Bændablaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 32

Bændablaðið - 11.04.2006, Blaðsíða 32
32 Þriðjudagur 11. apríl 2006 Hverjar eru helstu nýjungarnar í nýju reglugerðinni? „Helstu breytingar eru að tekin eru af öll tvímæli um að sömu kröfur eru gerðar til aðbúnaðar og með- ferðar á öllum hrossum, hvort heldur sem þau eru haldin í at- vinnuskyni eða til nota í frístund- um og hvort sem þau eru haldin í þéttbýli, á lögbýlum eða annars- staðar til sveita. Landbúnaðar- stofnun er nú landbúnaðarráðherra til ráðuneytis við yfirstjórn þeirra mála sem reglugerðin tekur til. Skerpt er á skyldum dýralæknis hrossasjúkdóma varðandi rann- sóknir og fræðslu um sjúkdóma, forvarnir og aðra þætti er varða velferð hrossa. Héraðsdýralæknar og búfjáreftirlitsmenn hafa, eins og áður, eftirlit með því að ákvæð- um reglugerðarinnar sé fylgt. Auk þessa er bent á skyldur almennings við að tilkynna hvers konar illa meðferð á hrossum sem fólk kann að verða vart við“, sagði Sigríður. Holdastigun mikilvæg Sigríður segir að mörg nýmæli séu í reglugerðinni. „Ein mikilvægasta breytingin á reglugerðinni felst í notkun á holdastigunarskala fyrir hross, og fylgir skalinn í viðauka I við reglugerðina. Hross sem ekki ná reiðhestaholdum skulu njóta hvíldar og/eða sérstakrar umhirðu. Kveðið er á um að hross hafi að- gang að beit í a.m.k. tvo mánuði samfellt á meðan möguleiki er á að ná í græn grös, eða frá 1. maí til 1. október. Samkvæmt reglugerðinni er óheimilt að gefa hrossum á gólf í stíum nema það sé þurrt og hreint og sömuleiðis er óheimilt að fóðra hross á útigangi ofan í blautt svað. Skerpt er á kröfum um að hrossum á húsi sé gefið tvisvar á sólarhring og skulu ekki líða meira en 14 tím- ar á milli gjafa. Sama viðmið ber að hafa varðandi hross á beit sem rekin eru í sveltihólf hluta úr sólar- hringnum. Eigandi eða umráða- maður skal fylgjast með holdafari og heilbrigði hrossa í hans eigu/umsjá og leita lækninga ef með þarf. Vakin er athygli á skrán- ingarskyldu á sjúkdómum og með- höndlun þeirra og ábyrgð dýraeig- enda og dýralækna í því sambandi. Kveðið er á um skyldur eigenda til að verja hrossin ormasmiti og hirða hófa og tennur og á það jafnt við um stóðhross sem reiðhross“ Í reglugerðinni kemur fram að eingöngu má nota heilbrigð hross til reiðar, rekstrar, burðar eða drátt- ar og þau skulu alla jafna járnuð, a.m.k. ef hætta er á að hófar slitni. Daglegt eftirlit með stóðhestagirð- ingum Nýmæli í reglugerðinni er krafa um að eigendur eða umráðamenn stóðhesta hafi daglegt eftirlit með stóðhestagirðingum og beri með því ábyrgð á að hross sem verða fyrir áreiti eða slysum séu tekin frá og eigendum þeirra gert viðvart. Eigendur skulu þá sjá til þess að slösuð hross fái þá meðferð sem nauðsynleg er. Til að tryggja að þeir sem reka atvinnustarfssemi tengda hrossahaldi hafi fullt yfirlit yfir notkun einstakra hrossa, og til að auðvelda eftirlit með slíkri starfsemi, er nú gerð krafa um að þeir haldi dagbók um notkun og umhirðu hrossanna. Innréttingar verða að vera í lagi Kröfur um gerð innréttinga í hest- húsum hafa verið hertar nokkuð í nýju reglugerðinni til að fyrir- byggja slys á hestum á húsi og til að koma til móts við félagslegar þarfir þeirra. Ekki er leyfilegt að halda hross í lokuðum stíum þann- ig að þau sjái ekki önnur hross og helst skulu þau geta komist í snert- ingu við önnur hross á húsi. Sömu- leiðis er óheimilt að halda hross ein á húsi. Stíur skulu vera svo stórar að hestur/hestar geti auð- veldlega legið og snúið sér innan þeirra. Gerð er krafa um aukið rými í stíum fyrir hross á húsi frá því sem áður var, eða fjóra fer- metra á hvert hross fjögurra vetra eða eldri en þrjá fermetra fyrir fol- öld og tryppi yngri en fjögurra vetra. „Krafan tekur til hesthúsa sem eru byggð eða endurinnréttuð eftir að reglugerð þessi tekur gildi. Eldri hesthús eða hesthús sem hlot- ið hafa samþykki byggingaryfir- valda fyrir gildistöku reglugerðar- innar geta áfram miðað við núver- andi kröfur skv. reglugerð nr. 132/1999. Hér er um lágmarks- stærðir að ræða en æskilegt er að stíur þar sem hross eru haldin mán- uðum saman séu enn stærri“, sagði Sigríður aðspurð um reglur um innréttingar í hesthúsum. Þá má geta þess að í reglugerðinni er nú kveðið á um að básar skuli einung- is notaðir tímabundið fyrir hvert hross. Hér er átt við að hross geti verið á bás hluta tamningatímabils, 1 - 3 mánuði að hámarki. Þetta þýðir að breyta þarf hesthúsum sem nú eru innréttuð eingöngu eða mestmegnis með básum, þar sem hross eru haldin vetrarlangt. 