Fréttablaðið - 21.01.2012, Blaðsíða 24
21. janúar 2012 LAUGARDAGUR24
É
g veit að það er ekki
auð velt að vinna í
ba nka gei ra num í
kreppum og að ýmsar
meiningar eru um
starf semi bankanna á
slíkum tímum. En mér hefur fund-
ist mikið til starfs fólks bankans
koma og þeirrar þekkingar sem það
býr yfir,“ segir Monica Caneman,
stjórnarformaður Arion banka.
Monica, sem er sænsk, tók við
starfi stjórnar formanns vorið 2010.
Hún situr sem sjálfstæður stjórnar-
maður og er því ekki eigin legur
fulltrúi neins eiganda. Monica
hefur töluverða reynslu af banka-
starfsemi á kreppu tímum þar sem
hún sat í framkvæmda stjórn sænska
bankans Skandinaviska Enskilda
(SEB) í banka kreppunni í Svíþjóð
á tíunda ára tug síðustu aldar. Hún
segir undan farin tæp tvö ár hafa
verið erfið en lærdóms rík. „Þegar
ég réð mig í starfið voru að stæður
á Íslandi mjög sér stakar. Landið
var í miðri kreppu og Arion banki
sjálfur var til tölu lega nýr, þótt hann
byggði á gömlum grunni. Það var að
mjög mörgu að huga innan bankans.
Þetta hafa því verið tvö frekar
krefjandi ár fyrir stjórnina og flest-
alla starfsmenn bankans sem fylgt
hefur mikið álag.“
Stórar áskoranir
Aðspurð um hverjar stærstu
áskoranirnar hafi verið þá segir
Monica þær hafa verið að búa til
starf hæfan banka. „Þegar ég kom
að áttu margir við skipta vina Arion
banka við mikil vanda mál að stríða.
Síðan þá hefur verið unnið að því
innan bankans að sigrast á þeim
vanda málum og ná árangri í endur-
skipu lagningu fyrir marga við-
skipta vini okkar. Það að búa til
bankann, takast á við þau vanda mál
sem hann glímdi við og að sjá til þess
að bankinn yrði starf hæfur til fram-
tíðar voru stærstu áskoranirnar. Að
mínu mati erum við að þoka okkur út
úr þessum endurskipulagningarfasa
og inn í nýja tíma þar sem kröftum
starfsmanna bankans verður í mun
meiri mæli beint að venjubundinni
bankastarfsemi. Það er því komið að
þeim tímapunkti að við getum farið
að horfa fram á við í ríkari mæli.“
Ekki í útrás
Hún telur möguleika íslensku bank-
anna þó fyrst og síðast liggja á
heimamarkaði. Ný útrás sé ekki
fyrirhuguð.
„Arion banki er íslenskur banki og
þetta er okkar heimamarkaður. Við
erum ekki að horfa til þess að kaupa
erlenda banka eða annað slíkt. Við
erum hins vegar með viðskiptavini
sem hafa þörf fyrir banka þjónustu
erlendis og það skiptir okkur máli að
geta veitt þeim þjónustu. Það verður
fyrst og síðast í gegnum samstarf
við aðra banka.
Við erum alhliða banki og ætlum
okkur að vinna með fyrirtækjum
jafnt sem einstaklingum. Það eru
tækifæri á öllum sviðum og mögu-
leikar fyrir okkur til að vaxa. Í við-
skipta banka starf seminni höfum við
kynnt ýmsar nýjar vörur, til dæmis
óverð tryggð húsnæðislán. Þau hafa
fengið góðar viðtökur.
Sjálfstæð gagnvart kröfuhöfum
Monica Caneman hefur verið stjórnarformaður Arion banka í tæp tvö ár. Hún sagði Þórði Snæ Júlíussyni frá upplifun sinni á
íslenska bankageiranum, krefjandi verkefnum og að það megi vel kenna bönkunum um margt sem gerðist á Íslandi fyrir hrun.
