Fréttablaðið - 21.01.2012, Blaðsíða 51
www.nyherji.is
VIÐ VILJUM
RÁÐA!
Allar umsóknir og fyrirspurnir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og þeim svarað. Ef þú hefur áhuga og telur þig
hafa réttu eiginleikana skaltu senda inn umsókn ásamt ferilskrá á heimasíðu Nýherja, www.nyherji.is, fyrir 30. janúar nk.
Nánari upplýsingar og fyrirspurnir veitir Valka Jónsdóttir, starfsmannastjóri, valka.jonsdottir@nyherji.is.
Sérfræðingur í ráðgjöf og innleiðingu
á Microsoft lausnum
Ráðgjöf og innleiðing á lausnum frá Microsoft, m.a. SQL, Active Directory,
Exchange, Sharepoint, System Center og Office 365.
Hæfniskröfur:
Að minnsta kosti þriggja ára reynsla í ráðgjöf og innleiðingu Microsoft lausna.
Viðeigandi vottanir frá Microsoft.
Þekking á netkerfum æskileg.
Háskólamenntun er kostur.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Þorvaldur Einarsson,
deildarstjóri sérfræðilausna, thorvaldur.einarsson@nyherji.is.
Sérfræðingar í IBM hugbúnaðarlausnum
Innleiðing og ráðgjöf á IBM TIM/TAM (Tivoli Identity
Management og Tivoli Access Management) lausnum hjá
viðskiptavinum Nýherja.
Hæfniskröfur:
Reynsla af IBM hugbúnaði er kostur.
Góð tæknikunnátta ásamt reynslu af þjónustu.
Reynsla af auðkenningarkerfum s.s. AD, Domino og LDAP er kostur.
Tæknilegar vottanir eru kostur.
Háskólamenntun er kostur.
Ráðgjöf og rekstur á IBM TSM afritunarlausnum hjá
viðskiptavinum Nýherja.
Hæfniskröfur:
Reynsla af TSM og Linux/Unix er kostur.
Reynsla af gagnagrunnum og skýrslugerð með BI verkfærum er kostur.
Góð tæknikunnátta ásamt reynslu af þjónustu.
Tæknilegar vottanir eru kostur.
Háskólamenntun er kostur.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Ásmundur Bjarnason,
deildarstjóri rekstrarlausna, asmundur.bjarnason@nyherji.is.
Tæknimaður á Egilsstöðum
Þjónusta við viðskiptavini og umsjón kerfisrýmis. Viðkomandi
þarf að takast á við fjölbreytt verkefni og geta unnið sjálfstætt.
Hæfniskröfur:
Góð tæknikunnátta og áhugi á vélbúnaði.
Reynsla af Microsoft umhverfi. AD, SCCM o.fl.
Reynsla af þjónustu.
Starfsmaður verður að vera búsettur á austurlandi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Ásmundur Bjarnason,
deildarstjóri rekstrarlausna, asmundur.bjarnason@nyherji.is.
Nýherji óskar eftir að ráða kraftmikla og heilsteypta ein-
staklinga sem vilja verða hluti af öflugu teymi úrvals
sérfræðinga. Við leitum að fólki með drifkraft, útsjónarsemi
og getu til þess að finna lausnir á ýmsum viðfangsefnum.
Í boði eru spennandi störf og mikil tækifæri fyrir rétta aðila.
Sérfræðingur í IP símkerfum
Uppsetning og þjónusta tölvubúnaðar tengdum Avaya og Cisco
símkerfum og samvirkni þeirra með Unified Communications (UC) kerfum.
Hæfniskröfur:
Þekking á netkerfum og IP símkerfum.
Þekking og reynsla af Linux stýrikerfum.
Háskólamenntun er kostur.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Þorvaldur Einarsson,
deildarstjóri sérfræðilausna, thorvaldur.einarsson@nyherji.is.
B
ra
nd
en
bu
rg
Tæknimaður í notendaþjónustu
Notendaþjónusta við fyrirtæki, sem og daglegur rekstur
ýmissa kerfa.
Hæfniskröfur:
Áhugi og þekking á tækni.
Reynsla af þjónustustörfum og rík þjónustulund.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Tæknilegar vottanir eru kostur.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar Zoëga,
deildarstjóri framlínuþjónustu, gunnar.zoega@nyherji.is.
Nýherji er eitt öflugasta upplýsingatæknifélag landsins. Hjá Nýherja og dóttur-
félögum starfa samtals um 540 starfsmenn á Íslandi, í Danmörku og Svíþjóð.