Fréttablaðið - 11.01.2012, Síða 16
11. JANÚAR 2012 MIÐVIKUDAGUR2
Forsjá barna úr sambúðarslitum 1991-2010
Nýjar olíulindir og eftirspurn
Samkvæmt nýlegri skýrslu um orkumál frá BP hefur verulegt magn þekktra
olíubirgða í jörðu vaxið nokkuð ört síðastliðna þrjá áratugi. Á sama tíma og
eftirspurn hefur stöðugt aukist, hefur fundur nýrra olíulinda aukist umfram
eftirspurn. Myndin hér fyrir neðan sýnir hlutfallslega aukningu í eftirspurn
frá árinu 1980 til ársins 2010 og aukningu í skráðum nýjum olíulindum yfir
sama tímabil. Á þessu 30 ára tímabili hefur eftirspurn heimsins eftir olíu
aukist um 43% en skráðar nýjar olíulindir í tunnum talið aukist um 107%.
Samkvæmt spá BP um orkunotkun munu núverandi birgðir duga í 46 ár að
því gefnu að engar nýjar olíulindir finnist.
Fróðleiksmolinn
Dagatal viðskiptalífsins
FIMMTUDAGUR 12. JANÚAR
➜ Fróðleikur á fimmtudegi – fundur KPMG
➜ Gjaldeyrisforði og tengdir liðir –hagtölur SÍ
➜ Greiðslumiðlun –hagtölur SÍ
➜ Útboð ríkisvíxla
FÖSTUDAGUR 13. JANÚAR
➜ Trúfélagsbreytingar
➜ Atvinnuleysi í desember
MÁNUDAGUR 16. JANÚAR
➜ Mannfjöldi á 4. ársfjórðungi 2011
➜ Tryggingafélög – hagtölur SÍ
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR
➜ Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsv.
➜ Fiskafli í desember
➜ Samræmd vísitala neysluverðs des. 2011
Allar markaðsupplýsingar eru aðgengilegar á
dagatal viðskiptalífsins
1995 2000 2005 2010
700
600
500
400
300
200
100
0
Faðir með forsjá
Móðir með forsjá
Sameiginleg forsjá
1985 1990 1995 2000 2005 2010
80%
40%
0%
-40%
Allur heimurinn: Eftirspurn eftir olíu
Allur heimurinn: Magn nýrra olíulinda
Það sparast pláss og tími
með lausnum frá Rými
– fyrir alla muni
Ráðgjöf
Hönnun
Sérsmíði
Þjónusta
Afmælis-
tilboð á
hillum
-20%
Frábærar lausnir fyrir stofnanir, einstaklinga og fyrirtæki
75
ÁR
A
Erum flutt í Brautarholt 26, 105 Reykjavík, sími 511-1100 – rymi@rymi.is – www.rymi.is
Geymslu- og lagerhillur
Skjalaskápar á hjólum
Starfsmanna- og munaskápar
Verslunarinnréttingar
Gínur og fataslár
Lagerskúffur og bakkar
Ofnar og hitakerfi
Sorpílát - úti og inni
15%
nýjársafsláttur
á hillum
SKOÐA NÁNAR: http://data.is/txXhnE
SKOÐA NÁNAR: http://data.is/yWbJ4q
LÁNASTARFSEMI
Þorgils Jónsson
thorgils@frettabladid.is
Efnahags- og viðskiptaráðuneytið
stefnir að því að leggja fram til
umsagnar drög að frumvarpi um
neytendalán í næsta mánuði. Með
því verður innleidd Evróputilskip-
un um neytendalán sem eykur og
skýrir réttindi neytenda og lán-
veitendum verður meðal annars
gert að framkvæma greiðslumat
áður en samið er um lán.
Smálánafyrirtæki falla undir
þessi fyrirhuguðu lög, en starf-
semi þeirra hefur verið talsvert
umdeild síðustu misseri, en nú
eru á markaði hérlendis fyrirtæk-
in Kredia og Hraðpeningar sem
lána meðal annars í gegnum sms-
skeyti. Afkoma fyrirtækjanna
hefur verið ágæt þar sem fram-
kvæmdastjóri Kredia segir rekst-
urinn í jafnvægi og Hraðpening-
ar högnuðust um fjórtán milljónir
árið 2010.
Meðal annars bárust nokkr-
ar umsagnir varðandi frumvarp
efnahags- og viðskiptaráðherra í
apríl síðastliðnum þar sem Vel-
ferðarvakt vel-
ferðarráðu-
neytisins varaði
til dæmis við
starfsemi smá-
lánafyrirtækja
og vildi helst að
þau yrðu bönn-
uð.
L ei fu r A .
Haraldsson,
framkvæmda-
stjóri Kredia, segist þó, í samtali
við Markaðinn, fagna því að til-
skipunin verði innleidd.
„Við fögnum þessu heils hugar
og erum búin að bíða eftir því að
þetta verði innleitt hér á landi.“
Aðspurður segist Leifur ekki
telja að þessi nýja löggjöf muni
hafa neikvæð áhrif á rekstur
fyrir tækisins.
„Við störfum þegar eftir þess-
um reglum að mestu leyti. Við
erum einnig með rekstur í Evrópu
[í Tékklandi] þar sem við förum
eftir Evrópusambandsreglunum
og okkar vinnureglur á Íslandi
eru nokkurn veginn alveg eins.“
Leifur segir Kredia vinna að
því að hefja starfsemi í enn einu
landinu og stefni að því að færa
sig út til enn fleiri landa næstu
tvö ár.
Varðandi afkomu fyrirtækis-
ins segir Leifur að gerð ársreikn-
ings fyrir árið 2010 sé ekki enn að
fullu lokið og því liggi rekstrar-
niðurstaða ekki fyrir.
„En reksturinn í fyrra kom
okkur yfir strikið og við erum
mjög ánægðir með að vera búnir
að ná jafnvægi í reksturinn eftir
þessi þrjú ár sem við höfum starf-
að.“
Hitt fyrirtækið á markaðnum,
Hraðpeningar, skilaði ársreikn-
ingi rétt fyrir áramót og þar
kemur fram að hagnaður ársins
2010 var rúmar fjórtán milljónir.
LÁNAUMSÓKN Í SMS Íslensku smálánafyrirtækin virðast ganga vel og segir
framkvæmdastjóri Kredia að fyrirtækið sé vel búið undir komandi lagabreytingu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Smálánafyrirtæki
sátt við ný lánalög
Innleiðing Evróputilskipunar um neytendalán skyldar smálánafyrirtæki til að gera
greiðslumat á viðskiptavinum. Rekstur fyrirtækjanna gengur vel og þau skila hagnaði.
LEIFUR A.
HARALDSSON
Árni Páll Árnason, þáverandi efnahags- og viðskipta-
ráðherra, sparaði ekki stóru orðin um smálánafyrirtækin
eftir að þau komu fyrst fram á sjónarsviðið hér á landi. Í
viðtali við Stöð 2 í upphafi árs 2010 sagði hann lánveit-
ingar smálánafyrirtækja til ungmenna á „Mörg þúsund
prósenta vöxtum“ vera „siðlausa sjóræningjastarfsemi“.
Hann hugðist beita sér fyrir lagasetningu til að koma
böndum á starfsemi fyrirtækjanna, en þrátt fyrir að hann
hafi lagt fram frumvarp um málið í fyrra er það ekki fyrr
en nú sem stefnir í að löggjöfin fari í gegn.
KALLAÐI SMÁLÁNAFYRIRTÆKI SJÓRÆNINGJA