit hafa á segja að við
séum ekki komin að neinum endi-
mörkum þeirrar aukningar. Vand-
inn er sá að breytingar taka svo
langan tíma. Gimbur sem sett er á í
haust er varla farin að skila neinni
framleiðslu fyrr en eftir tvö ár. Það
þarf líka að forðast að fella lífvæn-
legar kindur sem gætu skilað góðri
framleiðslu, til dæmis vegna aðila-
skipta á greiðslumarki. Það er
slæmt að geta ekki selt afurðirnar
en ekki betra að geta ekki fullnægt
eftirspurn á markaði. Þá leita
kaupendurnir bara að því næst-
besta,“ sagði Jóhannes Sigfússon.
Dulin júgurbólga - minni afurðir
Framhald af forsíðu
Frumraun
bar þriðja kálfi 4. sept. 2005
0
5
10
15
20
25
30
35
40
sept okt nóv des jan feb mar
nyt
0
100
200
300
400
500
600
700
800
frumutala
Tekin á pensillínkúr í
desember
frumutala
nyt/dag
Línurit 1
Silja
bar öðrum kálfi 28. sept. 2005
0
5
10
15
20
25
30
35
40
okt nóv des jan feb mar
nyt
0
100
200
300
400
500
600
700
800
frumutala
nyt/dag
frumutala
Línurit 2
lin
Silja
með eða án júgurbólgu
0
5
10
15
20
25
30
35
40
okt nóv des jan feb mar
nyt
nyt
ósýkt nyt
955 l meiri nyt
eftir 5 mánuði
væri hún ósýkt
5.826 l mjólk,
okt.- mars ef
hún væri ósýkt
Hefur skilað í
raun 4.830 l af
frumuhárri mjólk í
lok mars
Línurit 3
Búrkolla og Pála
0
5
10
15
20
25
30
35
40
45
50
sept okt nóv des jan feb
nyt
0
100
200
300
400
500
600
700
800
frumutala
nyt Búrkolla nyt Pála frumutala, Búrkolla frumutala, Pála
Línurit 4