Fréttablaðið - 21.01.2012, Side 24

Fréttablaðið - 21.01.2012, Side 24
21. janúar 2012 LAUGARDAGUR24 É g veit að það er ekki auð velt að vinna í ba nka gei ra num í kreppum og að ýmsar meiningar eru um starf semi bankanna á slíkum tímum. En mér hefur fund- ist mikið til starfs fólks bankans koma og þeirrar þekkingar sem það býr yfir,“ segir Monica Caneman, stjórnarformaður Arion banka. Monica, sem er sænsk, tók við starfi stjórnar formanns vorið 2010. Hún situr sem sjálfstæður stjórnar- maður og er því ekki eigin legur fulltrúi neins eiganda. Monica hefur töluverða reynslu af banka- starfsemi á kreppu tímum þar sem hún sat í framkvæmda stjórn sænska bankans Skandinaviska Enskilda (SEB) í banka kreppunni í Svíþjóð á tíunda ára tug síðustu aldar. Hún segir undan farin tæp tvö ár hafa verið erfið en lærdóms rík. „Þegar ég réð mig í starfið voru að stæður á Íslandi mjög sér stakar. Landið var í miðri kreppu og Arion banki sjálfur var til tölu lega nýr, þótt hann byggði á gömlum grunni. Það var að mjög mörgu að huga innan bankans. Þetta hafa því verið tvö frekar krefjandi ár fyrir stjórnina og flest- alla starfsmenn bankans sem fylgt hefur mikið álag.“ Stórar áskoranir Aðspurð um hverjar stærstu áskoranirnar hafi verið þá segir Monica þær hafa verið að búa til starf hæfan banka. „Þegar ég kom að áttu margir við skipta vina Arion banka við mikil vanda mál að stríða. Síðan þá hefur verið unnið að því innan bankans að sigrast á þeim vanda málum og ná árangri í endur- skipu lagningu fyrir marga við- skipta vini okkar. Það að búa til bankann, takast á við þau vanda mál sem hann glímdi við og að sjá til þess að bankinn yrði starf hæfur til fram- tíðar voru stærstu áskoranirnar. Að mínu mati erum við að þoka okkur út úr þessum endurskipulagningarfasa og inn í nýja tíma þar sem kröftum starfsmanna bankans verður í mun meiri mæli beint að venjubundinni bankastarfsemi. Það er því komið að þeim tímapunkti að við getum farið að horfa fram á við í ríkari mæli.“ Ekki í útrás Hún telur möguleika íslensku bank- anna þó fyrst og síðast liggja á heimamarkaði. Ný útrás sé ekki fyrirhuguð. „Arion banki er íslenskur banki og þetta er okkar heimamarkaður. Við erum ekki að horfa til þess að kaupa erlenda banka eða annað slíkt. Við erum hins vegar með viðskiptavini sem hafa þörf fyrir banka þjónustu erlendis og það skiptir okkur máli að geta veitt þeim þjónustu. Það verður fyrst og síðast í gegnum samstarf við aðra banka. Við erum alhliða banki og ætlum okkur að vinna með fyrirtækjum jafnt sem einstaklingum. Það eru tækifæri á öllum sviðum og mögu- leikar fyrir okkur til að vaxa. Í við- skipta banka starf seminni höfum við kynnt ýmsar nýjar vörur, til dæmis óverð tryggð húsnæðislán. Þau hafa fengið góðar viðtökur. Sjálfstæð gagnvart kröfuhöfum Monica Caneman hefur verið stjórnarformaður Arion banka í tæp tvö ár. Hún sagði Þórði Snæ Júlíussyni frá upplifun sinni á íslenska bankageiranum, krefjandi verkefnum og að það megi vel kenna bönkunum um margt sem gerðist á Íslandi fyrir hrun. Íslendingar eiga að horfa fram á við Monica telur að Íslendingum ætti að finnast mikið til þess koma hversu fljótt landið virðist vera að