Bændablaðið - 11.04.2006, Síða 25

Bændablaðið - 11.04.2006, Síða 25
25Þriðjudagur 11. apríl 2006 Landssamband eldri borgara hefur sent Sambandi íslenskra sveitarfélaga (SÍS), bréf þar sem fram kemur að landssambandið er tilbúið til samstarfs við SÍS um að leita fleiri leiða í búsetu- formi eldri borgara. Borgþór Kjærnested, fram- kvæmdastjóri Landssambands eldri borgara, sagði í samtali við Bændablaðið að það sem fyrir eldri borgurum vekti væri að þegar fólk er orðið sjötugt og býr í eigin húsnæði losni það við fasteigna- gjöldin. Það væri mikill sparnaður fyrir sveitarfélögin að þurfa ekki að búa þessu fólki aðra búsetu með tilheyrandi kostnaði upp á 5 til 6 milljónir króna á ári á hvern ein- stakling. Ef byggja eigi stofnanir þá kosti það 15 milljónir króna á hvern einstakling auk rekstursins. Borgþór bendir á að hugmyndin um að byggja klasaíbúðir með þjónustuaðstöðu og öðru slíku væri að verða að veruleika. Hann segir að það sé að koma inn ný hugsun í þessum málum. Ná- grannalöndin væru fyrir löngu hætt að byggja steinsteypublokkir eða elliheimili fyrir fólk sem er fullfrískt fram yfir áttrætt. Nú vildi fólk vera heima hjá sér sem lengst en fá aukna heimilisaðstoð. Þetta myndi spara sveitarfélögunum stórfé. Varðandi sveitirnar sagði Borg- þór að þar sé sama upp á teningn- um. Fólk vilji vera heima hjá sér eins lengi og mögulegt er. Borgþór sagði að ýmis sveitar- félög væru með í vinnu hjúkrunar- fræðinga sem færu á milli bæja í stað þess að reisa dýrar stofnanir. Leita fleiri leiða í bú- setuformi eldri borgara Verð kr. 957.000 m/vsk Burðargeta 14 tonn Stærð palls = 2,50x9,0m H. Hauksson ehf. Suðurlandsbraut 48 Sími: 588-1130. Fax. 588-1131. FLATVAGNAR 2500 2040      !"#! $#%&'()*) + ,$!-

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.