Bændablaðið - 11.04.2006, Síða 24

Bændablaðið - 11.04.2006, Síða 24
24 Þriðjudagur 11. apríl 2006 Júgurbólga í mjólkurkúm veldur bændum á Íslandi miklum búsifj- um. Hún var lítt þekkt fyrir daga mjaltavélarinnar en hefur verið, meira og minna, viðvarandi vandamál síðan þær voru teknar í notkun. Þetta hefur svo leitt til þess að farga þarf kúm fyrr en ella og fleiri kvígur þarf að ala upp. Gerlar sem valda júgurbólgu kom- ast hvergi inn í júgrið nema í gegnum spenaopið. Það er því mikilvægt að varðveita varnar- kerfi þess sem allra best. Hvítur sigghringur í kringum spenaopið getur t.d.verið afleiðing rangrar notkunar mjaltavéla, vanhirtra véla eða að spenar séu of langir fyrir vélmjaltir. Reynsla Hvanneyringa Í bók Guðmundar Jónssonar fyrr- verandi skólastjóra á Hvanneyri, sem hann ritar í tilefni af fimmtíu ára afmæli Bændaskólans á Hvanneyri er aðeins vikið að þess- um málum og þar segir á bls. 204: „Árið 1933 og 1934 virðist gera vart við sig afturför í nyt- hæð Hvanneyrarkúnna........... Orsakirnar til þess eru nokkuð á huldu og vafalaust fleiri en ein. Hér verða þessar orsakir ekki gerðar að umtalsefni nema að litlu leyti, enda hefur það mál alls ekki verið rannsakað til hlítar. En á það skal bent, að mjaltavél- arnar, sem notaðar voru á Hvanneyri árin 1929 til 1937, hafa vafalaust minnkað mjólkur- magnið og skemmt kýrnar varan- lega, einkum hinar ungu kýr, sem aldar voru upp síðustu árin. Er þessi ályktun dregin af vís- indalegum tilraunum í Dan- mörku og reynslu flestra þeirra, er fengu sér mjaltavélar hér á landi.“ Þarna mun að öllum líkindum hafa valdið, að einhverju leyti, röng notkun vélanna því júgur- bólga fór að gera vart við sig og olli afurðatjóni. Þekking á þessari tækni var af skornum skammti og kennsla lítil sem engin. Eftir þetta var handmjólkað á Hvanneyri til ársins 1946 er Run- ólfur Sveinsson skólastjóri keypti mjaltavélar. Hraðmjaltir Í bókinni, Búvélar og ræktun eftir Árna G. Eylands, sem út kom árið 1950, er kafli um mjaltavélar, sem var nýttur við kennslu í bænda- skólum landsins. Þar segir frá að- ferð við mjaltir, sem kölluð er hraðmjaltir á bls. 414: „Dr. W.E. Petersen, prófessor við háskóla Minnisotafylkis í Bandaríkjunum, hefur rannsak- að manna mest allt, er að mjölt- um lýtur. Hraðmjaltaaðferðin styðst við kenningar hans. Júgur og spenar er þvegið og nuddað með volgu vatni, 45-50°C, í 30 - 60 sek. Rétt áður en spenahylkin eru sett á spenana og vélin byrjar að mjólka. Við þetta selur kýrin svo vel, að flestar kýr eru full- mjólkaðar á þremur mínútum, sumar á 2 ½ mín. og stöku kýr á 3 ½ mín.“ Þessi niðurstaða Petersen hefur í tímans rás sannað gildi sitt því allir, sem að þessum málum hafa unnið, vita að undirbúningur mjaltanna er mikilvægasti þáttur þeirra. Sé ekki vel að honum stað- ið verður eftirleikurinn slæmur. Kýrin fer þá ekki að selja strax og vélarnar eru settar á hana og mjaltirnar taka mun lengri tíma og hreytur verða meiri. Vélarnar totta tóma spena í byrjun mjalta, sem leiðir til þess að álagið á spenaopið verður mjög mikið, þar sem hærra sog er þá við spenaend- ann, sé ekki notað duovac, heldur en þegar mjólk rennur úr spenan- um. Sigg á spenaenda Eins og áður er fram komið verð- ur afleiðing slæmra vélmjalta oft sú að sigg myndast í kringum spenaopið og síðan sprungur, sem fer svo jafnvel að