ná sér eftir efnahagshrunið. „Hagvöxtur hér er 2-3% sem er mun hærra en hjá flestum ríkjum Evrópu. Þegar ég les greinar um Ísland í erlendum fjölmiðlum eru þær mjög jákvæðar. Þær fjalla um að landið sé að ná sér hratt eftir efnahagsáföll og á listum yfir þau lönd sem ferðamenn vilja helst heimsækja er Ísland oftar en ekki í fyrsta sæti. Efnahagur landsins, í samanburði við mörg önnur lönd í Evrópu, er mjög sterkur. Ísland hefur jafnað sig nokkuð vel og hratt. Að mínu mati væri það Íslendingum mjög hollt að dvelja ekki um of við fortíðina og einbeita sér, reynslunni ríkari, að framtíðinni og möguleikum Eðlilegt að bankar eignist fyrirtæki Fréttablaðið hefur fjallað ítarlega um eignarhald banka á fyrirtækjum í óskyldum rekstri á undanförnum mánuðum, en þau voru 132 talsins í nóvember síðast- liðnum. Að sögn Monicu er þetta því miður eðlilegur fylgifiskur efnahagskreppu. „Að taka yfir fyrirtæki er alltaf það síðasta sem banki vill gera. Það er lokaúrræði. Í þrengingum verður að taka tillit til tvennra mismunandi hagsmuna. Annars vegar ertu að eiga við viðskiptavin bankans og verður að veita honum þá möguleika sem eru til staðar til að komast með sem bestum hætti út úr þeim aðstæðum sem eru uppi. Á hinn bóginn verður að hafa hagsmuni bankans til hliðsjónar. Ég held að þessir hlutir þurfi oft að taka tíma. Við Svíar fórum í gegnum svona ferli þegar við lentum í okkar bankakreppu á tíunda áratugnum. Sumar þeirra eigna sem bankarnir tóku þá yfir tók nokkur ár að selja. Markaðsaðstæður leyfðu það einfaldlega ekki fyrr. Ef ekki er eftirspurn eftir tilteknum tegundum af fyrir- tækjum og við getum ekki skapað slíkar aðstæður, þá er erfitt að selja. Þetta er því náttúrulegt ástand við svona aðstæður.“ Vissulega er eftirspurn eftir sumum þáttum bankaþjónustu ekki mikil sem stendur. Það fer þó vonandi að taka við sér. Það er líka hlutverk bankans að koma fram með nýjar lausnir og góðar vörur sem laða að viðskiptavini.“ Sjálfstæð gagnvart eigendum Eignarhaldið á Arion banka er í dag með þeim hætti að Kaupskil ehf., félag í eigu slitastjórnar Kaupþings, á 87% hlut og íslenska ríkið á 13%. Monica segir það vera langtíma- stefnu eigendanna að bankinn verði seldur. Með hvaða hætti og til hverra verði framtíðin að leiða í ljós. „Þegar ég byrjaði hérna var áætlunin sú að bankinn yrði seldur á fimm árum. Það gæti orðið aðeins lengri tími eða aðeins skemmri. Okkar hlutverk í stjórninni er að gera stöðu bankans eins góða og hægt er og við höfum skýrt umboð frá eigendum okkar til þess. En í framtíðinni mun eignar- haldið örugglega taka breytingum frá því sem það er í dag. Hvernig bankinn verður seldur eða til hvers er eitthvað sem eigendur hans hafa með að gera. Það er spurning sem þeir verða að svara.“ Kröfu hafar Kaup þings, sem í raun eiga Arion banka, hlaupa á þúsundum. Á meðal þeirra eru al þjóð legir bank ar og vogunar- sjóð ir sem keypt hafa skulda bréf á ■ ERLEND UMFJÖLLUN UM LANDIÐ ER JAFNAN JÁKVÆÐ Áfram veginn í nýjum CAPTIVA Komdu í reynsluakstur og kynntu þér hvað sölumenn okkar eru tilbúnir að gera fyrir þig. Eigum Ca ptiva til afgreiðs lu strax !
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.