Fréttablaðið - 11.01.2012, Blaðsíða 20
Mannbroddar eru mikið öryggistæki fyrir gangandi vegfarendur og auð-
velda mörgum eldri borgurum að komast leiðar sinnar áfallalaust. Algengustu
mannbroddarnir eru með litlum göddum og henta vel í þunnri ísingu. Grófir
broddar eru betri þegar um er að ræða mikinn snjó og þykkan ís.
Birgir Hólm er mikill áhugamaður um dráttarhunda og reynir að fara út að æfa þá á hverjum degi árið um kring. MYND/HELGI STEINAR
við ákváðum að velja þessa teg-
und,“ segir Birgir. Hann segir
þá Huskyhunda sem hann þekki
hinar gæfustu skepnur. „Dótt-
ir okkar er tveggja og hálfs árs
og hún skríður ofan á hundun-
um, tekur dótið þeirra og færir
til matinn þeirra og þeir láta sér
það allt vel líka. Ég held að kvik-
myndir hafi komið þeirri hug-
mynd inn hjá fólki að þeir séu
hættulegir.“
Sleðahundafélag Íslands var
stofnað á síðasta ári. Það heldur
Íslandsmeistaramót í annað sinn í
mars á Mývatni. Auk sleðadráttar
verður þar í fyrsta sinn keppt um
Íslandsmeistaratitil í að hundar
dragi fólk á gönguskíðum. Það
telst líka til tíðinda hjá félaginu
að tvær konur eru á leið til Ítalíu
í febrúar að dæma í Evrópumeist-
arakeppni hreinræktaðra hunda
sem fram fer í Ölpunum. Á síð-
asta ári sóttu þær dómaranám-
skeið á sömu slóðum og verða
trúlega fyrstu Íslendingarnir til
að taka að sér dómgæslu á móti
erlendis.
gun@frettabladid.is
Framhald af forsíðu
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is
Sendum frítt úr vefverslun
www.lindesign.is
ÚTSALA
allt að
50%
afsláttur
UPPLÝSINGAR O
Nýtt námskeið
hefst 13. janúar
Sölufulltrúar:
Jóna María
jmh@365.is 512 5473
Brynja Dan
brynjadan@365.is 512 5465
Snorri
snorris@365.is 512 5457
Íslenska tölvuleikjafyrirtækið
Locatify hefur undanfarið verið
að hanna leiðsöguforrit í snjall-
síma og spjaldtölvur fyrir erlenda
ferðaþjónustuaðila. GPS-staðsetn-
ingahnit í forritunum gera notend-
um kleift að hrinda sjálfkrafa af
stað kortum, myndum og fleiru frá
vissum svæðum.
„Upphaflega bjuggum við til
eigið forrit af suðvesturhorni
Íslands í tilraunaskyni og settum á
markað haustið 2010. Það var stíl-
að inn á erlenda ferðamenn á leið
til landsins og gaf glögga mynd
af því sem þeirra beið. Forritinu
var svo vel tekið að við bjuggum
til kerfi, eins konar undirstöðu
sem ferðaþjónustuaðilar geta nú
byggt ofan á, gefið sjálfir út og
notað til að kynna sína starfsemi,“
útskýrir Leifur Björn Björnsson,
leikjahönnuður og annar stofnandi
Locatify.
Að hans sögn er Locatify þegar
komið í samstarf við ferðaþjón-
ustuaðila í Þýskalandi, Noregi,
Færeyjum, á Grænlandi, Eng-
landi og víðar um framleiðslu á
forritum sem veita leiðsögn um
þarlend svæði. Stærri markaðir
séu í sigtinu og sá innlendi verði
ekki undanskilinn frá þjónustunni.
„Við bjóðum nú ferðaþjónustuaðil-
um um land allt að setja eigið efni,
ljósmyndir, kort, hljóðupptökur og
aðrar upplýsingar í þetta format
og gefa út með okkar aðstoð. Og ef
með þarf getum við vísað á ljós-
myndara, upptökumenn og aðra
verktaka.“
Þá segir Leifur fyrirtækið
enn fremur vera að þróa ratleiki
í snjallsíma sem byggi á sama
grunni og leiðsöguforritin. „Þá
birtast á skjánum kort, spurning-
ar, áskoranir og fleira sem teng-
ist staðsetningu,“ upplýsir hann
og tekur sem dæmi ratleik gerð-
an í samvinnu við Kötlu Jarðvang,
jarðvanga í Eistlandi og Noregi,
Menntaskólann í Kópavogi og
Háskólann í Stafangri þar sem
áhersla er á hópefli og vettvangs-
ferðir nemenda á ýmsum skóla-
stigum. „Þeir læra um staðar-
hætti með því að leysa þrautir á
staðnum.“
Spurður hvar megi nálgast for-
ritin segir hann ferðaþjónustuað-
ila geta haft samband og sótt um
aðgang að kerfinu á heimasíðu
Locatify á slóðinni locatify.net.
„Leiðsagnirnar getur almenn-
ingur hins vegar sótt í vefverslun
Apple, App Store, og bráðlega á
Google Market. Sumar eru ókeyp-
is en aðrar kosta allt frá einni og
upp í fimm evrur eftir stærð og
umfangi.“ roald@frettabladid.is
Víkka út
sjóndeildarhringinn
Tölvuleikjafyrirtækið Locatify er komið í samstarf við ýmsa erlenda ferðaþjónustuaðila um hönnun og
framleiðslu á leiðsöguforritum í síma og tölvur. Innlendum aðilum stendur eins þjónusta til boða.
Leifur Björn Björnsson og Steinunn Anna Gunnlaugsdóttir hjá fyrirtækinu Locatify,
sem hannar leiðsöguforrit og ratleiki fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Nýverið sendi
fyrirtækið frá sér leiðsöguforrit, SmartGuide North Atlantic, sem veitir upplýsingar um
Noreg, Grænland og Reykjanesið. Það má nálgast á App Store. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN