Bændablaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 34

Bændablaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 34
34 Þriðjudagur 11. apríl 2006 „Við erum núna að sá í 3,2 millj- ónir gata i plöntubökkum, sem ætti að gefa okkur 2,6 til 2,7 milljónir af skógarplöntum. Þetta er 73.300 bakkar sem við sáum í á árinu“, segir Skúli Björnsson, framkvæmdastjóri gróðrarstöðvarinnar Barra á Egilsstöðum, sem einbeitir sér að framleiðslu skógarplantna og er langstærsta stöðin á þeim mark- aði hérlendis. Þessi ræktun, sem Skúli talar um, verður tilbúin til plöntunar árin 2007 og 2008. „Megnið af þessu er greni. Það er orðin mikil ræktun af því hjá okkur núna og fer til dæmis vaxandi fyrir Héraðs- skóga og einnig fyrir Norðurlands- skóga og Suðurlandsskóga. Hlutur lerkis er ekki eins mikill og áður var. Svo er mikið birki en það fer til Landgræðsluskóga um land allt. Þeir senda hingað stóra bíla með tengivagna og fylla þá af plöntum. Þetta eru um 400.000 plöntur fyrir Landgræðsluna,“ segir Skúli. Mest allt boðið út Gróðrarstöðin Barri var upphaf- lega stofnuð til að þjóna nytja- skógaverkefninu Héraðsskógum, sem hófst árið 1990 en þróunin hefur orðið sú að nú eru framleidd- ar skógarplöntur sem fara um land allt. „Þetta er mest allt boðið út,“ segir Skúli „Ætli það láti ekki nærri að 97% verkefna okkar séu tilboðsverk.“ Hann segir að á þessu ári verði afhentar um 2,6 milljónir skógar- plantna en þær voru 2,1 milljón í fyrra. „Það er ekki oft sem fram- leiðslan nær tveimur milljónum en það hefur þó gerst.“ Stóra 2.000 fermetra gróðurhúsið á Egilsstöð- um dugar ekki fyrir alla þessa framleiðslu því Barri nýtir líka gróðrarstöð Skógræktar ríkisins á Hallormsstað fyrir framleiðslu sína. „Þar eru bæði húsin full en hvort um sig er þúsund fermetrar, þannig að við erum með 4.000 fer- metra húspláss undir ræktun,“ seg- ir Skúli og bætir við að starfsfólk hafi aldrei verið fleira við ræktun- ina. „Núna í vetur eru 10 manns að vinna hérna en oft voru þetta 6-7 starfsmenn.“ Gott fyrir jörðina að fá mikinn snjó Það var ekki vorlegt úti þegar við tókum hús á starfsfólki Barra fyrstu daga þessa mánaðar, norða- nátt og snjór yfir öllu. Innandyra voru hitastigin á þriðja tuginn og starfsfólk léttklætt við vinnu. Fyrstu plönturnar voru að stinga sér upp úr bökkunum, mest greni, en í nokkrum bökkum var lindi- fura að komast af stað, planta sem er erfið í ræktun og þarf þolin- mæði við. En hvernig líst Skúla á vorið, hefur plöntun ekki oft verið hafin hjá skógarbændum um þetta leyti? „Ég segi það nú kannski ekki en þó hefur það komið fyrir. Það verður bara þeim mun betra að planta þegar snjóa leysir. Það er mjög gott fyrir jörðina að fá þetta mikinn snjó, það verður góður raki í jarðveginum fyrir plönturnar og frost er lítið í jörðu núna. Þetta hefur ekki verið svona síðustu árin,“ segir Skúli en hann vonast til að fyrstu plönturnar fari frá Barra til plöntunar í byrjun maí. Gróðrarstöðin Barri á Egilsstöð- um með metframleiðslu í ár Framleiðir skóg- arplöntur í 4.000 fermetra húsnæði Viltu verða skólabóndi? Skólabóndi er starfandi bóndi sem heimsækir grunnskóla og segir frá sjálfum sér og lífinu í sveitinni undir merkinu Dagur með bónda. Þetta er eitt af skólaverkefnum Bænda- samtaka Íslands til þess að kynna skóla- börnum í þéttbýli líf og störf til sveita. Um er að ræða nokkrar heimsóknir á vetri í 7. bekk grunnskóla á tímabilinu 1. september til 30. maí á eftirfarandi stöðum: · Reykjavík · Akureyri · Dalvík Hver heimsókn tekur þrjár klukkustundir. Sýnt er myndband úr sveitinni og farið í skemmtileg og fræðandi verkefni sem bóndinn fær hjá verkefnastjóra ,,Dags með bónda“. Greitt er fyrir hverja heimsókn. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást hjá verkefnastjóra ,,Dags með bónda“ Símar: 563-0300 & 893-8943 Netfang: dmb@bondi.is RAFSUÐUVÉLAR Pinnavél, ZX7 Inverter hátíðnivél 200amp-35%, 125amp-100% Þyngd 8,5Kg. ISO 9001 og CE vottun. Verð aðeins 37.500.- TIG Inverter hátíðnivél 200amp-35%, 125amp-100%. Þyngd 9Kg. ISO 9001 og CE vottun. Verð aðeins 56.500 með þrýstijafnara og einnota argon hylki, 110L. Ennig hljóðeinangraðar 5Kw 230V Disel rafstöðvar. Verð 210.000 m/vsk. Auto dark rafsuðuhjálmar þyngd aðeins 420gr .Stillanlegir DIN 9-13. Verð aðeins 11.900.- ISO 9001 og CE vottun. Varahlutir fyrirliggjandi í bæði vélar og hjálma. Kvistás ehf. S. 482 2362 og 893 9503 - kvistas@simnet.is Séð yfir gróðrarstöð Barra á Egils- stöðum nýbúið er að sá greni í bakkana. /Bændablaðið Haraldur Bjarnason. Séð yfir gróðrarstöð Barra á Egilsstöðum nýbúið er að sá greni í bakkana. /Bændablaðið Haraldur Bjarnason.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.