Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.01.2012, Qupperneq 10

Fréttablaðið - 11.01.2012, Qupperneq 10
11. janúar 2012 MIÐVIKUDAGUR10 Danmörk Samstarfsla nd Ambient e 2012 Stærstu tilboðin, mikilvægustu straumar og stefnur, bestu hugmyndirnar fyrir vöruúrvalið. Leiðandi vörusýning heims neysluvara fær markaðinn til að blómstra og verður til þess að fyrirtæki ná árangri. Þar má hitta fl eiri en 4.500 alþjóðlega sýnendur sem sýna einstakt úrval af vörum – Þetta tryggir góð viðskipti og er undirstaða árangurs. Nálgast má upplýsingar og pöntun aðgöngumiða í forsölu á 10. – 14. 2. 2012 SKÁLHOLT Stefnt er að því að ljúka smíði Þorláksbúðar við Skálholts- kirkju í sumar. Deilur hafa staðið um verkefnið þar sem börn Harðar Bjarnasonar, arkitekts kirkjunnar, voru ósátt við bygginguna og telja hana skaða heildarmynd kirkjunnar og umhverfis hennar. Árni Johnsen, talsmaður Þorláks- búðarfélagsins, segir í samtali við Fréttablaðið að húsið sé að mestu tilbúið að utan. „Við erum búnir að klæða alla veggi og loft að innan en eigum eftir að setja timbur í gólfið og á gömlu hleðslurnar, sem verða setbekkir. Við erum að vonast til þess að að við náum að ljúka ákveðnum kostnaðar- þáttum til að við getum skilað því af okkur í sumar.“ Árni vill ekki kannast við að mik- ill styr hafi staðið um framkvæmd- ina. „Það voru nokkrir sem voru á móti því en heimamenn og þúsundir manna sem hafa komið þar hafa lýst yfir ánægju með þetta. Nú er þetta búið. Þetta er sögulegt hús með skemmtilega sögu. Þetta er lítið, fal- legt hús, ekki nema fjögurra metra hátt, og mikið lagt í gerð þess.“ Kristján Valur Ingólfsson, vígslu- biskup í Skálholti, segir í samtali við Fréttablaðið að ekki væri enn farið að áforma notkun á Þorláks- búð, enda hafi kirkjan ekki fengið húsið afhent. Í raun liggi ekki fyrir með hvaða hætti hún verði notuð eða hvort kyrrð sé komin á málið. Hörður H. Bjarnason og Áslaug Guðrún systir hans, afkomendur Harðar arkitekts, hafa lýst yfir and- stöðu sinni við byggingu búðarinn- ar, enda telja þau að með henni skað- ist ásýnd Skálholtskirkju. Úrskurðarnefnd skipulags- og byggingamála vísaði hins vegar frá kæru systkinanna þar sem búðin er ekki viðbygging við kirkjuna. „Það var ekki tekið tillit til þess að kirkjan og nánasta umhverfi sé ein heild,“ sagði Hörður H. Bjarna- son í samtali við Fréttablaðið. Herði skilst að ekki sé hægt að fara lengra með málið. „Ekki nema farið verði í dómsmál, sem er bæði kostnaðarsamt og erfitt að spá um niðurstöðu þess. Þannig að ég held að okkar kostir séu uppurnir ef svo má segja.“ Þau eru hins vegar allt annað en sátt við lok mála og segja fagaðila í stéttinni, þar á meðal Arkitekta- félag Íslands og Bandalag íslenskra listmanna, hafa ályktað sterklega gegn byggingu búðarinnar á þess- um stað, án þess að tillit hafi verið tekið til þess. thorgils@frettabladid.is Smíði Þorláks- búðar verður lokið í sumar Framkvæmdir við Þorláksbúð við Skálholtskirkju halda áfram og stefnt að verklokum í sumar. Árni Johnsen segir almenna sátt um verkið en afkom- endur arkitekts eru enn ósáttir. Eina í stöðunni er málsókn, sem ólíklegt er að af verði. LJÓS Í GLUGGA Þorláksbúð er nær tilbúin að utan. Framhliðin er klár og á Þorláks- messu, dánardægri Þorláks helga, var kveikt á ljósi í kvistglugga búðarinnar. MYNDIR/BREKI JOHNSEN ALLT HANDUNNIÐ Tréverk innanbúðar er einnig langt komið þar sem veggir og loft hafa verið klædd. Enn á eftir að setja timbur á hleðslurnar, sem munu verða setbekkir. STJÓRNMÁL „Kjósendur eiga að úrskurða um hvort ég hafi breytt rangt eða rétt í kjörklefanum. Að vera dreginn fyrir rétt af póli- tískum andstæðingum minnir á Úkraínu þar sem forsætisráð- herrann hefur verið dæmdur fyrir að hafa skrifað upp á slæm- an samning um gasflutninga.