Íslendingar eiga að horfa fram á við
Monica telur að Íslendingum ætti að finnast mikið til þess koma hversu fljótt
landið virðist vera að ná sér eftir efnahagshrunið. „Hagvöxtur hér er 2-3% sem
er mun hærra en hjá flestum ríkjum Evrópu. Þegar ég les greinar um Ísland í
erlendum fjölmiðlum eru þær mjög jákvæðar. Þær fjalla um að landið sé að ná
sér hratt eftir efnahagsáföll og á listum yfir þau lönd sem ferðamenn vilja helst
heimsækja er Ísland oftar en ekki í fyrsta sæti. Efnahagur landsins, í samanburði
við mörg önnur lönd í Evrópu, er mjög sterkur. Ísland hefur jafnað sig nokkuð
vel og hratt. Að mínu mati væri það Íslendingum mjög hollt að dvelja ekki um
of við fortíðina og einbeita sér, reynslunni ríkari, að framtíðinni og möguleikum
Eðlilegt að bankar eignist fyrirtæki
Fréttablaðið hefur fjallað ítarlega um eignarhald banka á fyrirtækjum í óskyldum
rekstri á undanförnum mánuðum, en þau voru 132 talsins í nóvember síðast-
liðnum. Að sögn Monicu er þetta því miður eðlilegur fylgifiskur efnahagskreppu.
„Að taka yfir fyrirtæki er alltaf það síðasta sem banki vill gera. Það er lokaúrræði. Í
þrengingum verður að taka tillit til tvennra mismunandi hagsmuna. Annars vegar
ertu að eiga við viðskiptavin bankans og verður að veita honum þá möguleika
sem eru til staðar til að komast með sem bestum hætti út úr þeim aðstæðum
sem eru uppi. Á hinn bóginn verður að hafa hagsmuni bankans til hliðsjónar.
Ég held að þessir hlutir þurfi oft að taka tíma. Við Svíar fórum í gegnum svona
ferli þegar við lentum í okkar bankakreppu á tíunda áratugnum. Sumar þeirra
eigna sem bankarnir tóku þá yfir tók nokkur ár að selja. Markaðsaðstæður leyfðu
það einfaldlega ekki fyrr. Ef ekki er eftirspurn eftir tilteknum tegundum af fyrir-
tækjum og við getum ekki skapað slíkar aðstæður, þá er erfitt að selja. Þetta er því
náttúrulegt ástand við svona aðstæður.“
Vissulega er eftirspurn eftir
sumum þáttum bankaþjónustu
ekki mikil sem stendur. Það fer þó
vonandi að taka við sér. Það er líka
hlutverk bankans að koma fram með
nýjar lausnir og góðar vörur sem
laða að viðskiptavini.“
Sjálfstæð gagnvart eigendum
Eignarhaldið á Arion banka er í dag
með þeim hætti að Kaupskil ehf.,
félag í eigu slitastjórnar Kaupþings,
á 87% hlut og íslenska ríkið á 13%.
Monica segir það vera langtíma-
stefnu eigendanna að bankinn verði
seldur. Með hvaða hætti og til hverra
verði framtíðin að leiða í ljós. „Þegar
ég byrjaði hérna var áætlunin sú að
bankinn yrði seldur á fimm árum.
Það gæti orðið aðeins lengri tími eða
aðeins skemmri. Okkar hlutverk í
stjórninni er að gera stöðu bankans
eins góða og hægt er og við höfum
skýrt umboð frá eigendum okkar til
þess. En í framtíðinni mun eignar-
haldið örugglega taka breytingum
frá því sem það er í dag. Hvernig
bankinn verður seldur eða til hvers
er eitthvað sem eigendur hans hafa
með að gera. Það er spurning sem
þeir verða að svara.“
Kröfu hafar Kaup þings, sem í
raun eiga Arion banka, hlaupa á
þúsundum. Á meðal þeirra eru
al þjóð legir bank ar og vogunar-
sjóð ir sem keypt hafa skulda bréf á
■ ERLEND UMFJÖLLUN UM LANDIÐ ER JAFNAN JÁKVÆÐ
Áfram veginn í nýjum CAPTIVA
Komdu í reynsluakstur og kynntu þér hvað sölumenn okkar eru tilbúnir að gera fyrir þig.
Eigum Ca
ptiva til
afgreiðs
lu strax !