Fréttablaðið - 21.01.2012, Blaðsíða 78
21. janúar 2012 LAUGARDAGUR46
krakkar@frettabladid.is
46
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
Hvað sagði hringurinn við þrí-
hyrninginn?
Ái, þú stingur.
Mamma: María! Af hverju
situr þú þarna fyrir framan
spegilinn með lokuð augun?
María: Mig langar að sjá
hvernig ég lít út þegar ég sef.
Tónlistakennarinn: Brjánn!
Hvers vegna stendur þú uppi á
stólnum?
Brjánn: Til þess að ná hæstu
tónunum kennari.
Ásthildur Emma, 6 ára.
Svo var það Skotinn sem var
svo nískur að hann hló ein-
göngu á kostnað annarra.
Góðan daginn, ég er kominn
til að stilla píanóið þitt.
Jæja, ég hef ekki pantað neina
píanó stillingu.
Ég veit það vel, það var
nágranni þinn sem pantaði
stillinguna.
Ég hef ekki sofið í marga
daga.
Af hverju ekki?
Ég sef á næturnar.
YOUTUBE.COM þekkja líklega flestir. Þar er
hægt að leita að tónlist, horfa á teiknimyndir og
fá leiðbeiningar um allt milli himins og jarðar.
Ungfrú Svínka er
ein af aðalpersónum
Prúðuleikaranna. Hún
er mikil prímadonna
og staðráðin í því að
verða stjarna. Hún er
róleg á yfirborðinu en
getur á augabragði
orðið bálreið og þá
sérstaklega ef
hún móðg-
ast eða ef
einhver
stendur
í vegi
fyrir
henni.
Froskurinn Kermit er
án efa frægasti prúðu-
leikarinn og birtist
fyrst á skjánum árið
1955. Eitt sinn krafðist
Svínka þess að Ker-
mit giftist henni.
Hún segir þau mjög
hamingju söm en Ker-
mit er ósammála.
„Samband okkar
er einungis
starfstengt,“
hefur hann
látið hafa
eftir sér.
Fossi björn er
brandara karl. Ekki eru
þó allir sammála um
að brandararnir hans
séu góðir. Hann er
besti vinur Kermits
þótt þeir hafi stund-
um ólíkar skoðanir.
Geimveran Gonsó er
ofurhugi sem dembir
sér í hvert áhættu-
atriðið á fætur öðru.
Hann elskar að koma
fram og lítur á
það sem hann
gerir sem
list.
Hver með sínu sniði
Prúðuleikararnir eru nú sýndir í bíó. Kynnumst nokkrum þeirra betur:
Hvers konar leikrit er Fanný og
Alexander? „Þetta er fjölskyldu-
saga þar sem ýmislegt gengur á,
það er svolítið erfitt að útskýra.
Þið verðið bara að koma og sjá.“
Hvernig persóna er Fanný?
„Hún er frekar róleg, kurteis og
kemur vel fram við fólk.“
Er erfitt að leika hana? „Nei,
alls ekki erfitt, það er fyrst og
fremst mjög skemmtilegt.“
Eruð þið líkar, og þá hvernig?
„Já, ég held við eigum báðar það
sameiginlegt að við erum báðar
rólegar og kurteisar, það segir
mamma mín alla vega.“
Hvernig fékkstu hlutverkið?
„Það var bent á mig í prufur
fyrir þetta hlutverk.“
Hefurðu leikið eitthvað áður,
og þá hvað? „Já, ég lék í Þjóð-
leikhúsinu kött í Karde mommu-
bænum. Ég lék líka nokkur
hlutverk í söngleiknum Oliver
Twist í Þjóðleikhúsinu og hef
leikið í bíómyndum og talsett
teiknimyndir.“
Ertu aldrei stressuð fyrir sýn-
ingar? „Jú, ég var smá stress-
uð fyrir frumsýninguna því ég
þekkti svo marga sem komu að
sjá mig.“
Hefur eitthvað óvenjulegt gerst
á sýningu? „Nei, ekki ennþá.
Ég var svo kvefuð um daginn
og þurfti oft að passa að hnerra
ekki. Það var frekar fyndið.“
Í hvaða skóla ertu? „Ég er í
Hofsstaðaskóla í Garðabæ.“
Hver er uppáhalds náms-
greinin? „Mér finnst enska
skemmtilegust.“
En sú leiðinlegasta? „Æ, stærð-
fræði er nú ekki í uppáhaldi hjá
mér.“
Hvað gerirðu í frítímanum?
„Þegar ég er ekki í fimleik-
um og dansi þá er ég með vin-
konum mínum og svo geri ég
margt skemmtilegt með fjöl-
skyldunni.“
Hver eru helstu áhugamálin?
„Fimleikar, dans, leiklist, tón-
list, ferðalög og dýr.“
Áttu þér uppáhaldsbíómynd?
„Margar, til dæmis You Again,
Clueless og mér finnst alltaf
gaman að horfa á Home Alone
með fjölskyldunni minni um
jólin.“
En leikara eða leikkonu?
„Selena Gomez, Jim Carrey og
Lea Michele og auðvitað Himmi
sem leikur Alexander. Svo Selma
Björnsdóttir.“
Hver er uppáhaldssöngvarinn?
„Það eru Beyoncé og Adele.“
Heldurðu með einhverjum
sérstökum í Eurovision? „Ekki
ennþá, á eftir að hlusta á öll lögin
og velja svo.“
Áttu gæludýr? „Já, ég á hund
sem heitir Castro.“
Uppáhaldsmatur? „Það er jóla-
maturinn og allt meðlætið með
honum.“
Hvað langar þig að verða þegar
þú ert orðin stór? „Það er svo
margt skemmtilegt, get ekki
ákveðið mig strax. Þegar ég var
í leikskóla langaði mig að vera
flugfreyja en það verður bara
að koma í ljós.“
GAMAN AÐ LEIKA
Ísabella Rós Þorsteinsdóttir, 11 ára, hefur leikið í kvikmyndum, á sviði og talsett
teiknimyndir. Nú fer hún með hlutverk Fannýjar í leikritinu Fanný og Alexander.
EFNILEG Ísabella Rós Þorsteinsdóttir er önnur tveggja stúlkna sem fara með hlutverk
Fannýjar í Fanný og Alexander. Hin er Katrín Ynja Hrafnkelsdóttir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Á Vísi er hægt að horfa
á myndskreyttan upp-
lestur úr þessum sígildu
ævintýrum.
Hlustaðu á Dísu ljósálf
og Alfinn álfakóng á Vísi
Ævintýrið um Dísu ljósálf kom fyrst út á íslensku árið
1928 í þýðingu Árna Óla og hefur margsinnis verið
endurprentað. Dísa ljósálfur er ein klassískra sagna holl-
enska meistarans G.T. Rotman, sem fylgt hafa íslenskum
börnum í tugi ára.