“ Þetta er meðal þess sem haft er eftir Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, í viðtali sem birt var á vef Svenska Dagbladet síðastliðinn sunnudag. Geir getur þess jafnframt að undanfarin tvö ár hafi verið erfið. Jafnvel þótt hann sé sann- færður um sakleysi sitt ríki óvissa um framtíðina. „Ég er sex- tugur og enn fullur af orku. En ef ég fletti upp nafninu mínu á net- inu birtist alltaf það sama.“ - ibs Geir í Svenska Dagbladet: Líkir málinu við Úkraínu MALASÍA, AP Dómsmál hefur verið höfðað í Malasíu til að kanna lögmæti banns sem lögregla í landinu setti á baráttuhátíð gegn fordómum í garð samkynhneigðra. Málatilbúnaðurinn varpar ljósi á mis- rétti sem samkynhneigðir verða fyrir í landinu. Mannréttindasamtök víða um heim skora á sama tíma á stjórnvöld í Mal- asíu, þar sem múslímar eru í meirihluta, að nema úr gildi lög sem banna sambönd fólks af sama kyni. Eftir að leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Malasíu, Anwar Ibrahim, var í vikunni sýknaður af ákæru um að hafa haft kyn- mök við fyrrum aðstoðarmann sinn hófu Amnesty International og Mannréttinda- vaktin (Human Rights Watch) að gagn- rýna stjórnvöld í Malasíu fyrir að viðhalda lögum þar sem viðurlög við samkynhneigð eru allt að 20 ára fangelsi. Skipuleggjendur listahátíðarinnar „Kyn- frelsi“ sem haldin hefur verið árlega í Malasíu frá árinu 2008 biðluðu til hæsta- réttar landsins í von um að fá hnekkt banni sem sett var á viðburðinn í fyrra. Hátíðin hefur til þessa ekki látið mikið yfir sér, en á dagskránni voru tónlistar- viðburðir, framsögur um málefni tengd kynferði og veggspjaldasýning. Lögregla bannaði viðburðinn eftir að samtök mús- líma kvörtuðu yfir því að hann gæti rask- að ró almennings. - óká Láta reyna á bann lögreglu við listahátíð samkynhneigðra en múslímar töldu hana geta raskað ró fólks: Samkynhneigðir taka slaginn í Malasíu HAFÐI BETUR Anwar Ibrahim (fyrir miðju), leiðtogi stjórnarand- stöðu í Malasíu, mætir fyrir dóm í Kúala Lúmpúr um miðjan desember. Hann var sakaður um samkynhneigð. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FALLIST Í FAÐMA Þingkonan Gabrielle Giffords faðmar Pam Simon, en báðar særðust í skotárás fyrir ári þar sem sex létu lífið. Minningarathöfn var haldin í Tucson í Arizona á sunnudag. FRÉTTABLAÐIÐ/AP SLYS Um þrjú þúsund kjúklingar drápust þegar vöruflutningabíll frá Reykjagarði fór út af vegin- um á Holtavörðuheiði á sunnu- dagsnótt. Alls voru um sex þús- und kjúklingar í bílnum á leið til slátrunar á Hellu, en helmingur- inn drapst í óhappinu. Dauðu fuglunum þurfti að farga og hleypur tjónið á millj- ónum, að sögn Matthíasar Guð- mundssonar, framkvæmdastjóra Reykjagarðs. „Þetta er töluvert mikið tjón,“ segir hann. „Helmingurinn drapst úr loftleysi þegar bíllinn rann svona til og svo drápust þeir sem lentu yst einfaldlega úr kulda.“ Fjölmennt lið björgunarsveitar- manna var kallað út þegar bíllinn fór út af. Sveitin selflutti búrin, yfir í annan bíl sem flutti fuglana í sláturhús. Mikið rok var á staðn- um sem gerði flutningana erfið- ari en ella. Reykjagarður á eftir að ræða við verktakafélagið sem sá um flutningana vegna trygg- ingamála. „Við lentum í svipuðu fyrir um það bil tíu árum þegar flutninga- bíll fór á hliðina,“ segir Matthías, en fyrirtækið keyrir um 400 til 500 ferðir sem þessar á ári. „Þannig að þetta eru tvö skipti af um fimm þúsund ferðum. Sem er ekki hægt að segja að sé hátt hlutfall.“ - sv Óhapp á Holtavörðuheiði veldur milljónatjóni: Þúsundir kjúklinga drápust á heiðinni Það voru nokkrir sem voru á móti því en heimamenn og þúsundir manna sem hafa komið þar hafa lýst yfir ánægju með þetta. ÁRNI JOHNSEN TALSMAÐUR ÞORLÁKSBÚÐARFÉLAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.