Bændablaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 26

Bændablaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 26
26 Þriðjudagur 11. apríl 2006 Ferðaþjónustan Breiðuvík við Látrabjarg og Ferðaþjónustan í Hænuvík voru með bás á sýn- ingunni Ferðatorg 2006, sem haldin var í Fífunni í Kópavogi fyrir skömmu. Þegar Bænda- blaðið kom í heimsókn í básinn voru þar fyrir Breiðuvíkurhjón- in Birna Mjöll Atladóttir og Keran Stueland Ólason. Þar var líka dóttir þeirra Maggý Hjör- dís. Þess má geta að Birna Mjöll og Keran hófu rekstur ferða- þjónustunnar í Breiðuvík árið 1999. Uppgangurinn er mikill en á síðasta ári bættu þau við 12 hótelherbergjum og snyrtiað- staðan á tjaldstæðinu var tekin í gegn. Á liðnu ári voru gistinæt- ur í hótelinu um 3000 talsins og svipaða sögu má segja um tjald- stæðið. En hvernig gengur að vera með bás á Ferðatorgi 2006? Keran sagði að margir hefðu heimsótt básinn og spurt um ferðamögu- leika á Vestfjörðum. „Við erum hér fyrst og fremst að minna fólk á Látrabjarg,“ sagði Keran og gat þess að í Breiðuvík væri hægt að taka á móti 64 gestum; 34 í upp- búnum rúmum og 30 gætu sofið í svefnpokum. Tjaldstæðið er rétt við hótelið. Þar sem við stóðum við Breiða- víkurbásinn sagði Keran að ferða- þjónustan á Vestfjörðum hefði haft mikið gagn af námskeiðinu Hag- vöxtur á heimaslóð sem Útflutn- ingsráð efndi til í vetur. Nám- skeiðið var eina helgi í Bjarnafirði á Ströndum, aðra í Breiðuvík og þá þriðju á Ísafirði. Keran sagði að námskeiðið hefði skipt miklu fyrir samstarf norður og suður Vest- fjarða. Þarna hefðu aðilar fundið betur en nokkru sinni fyrr að Látrabjarg væri segull fyrir norð- ursvæðið á sama hátt og ferða- þjónusta á suðurhluta Vestfjarða nyti Strandanna. Aukin samvinna svæðanna gæti skipt miklu máli fyrir ferðaþjónustu á Vestfjörðum. Ferðaþjónusta á Vest- fjörðum í uppgangi Birna Mjöll Atladóttir , Maggý Hjördís og Keran Stueland Ólason. FRAMLEIÐNISJÓÐUR LANDBÚNAÐARINS AUGLÝSIR NÁMSSTYRKI: Framleiðnisjóður landbúnaðarins vill efla sókn fagfólks á sviði landbúnaðar til endurmenntunar og öflunar nýrrar þekkingar. Á árinu 2006 verða boðnir þrenns konar styrkir í þessu skyni: 1. Til starfsmanna við kennslu-, leiðbeininga- og rannsóknastofnanir landbúnaðarins, sem þar hafa unnið a.m.k. 5 ár: Veittir verða 1-2 styrkir, að upphæð allt að 1.000 þús.kr. hver, enda sé þá um a.m.k. sex mánaða dvöl við erlendar fræðslustofnanir að ræða. Upphæð skerðist sé um styttri námsdvöl að ræða. Lágmarksdvöl er þrír mánuðir. 2. Til framhaldsnáms að loknu háskólanámi til grunngráðu (BS, BA): Veittir verða 4-6 styrkir, að upphæð allt að 500 þús. kr. hver til náms í landbúnaðarfræðum eða öðrum þeim fræðum sem nýtast beint til atvinnuuppbyggingar í sveitum. Námið skal miða að framhaldsáfanga (MS, MA, PhD). 3. Til umfangsmeiri endurmenntunar starfandi bænda: Í boði verða 10 styrkir, að upphæð 50 - 150 þús. kr. hver eftir umfangi náms, enda sé um að ræða a.m.k. 10 námseiningar (námsvikur). Forgangs njóta þeir er hafa landbúnað sem aðalatvinnu og hyggjast nýta námið til þess að byggja upp eða efla atvinnu á bújörðum sínum. Umsóknarfrestur um námsstyrkina er til 15. maí nk. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Framleiðnisjóðs landbúnaðarins, Hvanneyri, 311 Borgarnes, sími 430-4300 og á heimasíðu sjóðsins www.fl.is % af völdum girðingav örum helgina 6-7 m aí! Girðingahelgi í BYKO Selfoss i 6-7 maí!

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.