Bændablaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 31
31Þriðjudagur 11. apríl 2006
Árið 1995 voru sett lög og er til-
gangur þeirra að stuðla að
verndun Breiðafjarðar, einkum
landslags, jarðmyndana, lífríkis
og menningarminja. Í kjölfarið
var stofnuð Breiðafjarðarnefnd,
sem á að vera umhverfisráð-
herra til ráðgjafar um allt það
sem lýtur að framkvæmd laga
þessara. Fyrir utan að sjá um
verndun Breiðafjarðar hefur
nefndin unnið að skráningu ör-
nefna í og við Breiðafjörð.
Mikilvæg skráning
Friðjón Þórðarson, fyrrum alþing-
ismaður og ráðherra, hefur verið
formaður nefndarinnar frá upp-
hafi. Hann sagði að mikið starf
hafi verið unnið af nefndinni þau
rúmu 10 ár sem hún hefur starfað.
Í sumar mun ung kona, Hjördís
Linda Jónsdóttir, nemi við jarð- og
landafræðiskor Háskóla Íslands,
vinna að skráningu örnefna á sjó á
Breiðafirði. Sagði Friðjón að sú
skráning væri mjög mikilvæg
vegna þess að þeim fækkar sem
þekkja örnefni þar. Sömuleiðis
þarf að skrá örnefni í byggðum
þar sem fólki hefur fækkað til þess
að missa ekki af strætisvagninum,
eins og Friðjón tók til orða.
Dr. Guðrún Gísladóttir, dósent
við HÍ, er með verkáætlun vegna
kortlagningar örnefnanna. Í verk-
áætlun hennar kemur fram að mik-
ilvægt sé að ná samningi milli Há-
skóla Íslands, Breiðafjarðarnefnd-
ar, Landmælinga Íslands og Land-
helgisgæslunnar um aðgengi
kortagrunna, myndefnis og sam-
nýtingu gagna.
Verkefni um örnefnaskráningar
Friðjón segir að mikill áhugi sé
meðal nefndarmanna fyrir því að
varðveita þau ótal mörgu örnefni,
sem þekkt eru á jörðum við
Breiðafjörð og eru nú smátt og
smátt að glatast. Útvegaðar hafa
verið loftmyndir af ýmsum svæð-
um við Breiðafjörð, samkvæmt
samstarfssamningi við Loftmyndir
ehf. og Örnefnastofnun Íslands.
Jónína Hafsteinsdóttir frá Ör-
nefnastofnun hefur þegar hafið
vinnu við söfnun örnefna og einn-
ig
hafa nefndarmenn skipt á milli
sín og tekið að sér svæði sem
þeim eru kunnugust.
„Ég tek undir með Guðmundi
Ólafssyni um að Breiðafjörður
verði settur á heimsminjaskrá,“
sagði Friðjón.
Verndarsvæði Breiðafjarðar:
Örnefni í Breiðafjarðar-
eyjum skráð í sumar
Heilfóðrun með KEENAN á Íslandi
Leitið upplýsinga í síma 894 3065
!"#$%&'()*+++,-.$-/-,%
0123 4
5013
!"###$%$
!
"
#
$ "#
% "
&
Ytri Víðivellir Fljótsdalshreppi.
Erum með í einkasölu einbýlishús (frá 1998) og báðar íbúðirnar í nýju
tvíbýlishúsi (frá 2004 og 2005) að Ytri Víðivöllum II, Fljótsdalshreppi. Mjög
vandaðar eignir með mikla möguleika. Útihús geta fylgt með og stærri lóðir.
Nánari upplýsingar veitir
Hilmar á Fasteigna- og skipasölu Austurlands.