Bændablaðið - 24.03.2011, Blaðsíða 18
18 - Jarðrækt og vorverk 2011 BLAÐAUKI BÆNDABLAÐSINS 24. MARS 2011
Á vegum Endurmenntunar
Landbúnaðarháskóla Íslands er í
gangi námskeiðsröð í jarðrækt og
fóðuröflun. Námið hófst 14. janú-
ar og stunda það 22 nemendur
af öllu landinu. Námið byggir á
verklegum helgum frá hádegi á
föstudegi fram á laugardag í alls
átta skipti, frá janúar til mars og
aftur frá október og fram í mars.
Þess á milli eru unnin verkefni
og farið í gegnum ítarefni á fjar-
námsvef skólans, skoli.is.
Námið er afmarkað í aðskilin við-
fangsefni sem lúta að hverri árstíð
fyrir sig og þeirri vinnu sem á sér
stað á hverjum tíma. Upplýsingar
frá eigin býli eru því mikið notaðar,
hvort sem um er að ræða rekstrar-
gögn, efnagreiningar, kortagrunna
eða annað. Námið á því að nýtast
beint til betri og hagkvæmari starfa,
sem og sú reynsla sem nemendur
miðla sín á milli.
Á komandi hausti byrjar námið á
skoðunarferð en á þeim tíma verður
uppskerutímanum að mestu lokið.
Kennslufyrirkomulag Sáðmannsins
er því afar fjölbreytt; fyrirlestrar,
sýnikennsla, verkleg þjálfun,
skoðunarferðir og fræðsla í gegnum
fjarnám.
Grunnupplýsingar um námið
má finna á www.lbhi.is undir
Sáðmaðurinn en áhugasamir eru
hvattir til að hafa samband við end-
urmenntun@lbhi.is sé áhugi fyrir að
innritast í Sáðmanninn þegar hann
verður næst boðinn fram. Stök nám-
skeið í jarðrækt eru einnig reglulega
á dagskrá Endurmenntunar LbhÍ og
má kynna sér yfirlit námskeiða á
www.lbhi.is/namskeid.
Sáðmaðurinn
– námskeiðsröð um jarðrækt
Kornrækt/ha Túnrækt/ha Grænfóðurrækt/ha
2008 2009 2010 2008 2009 2010 2008 2009 2010
Búnaðarsamband
Austur-Húnavatnssýslu
181 219 194 145 167 124 258 266 294
Búnaðarsamband
Austur-Skaftfellinga
153 205 185 157 92 132 297 267 297
Búnaðarsamband Austurlands 62 140 118 190 188 171 184 230 237
Búnaðarsamband Borgarfjarðar 322 253 246 126 257 162 232 235 243
Búnaðarsamband Dalamanna 35 41 59 84 90 59 85 63 66
Búnaðarsamband
Eyjafjarðar
497 534 420 341 334 418 341 398 462
Búnaðarsamband Kjalarnesþings 10 0 0 29 35 29 34 30 26
Búnaðarsamband
Norður-Þingeyinga
10 17 13 29 65 68 121 139 155
Búnaðarsamband Skagfirðinga 449 528 446 380 242 261 413 385 385
Búnaðarsamband Snæfellinga 240 153 172 97 85 56 106 132 108
Búnaðarsamband Strandamanna 0 0 0 20 30 16 46 25 32
Búnaðarsamband Suður-
Þingeyinga
189 227 188 146 159 136 420 346 357
Búnaðarsamband Suðurlands-
Árnessýslu
796 1078 994 607 463 508 674 570 605
Búnaðarsamband Suðurlands
- Rangárvallasýslu
1232 1173 1046 921 581 528 632 565 603
Búnaðarsamband Suðurlands -
V-Skaftfellinga
130 125 100 158 99 107 197 265 297
Búnaðarsamband
Vestfjarða
5 9 8 66 63 50 82 76 74
Búnaðarsamband
Vestur-Húnavatnssýslu
17 84 106 117 76 92 140 133 168
Alls 4328 4786 4295 3613 3026 2917 4262 4125 4409
Yfirlit yfir jarðrækt áranna 2008-2010
Þátttakendur í upphafi náms í janúar sl. Mynd | Ásdís Helga Bjarnadóttir
Taflan sýnir heildar korn-, tún- og grænfóðurrækt áranna 2008 – 2010. Upplýsingarnar eru
byggðar á úttektum vegna jarðabótastyrkja.
