Fréttablaðið - 21.01.2012, Blaðsíða 12
12 21. janúar 2012 LAUGARDAGUR
greinar@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald
RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að
fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í
gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871
FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Atli Fannar Bjarkason (dægurmál) atlifannar@frettabladid.is
HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir, ritstjórnarfulltrúi, sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is
ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is
SPOTTIÐ
ÞORSTEINN
PÁLSSON
AF KÖGUNARHÓLI ÞORSTEINS PÁLSSONAR
H
undrað karlar, sem skrifuðu bæjar- og lögreglu-
yfirvöldum og skipuleggjendum Þjóðhátíðar í Vest-
mannaeyjum bréf og kröfðust aðgerða til að koma
í veg fyrir nauðganir, eiga hrós skilið. Karlmenn
láta of sjaldan að sér kveða með þessum hætti í
umræðum um kynferðisglæpi.
Það sem hundraðmenningarnir segja í bréfi sínu ættu flestir að
geta tekið undir; ábyrgð á nauðgun liggur aðeins hjá gerandanum
sjálfum og það er sorglegt að lítill hópur ofbeldismanna geti
valdið svo miklum skaða og varpað skugga á það sem á að vera
gleðiviðburður. Hins vegar
berum við öll ábyrgð á að gera
allt sem við getum til að hindra
slíka glæpi. Yfirvöld í Eyjum
bera sinn hluta af þeirri ábyrgð.
Eitthvað hefur borið á því
að Eyjamönnum hafi sárnað
tilskrifið og spurt af hverju
spjótunum sé eingöngu beint að
Þjóðhátíð í Eyjum en ekki öllum öðrum stöðum og viðburðum,
þar sem nauðganir eiga sér stað.
Það er þó fullkomlega eðlilegt að athyglin beinist nú að Þjóð-
hátíð. Þar voru tilkynntar fimm nauðganir í fyrra, sem er fimm
of mikið. Það gerðist nokkrum vikum eftir að formaður þjóðhátíð-
arnefndar viðhafði vægast sagt óheppileg ummæli um kynferðis-
glæpi. Hann sakaði Stígamót, samtök gegn kynferðisofbeldi, um
að ýta undir vandamálið og að fleiri kynferðisafbrot væru framin
þegar samtökin væru á svæðinu! Þetta getur ekki kallazt annað
en sérpöntun á athygli, umræðu og aðhaldi að Þjóðhátíð í Eyjum
í þessum efnum.
Viðbrögð bæjar- og lögregluyfirvalda í Eyjum við bréfa-
skriftunum hafa að þessu sinni verið jákvæð og yfirveguð. Hjá
þeim kemur fram eindreginn vilji til að standa þannig að málum
að hægt sé að gera það sem hægt er til að fyrirbyggja kynferðis-
brot á þjóðhátíð í sumar.
Vonandi eru þessi viðbrögð ekki til merkis um að því sé betur
tekið þegar hundrað karlar skrifa bréf en þegar Stígamót eða
kvennasamtök gagnrýna sömu hluti. Vonandi er frekar um það að
ræða að Eyjamenn hafi lært af vondri reynslu á síðustu Þjóðhátíð.
Kannski er þó um sambland af þessu tvennu að ræða.
Það er þó mikilvægt að karlar taki sig saman og fordæmi
nauðganir opinberlega eins og hundraðmenningarnir gera. Í
langflestum nauðgunarmálum er glæpamaðurinn karl og fórnar-
lambið kona. Framtak hundraðmenninganna er til þess fallið að
senda hugsanlegum nauðgurum þau skilaboð að aðrir karlar líti
niður á verknaðinn; að hann sé merki um ómennsku en ekki karl-
mennsku.
Árangur næst ekki í baráttunni gegn kynferðisofbeldi né jafn-
réttisbaráttunni yfirleitt nema bæði kyn taki höndum saman um
að beita sér fyrir breytingum. Vonandi stækkar hópur hundrað-
menninganna og lætur duglega í sér heyra, alls staðar þar sem
þörf er á. Því að kynferðisofbeldið er ekki einangrað við Þjóðhá-
tíð í Eyjum, þótt athyglin hafi beinzt að henni um stund.
Hundrað karlar skrifa gegn nauðgunum:
Meira svona,
strákar!
Ólafur Þ.
Stephensen
olafur@frettabladid.is
SKOÐUN
Lúka ehf. umboðsaðili Paul Mitchell, Schwarzkopf Professional, Indola,
Via, Brazilian Blowout og Euro.So.Cap á Íslandi óskar eftir sölumanni í
100% starf.
Einungis aðili með ríkan metnað, frumkvæði sem getur unnið sjálfstætt
kemur til greina.
Umsjón með Schwarzkopf Professional vörulínunni
Umsjón með markaðsmálum
Gerð söluáætlana
Ábyrgð á innkaupum frá birgja
Samskipti við erlenda birgja
Sala og kennsla til viðskiptavina
Námskeiðahald
Ferðalög erlendis
Hæfniskröfur
Menntun í háriðn
Reynsla af sölustörfum
Góð almenn tölvuþekking
Nánari upplýsingar veitir Elín Friðjónsdóttir hjá Vinna.is - elin@vinna.is.
www.vinna.is Númer starfs: 565933
Reykjavíkurfélag VG sendi frá sér ályktun í vikunni þar sem saka málinu gegn Geir Haarde, fyrrum for-
sætis ráð herra, fyrir lands dómi
var lýst sem mikil vægum þætti
í pólitísku upp gjöri við frjáls-
hyggjuna. Þetta er stærsta félag
áhrifa mesta stjórn mála flokks í
landinu. Það gefur ályktuninni
óneitanlega verulegt vægi.
