Bændablaðið - 11.04.2006, Síða 23

Bændablaðið - 11.04.2006, Síða 23
23Þriðjudagur 11. apríl 2006 Kynntu flér starfsmenntanám vi› LBHÍ, fla› gæti henta› flér. www.lbhi.is Hvanneyri • 311 Borgarnes • s. 433 5000 • www.lbhi.is Landbúna›arháskóli Íslands Starfsmenntanám vi› LBHÍ – lífsstíll fyrir flig? Búfræ›i * Gar›yrkja • Blómaskreytingar • Gar›yrkjuframlei›sla * • Skógur og umhverfi * • Skrú›gar›yrkja * fiessar brautir bjó›ast einnig í fjarnámi Gar›yrkjufræ›ingur - Búfræ›ingur Skúli Alexandersson, fyrrverandi alþingismaður og ritari Sjó- minjasafns Hellissands, hefur sótt um leyfi til Snæfellsbæjar til að byggja nýtt 141,2 fermetra hús við gamla safnhúsið. Safnið á tvo áttæringa, Blika, sem er elsti bátur hér á landi sem veiddur hefur verið fiskur á, byggður 1826 og Ólaf Skagfjörð. Skúli sagði að nú stæðu yfir þó- nokkuð miklar breytingar í sjó- minjasafninu. Meðal annars er ver- ið að laga snyrtingar og gera þær aðgengilegar fyrir fatlaða. Einnig er verið að bæta aðstöðu safnvarð- ar. Safnið stendur á mjög góðum stað á Hellissandi og blasir við vegfarendum. Skúli segir að senni- lega sé þetta mest sótta safn á Vest- urlandi. Hann segir að til sé skýr- ing að hluta á því hve vel safnið er sótt en hún er sú að stór hluti þess er utandyra í garðinum og hann er opinn allan sólarhringinn allt árið. ,,Það eru ekki margir dagar, þeg- ar veður er sæmilegt, að ekki komi margt fólk í garðinn,“ sagði Skúli. Safnið er sjálfseignarstofnun sem er rekin með styrkjum frá Snæ- fellsbæ og svolítill styrkur er veittur til safnsins á fjárlögum. Skúli segir að síðan sé leitað eftir frekari styrkjum hingað og þangað og þá ekki síst nú þegar á að fara að byggja við safnið. Hann segir safn- ið eiga marga velunnara. Leyfi til að byggja við safnhúsið hefur þegar fengist frá skipulags- og byggingar- nefnd Snæfellsbæjar og stendur til að húsið verði tilbúið í ár. Sjóminjasafnið á Hellissandi Ætla að byggja nýtt hús yfir elsta áttæring landsins Unnið við endurbætur á Sjóminjasafninu í Sjómannagarðinum á Hellis- sandi. F.v. eru: Ómar Lúðvíksson smiður og Lúðvík Smárason smiður og Skúli Alexandersson sem hefur umsjón með verkinu f.h. safnstjórnar. Í undirbúningi er bygging á skemmu þar sem áttæringarnir áraskip safns- ins Bliki og Ólafur verða geymdir og til sýnis. Formaður safnsstjórnar er Halldór Kristinsson.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.