blæða úr. Slík- ar sprungur eru gróðrarstía fyrir bakteríur. Ef sigg sést í kringum spenaopið, er það vísbending um að hlífa skuli kúnni svo sem mögulegt er við mjaltir og sjá til þess að vélatíminn verði sem allra stystur. Verður það best gert með góðum undirbúningi kýrinn- ar og örvun fyrir mjaltir eins og áður er fram komið. Með vax- andi nyt kúnna eykst álag á spena við mjaltir og er því enn mikil- vægara en áður var, að fylgjast vel með þessum málum. Ef til vill hefur lélegur undir- búningur mjalta, verið ein ástæð- an fyrir lakari júgurheilsu í fjós- inu á Hvanneyri á árunum 1929 til 1937, í það minnsta var það talið eina ráðið að leggja af vélmjaltir á skólabúinu. Í dag er þekkingin til staðar og því hægt að taka á þessum málum. Fá kýrnar í þínu fjósi næga örvun fyrir mjaltir og eru spenaopin í lagi? Þessi grein birtist í síðasta tölublaði en vegna mistaka féll hluti textans brott og er greinin því endurbirt. Ritstj. Rangar mjaltir fyrr og nú! Raunir kúnna - mæða bóndans Það munu nú vera um 143 ár síðan mjaltavélin kom fyrst fram á sjónarsviðið en amerísk mjaltavél var kynnt á sýningu í London árið 1863, og var hún drifin með handafli. Mörg ár liðu þar til mjalta- vélar urðu tæknilega það vand- aðar, að þær næðu útbreiðslu að ráði. Það var ekki fyrr en á árunum milli 1910 og 1920, að náð er því takmarki, að bændur fara að veita þeim verulega at- hygli. Jóhannes Reykdal á Set- bergi við Hafnarfjörð, tók fyrstur íslenskra bænda þessa nýju tækni í þjónustu sína. Það gerðist árið 1927, og keypti hann vélarnar frá A/B Separa- tor í Stokkhólmi. Einnig fékk Vífilsstaðabúið mjaltavélar um sama leyti fyrir tilstuðlan Jó- hannesar. Skólabúið á Hvann- eyri fékk svo mjaltavélar árið 1929. Á ýmsu gekk hér á landi með þessa nýju tækni. Það vildi verða nokkur aukning á júgurbólgu, samfara notkun mjaltavélanna, sem að mestu mun hafa mátt rekja til þess að mönnum var ekki kennt að hirða og nota vélarnar rétt. Fyrsta mjaltavélin Amerísk handknúin mjaltavél, reynd í Noregi árið 1863. Hér má sjá fjóra mismunandi spenaenda. Tveir þeira efri eru með skál í kringum spenaopið. Það er veikleikamerki því spena- gangurinn í svona spenum er styttri og varnarkerfið því lélegra. Kýr með svona spena eru yfirleitt lausmjólka og jafnvel lekar. Neðri spenarnir eru skemmdir af mjaltavélum. Í kringum spena- opið er hvítur sigghringur og sprungur að byrja að myndast út frá spenaopinu. Meðan þær koma ekki til er varnarkerfi spenans í lagi en sýkingum fjölgar með sprungunum. Sigtryggur Jón Björnsson, kennari við Búfræðibraut LBHÍ á Hvanneyri FENDT Á FRÁBÆRU VERÐI Dæmi: Sýningarvél. 818 Vario Árgerð 2005 , 390 vinnust. Verð kr. 8,3 milljónir án VSK. Þórarinn 869-2241 -- Jónas 864-5373 Fagráð í nautgriparækt boðar til almenns fræðslufundar í Þingborg í Hraungerðishreppi miðvikudaginn 19. apríl klukkan 13:15. Ráðgert er að fundinum verði lokið fyrir kl. 16. Fundarefni: Sumarbeit mjólkurkúa Framsögumenn: Ríkharð Brynjólfsson, LBHÍ og Runólfur Sigursveinsson, BSSL. Kynning á hugmyndum um nýja nautastöð BÍ. Framsögumaður: Gunnar Guðmundsson BÍ Aðbúnaður kálfa Framsögumaður: Torfi Jóhannesson BV. Kúabændur og aðrir áhugamenn um nautgriparækt eru hvattir til að mæta en fundurinn er öllum opinn. Fræðslufundur í nautgriparækt

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.