Tilefni ályktunarinnar var að
styðja forystu flokksins í á tökunum
við Ögmund Jónas son. Engin önnur
stjórn mála sam tök og engir ein stakir
stjórn mála menn sem styðja lands-
dóms réttarhöldin hafa af jafnmikilli
hreinskiptni og einlægni sagt berum
orðum að breyta eigi Íslandi í ríki
þar sem nota
eigi dóm stóla til
að gera upp póli-
tískan ágreining.
Í lýð ræðis ríkjum
fer upp gjör við
stjórn mála-
stefnur fram í
al menn um kosn-
ingum.
Það er póli tískt
við fangs efni að
setja refsi lög.
Hitt er lög fræði legt verk efni að
ákæra, verja og dæma menn á grund-
velli laganna. Alþingi hefur tekist að
gera slíkt lög fræðilegt við fangs efni
að ein hverju heitasta pólitíska átaka-
máli síðari ára og hefur þó ekki verið
skortur á þeim. Ástæðan fyrir því
eru þau við horf sem bjuggu að baki
upp haf legri ákvörðun Al þingis og
koma skýrt fram í ályktun Reykja-
víkur félags VG.
Ögmundur Jónasson skýrir
sinna skipti sín í lands dóms málinu
með því að hann hafi strax og
Sam fylkingin ákvað að hlífa eigin
flokks mönnum við ákæru fengið á
tilfinninguna að málið væri að fá á
sig flokks póli tíska mynd. Í reynd
gat hann ekki fengið hald betri rök
fyrir tilf inningum sínum en á lyktun
Reykja víkur félags VG.
Þó að það hafi ekki verið til-
gangur ályktunarinnar hefur hún
varpað góðu ljósi á pólitískt eðli
landsdómsmálsins.
Uppgjörið við frjálshyggjuna
Lengi hefur verið ljóst þeim sem til þekkja að lögin um landsdóm eru úrelt. Þau eru leifar réttarfars sem
ríkti áður en þingræðisskipulagið
var viðurkennt. Þrátt fyrir hálfrar
aldar gamlar endurbætur á
lögunum stríða þau gegn mörgum
grundva l larreglum nút íma
sakamálaréttarfars. Nokkur óvissa
er því um að réttarhöldin sem nú
standa samræmist alþjóðlegum
mannréttindaskuldbindingum.
Þeir sem stóðu að ákvörðun
um að nota lögin í fyrsta skipti
í sögunni á haust mánuðum 2010
svöruðu gagn rýni af þessu tagi með
þeim ein falda út úr snúningi að fyrst
þau stæðu enn í laga safninu væri
ein búið að nota þau. Þetta mikil-
væga álita efni fékkst því ekki rætt.
Umræðan í þjóðfélaginu frá
þeim tíma og reyndar allur fram-
gangur málsins þar sem tveimur
veigamestu ákæruefnunum hefur
verið vísað frá dómi ætti að hafa
sýnt mönnum fram á að það var
misráðið að beita þessum úreltu
lögum. Það er því bæði rétt og
skylt að vega og meta framhaldið
í þessu ljósi og láta á það reyna á
ný á Alþingi.
Einn af þingmönnum Sam-
fylkingarinnar hefur réttilega
vakið athygli á því að tillagan um
að breyta fyrri ákvörðun snýst ekki
um æru Geirs Haarde. Hann nefndi
hins vegar ekki að ástæðan fyrir
því er sú að hún snýst um heiður
og sóma Alþingis. Þingið er ekki
að blanda sér í meðferð máls fyrir
dómstóli. Það er einungis að endur-
meta eigin ákvörðun.
Segja má að Alþingi sé bein-
línis skylt að taka málið til endur-
skoðunar þegar hluti þeirra sem
stóðu að upp haf legri ákvörðun
hefur efa semdir um að rétt hafi
verið farið að. Það myndi gerast ef
ákærandinn væri sjálfstæður og
óháður. Gallinn við landsdómslögin
er sá að ákæruvaldið er í höndum
Alþingis en ekki sjálfstæðs
saksóknara eins og nútímaréttarfar
krefst. Alþingi getur ekki horft
framhjá þessum ágalla svo mikill
sem hann er.
Úrelt lög
Við fyrstu um ræðu máls-ins í gær var flutt frá-vísunar til laga til þess að koma í veg fyrir þing-
lega með ferð málsins. Þó að slíkt
sé ekki með öllu dæma laust er
það í meira lagi óvenju legt svo
vægt sé til orða tekið. Í raun getur
ekkert annað hafa búið að baki frá-
vísunar tillögunni en að þeir þing-
menn sem hlut eiga að máli treysti
sér ekki í mál efna legar rök ræður
um for sendur þessa af brigðilega
ákæru máls.
Margir þeirra þingmanna sem
standa að frávísuninni hafa deilt
áhyggjum með þeim sem séð hafa
virðingu Alþingis þverra jafnt
og þétt vegna flótta undan mál-
efnalegri rökræðu. Nú eru það
örlög þessara þingmanna sjálfra
að lækka ris Alþingis með slíkum
flótta. Málefnaleg rök geta ekki
staðið til þess að leggja til að mál
sem snýst um grundvallaratriði
réttarfars og nútíma mannréttinda
fái ekki þinglega meðferð.
Með alveg óskiljan legum hætti
hafa forystu menn stjórnar flokkanna
litið svo á að þing leg með ferð
tillögunnar gæti ógnað stjórnar sam-
starfinu. Ekki er unnt að ve fengja
það mat. En svarið er þetta: Ekkert
stjórnar sam starf er mikilv ægara
en lýð ræði sleg meðferð þeirra mála
sem fyrir Alþingi eru lögð.
Flótti frá rökræðu