!!
C))
!
+!
3!!
$!)
%-+$ +!$
)#!!
-# ! )!!$
!= !
+
! $
!
%
4
4
%-+$
C!
3
#!
!!
(%
(+
! , $
!!
%
!$%
("
! ,
4!
D, -
.)!!
%
), +
?
)!+
$
-!
)
%
,!
%-+$ ! @"
E !$
"
+
$
A
) <3
+
$ -$$
/
)
3+
E !$!!
#
&)
" ))
+
%-+
:
!$)? ;
"
!!
.
3!!
%
8
).!$
+!
+
F
))
+
!
=!
8AA
,
E+
,)
%
,!
(%
%
$+
(%
$ !!
&
++
+
(!!
%-+
+
+
$
7+
++
! )!
%
(
!=
-.!+
! !$
3"
2+
*
%3"+
(
$ !
!=!
-.!
%-+
!
%
+
*-!
A) <3
G
G
/
)<3
G
AA
:
$;
8AA
H
?
1%
22
!$
.
9 +
-!$
+
, !!
))
+
%
!%!
22 =! /
0
(/
8-
Á síðasta ári voru greiddir styrkir út á ræktun á korni, grasi og
grænfóðri. Fjármunir dugðu til að greiða 13.500 krónur á ha upp
að 20 ha ræktun og 9.000 krónur upp að 40 ha ræktun.
Stefnt er að því að fjármögnunin verði með sama hætti á þessu ári,
með fyrirvara um að fjármögnun gangi eftir.
Reglurnar eru eftirfarandi:
Framlag fæst til sáningar þar sem korn-, tún- og grænfóðurrækt er
ætluð til fóðurframleiðslu eða beitar samtals á a.m.k. tveimur ha.
Uppskera er kvöð. Úttektaraðili sannreynir hvort um sé að ræða
góða hefðbundna korn-, tún- eða grænfóðurrækt. Framlag á ha fyrir
hvert bú ræðst af umfangi ræktunar. Gert er ráð fyrir að það verði kr.
15.000 á ha að 20 ha ræktun og 10.000 á ha upp að 40 ha ræktun,
en skerðist á hvern ha hlutfallslega ef fjármunir hrökkva ekki til. Ef
afgangur verður deilist hann jafnt á alla ræktaða hektara. Aðeins er
greitt út á heila ha og venjulegar reglur um upphækkanir gilda. Til að
standast úttekt þarf umsækjandi að leggja fram viðurkennt túnkort af
ræktarlandinu (t.a.m. úr túnkortagrunni BÍ). Umsókn til búnaðarsam-
banda um úttekt að hausti jafngildir umsókn um styrk.
Með búi er í þessum reglum átt við rekstrareiningu þar sem bún-
aðargjaldsskyld framleiðsla er stunduð og er með sérstakt virðisauka-
skattsnúmer. Aðeins einn styrkur er greiddur til hvers aðila og aðila
sem eru tengdir honum. Tengdir aðilar teljast aðilar, þar sem annar
aðilinn, einstaklingur eða lögaðili, á beint eða óbeint meirihluta hluta-
fjár í hinum aðilanum eða fer með meirihluta atkvæðisréttar. BÍ er
heimilt að krefja umsækjanda um sönnun þess að hann standi fyrir
ræktun. Ágreining um framangreint skal leggja fyrir stjórn BÍ.
Styrkir til jarðræktar
árið 2011
Búnaðarlagasamningur
Sauðfjársamningur
Mjólkursamningur
Alls
11,7 milljónir kr.
35 milljónir kr.
86,1 milljón kr
132,8 milljónir kr.