100 fermetra gerði „Nú eru einnig ítrekaðar kröfur um að hross á húsi fái daglega hreyfingu eða útivist samtals í a.m.k. klukkustund á degi hverj- um. Þess skal þó að sjálfsögðu gætt að sveitt hross hými ekki úti í kulda. Með þessu er ætlunin að vega upp á móti þeirri miklu inni- stöðu sem tíðkast á hrossum nú í seinni tíð. Sérstaklega þarf að tryggja ungviði á húsi næga hreyf- ingu og hafa ber í huga að hér er kveðið á um lágmarks úti- veru/hreyfingu, æskilegt er að hún sé miklu meiri“, sagði Sigríður. Í reglugerðinni er gerð krafa um að lágmarksstærð gerða við hesthús sé 100 fermetrar. Þess skal gætt að ekki skapist hætta á að hross slasi hvert annað í gerðum. Gerði mega ekki vera úr gaddavír eða raf- magnsvír sem tengdur er 220 volta rafmagni, vegna slysahættu. Forð- ast skal að nota ristarhlið þar sem hætta er á að hross ryðjist yfir. Þá er í reglugerðinni lögð áhersla á að náttúruleg skjól séu fyrir hendi í hrossahögum, en að öðrum kosti þarf að koma upp manngerðu hagaskjóli þar sem hross eru hald- in frá 1. október til 1. júní. Þetta er mun lengra tímabil en áður var krafist enda hefur reynslan sýnt að hross leita helst í skjól í hrakviðri að vori og hausti. Skjólin þurfa að vera svo stór að öll hjörðin fái not- ið gagns af þeim og veita skjól úr öllum áttum. Fræðsla mikilvæg Í reglugerðinni er skerpt á skyld- um dýralæknis hrossasjúkdóma varðandi rannsóknir og fræðslu um sjúkdóma, forvarnir og aðra þætti er varða velferð hrossa. Hvernig ætlar hún að ná því fram og vinna þá vinnu? „Ég hef reynt eftir fremsta megni að koma á eða aðstoða við rannsóknaverkefni sem fjalla um líffræði íslenska hestsins í breiðum skilningi þó svo peninga- og að- stöðuleysi hafi sett rannsóknastarf- seminni miklar skorður. Vísinda- leg þekking er undirstaða framfara á sviði hrossaræktar og því þarf stöðugt að bæta í þekkingarbrunn- inn. Nokkur ný rannsóknaverkefni eru í farvatninu, t.d. á sviði frjó- semi og vonandi gefst tækifæri til frekari rannsókna á spatti í ís- lenska hrossastofninum. Einnig eru bundnar vonir við að rafræn sjúkdómaskráning opni möguleika á rannsóknum á orsökum sjúk- dóma með faraldsfræðilegum að- ferðum. Margt má líka læra af rannsóknum á öðrum hrossakynj- um og það er auðvitað ekki nauð- synlegt að endurtaka allar rann- sóknir hér þó við séum með annað hrossakyn. Ég tel einnig mikilvægt að halda til haga reynslu kynslóð- anna og þeirri þekkingu sem aflað hefur verið í gegnum tíðina. Þekking er einskis virði nema hún komist til skila til þeirra sem halda hross og nota. Fræðsla er því afar mikilvæg, ekki síst þar sem nýtt fólk bætist í hóp þeirra sem stunda hestamennsku. Ég tel jafn- Ný reglugerð um aðbúnað, umhirðu og heilbrigð- iseftirlit hrossa hefur nýlega tekið gildi og fékk Bændablaðið Sigríði Björnsdóttur, dýralækni hrossasjúkdóma, til að svara nokkrum spurning- um varðandi nýju reglugerðina en þar er marga athyglisverða punkta að finna, sem hestamenn ættu að kynna sér vel. Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni á www.reglugerd.is og er hún númer 160/2006. Atli Már Ingólfsson, lögfræðingur í Landbúnað- arráðuneytinu fór fyrir nefnd sem skipuð var til að endurskoða reglugerðina sem að auki var skipuð Sigríði Björnsdóttur, Guðlaugi Antons- syni, hrossaræktarráðunauti og Hermanni Sveinbjörnssyni frá Umhverfisráðuneytinu. Mörg nýmæli í nýrri reglugerð um aðbúnað, umhirðu og heil- brigðiseftirlit hrossa - segir Sigríður Björnsdóttir, dýralæknir hrossasjúkdóma Sigríður holdastigar stóðið sitt í hretinu nú á dögunum. Glaðningur frá Kálfsstöðum, foli á 3ja vetri, er í góðum holdum (3,5). /Bændablaðið Magnús Hlynur.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.