Fréttablaðið - 21.01.2012, Blaðsíða 96
21. janúar 2012 LAUGARDAGUR64
sport@frettabladid.is
C-riðill
Spánn - Rússland 30-27 (17-11)
Roberto García 6/4, Cristian Ugalde 5, Joan
Cañellas 5, Raúl Entrerríos 4 - Konstantin
Igropulo 8/1, Alexander Chernoivanov 5.
Frakkland - Ungverjaland 23-26 (14-12)
Xavier Barachet 5, Nikola Karabatic 3, Daniel
Narcisse 3 - Szabolcs Zubai 6, Gergely Harsányi
5/2, Tamás Mocsai 3, Milorad Krivokapic 3
LOKASTAÐAN
Spánn 3 2 1 0 83-77 5
Ungverjaland 3 1 2 0 81-78 4
Frakkland 3 1 0 2 77-79 2
Rússland 3 0 1 2 82-89 1
D-riðill
Ísland - Slóvenía 32-34 (13-17)
Mörk Íslands (skot): Guðjón Valur Sigurðsson
9/4 (12/5), Arnór Atlason 5 (8), Alexander
Petersson 4 (6), Sverre Jakobsson 3 (3), Kári
Kristján Kristjánsson 3 (4), Aron Pálmarsson 3
(5), Þórir Ólafsson 3 (5), Vignir Svavarsson 1 (1),
Róbert Gunnarsson 1 (2),
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 8 (38/3,
21%), Hreiðar Levy Guðmundsson 1 (5/1, 20%),
Hraðaupphlaup: 6 (Sverre 3, Þórir 2, Vignir 1)
Fiskuð víti: 5 (Róbert 2, Arnór, Aron, Þórir)
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Slóveníu (skot): Sebastian Skube 8/1
(9/1), Dragan Gajic 7/2 (8/3), Jure Dolenec 5/1
(7/1), Miha Zvizej 3 (4), Uros Zorman 3 (4), Jure
Dobelsek 2 (2), Borut Mackovsek 1 (1), David
Miklavcic 1 (1), Peter Pucelj 1 (1), Luka Zvizej 1
(1), Matjaz Brumen 1 (1), David Spiler 1 (3),
Varin skot: Gorazd Skof 16/1 (45/4, 36%), Prost
Primoz 1 (4/1, 25%),
Hraðaupphlaup: 5 (Gajic 2, Dolenec, Miha
Zvizej, Luka Zvizej)
Fiskuð víti: 5 (Skube 2, Zorman 2, Spiler)
Utan vallar: 10 mínútur.
Króatía - Noregur 26-20 (13-8)
Ivan Cupic 6/6, Denis Buntic 4, Blazenko
Lackovi 3, Zlatko Horvat 3 - Erlend Mamelund
6/2, Håvard Tvedten 5.
LOKASTAÐAN
Króatía 3 3 0 0 88-78 6
Slóvenía 3 1 0 2 90-91 2
Ísland 3 1 0 2 95-97 2
Noregur 3 1 0 2 80-87 2
Milliriðill 1
Þýskaland 2 2 0 0 53-47 4
Serbía 2 2 0 0 46-40 4
Pólland 2 1 0 1 45-48 2
Makedónía 2 0 1 1 49-50 1
Svíþjóð 2 0 1 1 50-55 1
Danmörk 2 0 0 2 48-51 0
NÆSTU LEIKIR
Pólland - Svíþjóð Í dag klukkan 15.15
Danmörk-Makedónía Í dag kl. 17.15
Serbía-Þýskaland Í dag kl. 19.15
Milliriðill 2
Króatía 2 2 0 0 62-58 4
Spánn 2 1 1 0 53-50 3
Ungverjaland 2 1 1 0 50-47 3
Slóvenía 2 1 0 1 63-63 2
Ísland 2 0 0 2 61-65 0
Frakkland 2 0 0 2 49-55 0
NÆSTU LEIKIR
Frakkland-Slóvenía Á morgun
Ungverjaland-Ísland Á morgun
Spánn-Króatía Á morgun
Nánari tímasetningar má finna inn á Vísir.is
EM Í SERBÍU
GUÐJÓN VALUR SIGURÐSSON varð markahæsti leikmaður riðlakeppninnar á EM í handbolta í Serbíu en
Guðjón Valur skoraði 25 mörk í leikjum þremur eða 8,3 mörk að meðaltali í leik. Guðjón Valur skoraði 3 mörkum
meira en Norðmaðurinn Erlend Mamelund sem kom honum næstur með 22 mörk. Makedóninn Kiril Lazarov varð
síðan í þriðja sætinu með 21 mark. Mamelund skorar ekki fleiri mörk á þessu móti því Noregur er úr leik.
EM
í handbolta
2012
Henry Birgir
Gunnarsson
& Vilhelm
Gunnarsson
fjalla um EM karla í handbolta í Serbíu
henry@frettabladid.is - vilhelm@frettabladid.is
EM 2012 Það er ljóst að strákarnir
okkar gera ekki neinar rósir á EM
í Serbíu. Þar sem liðið heldur stiga-
laust í gríðarlega erfiðan milliriðil
er ekki við miklu að búast. Miðað
við spilamennsku liðsins í gær
hefur íslenska liðið ekkert að gera
í Frakka og Spánverja.
Fyrri hálfleikur var sorgar saga
varnar og mark vörslu. Jafnræði
var með liðunum framan af en
eftir 13 mínútur náðu Slóvenar
þriggja marka for skoti, 6 -9,
sem þeir héldu nánast til enda.
Sóknarleikur ís lenska liðsins
var mjög góður nánast allan
hálfleikinn en vörnin var slök og
mark varslan ekkert minna en
hörmu leg. Mark verðir ís lenska
liðsins vörðu ekki bolta í rúmar 20
mínútur og á meðan mark varslan
var engin skoruðu Slóvenar að
vild. Munurinn í hálf leik var
fjögur mörk, 13-17, og strákarnir
gríðarlega pirraðir þegar þeir fóru
inn í klefa.
Nákvæmlega ekki neitt breyttist
í síðari hálf leiknum. Varnar-
leikurinn sem fyrr hreinasta
hörmung og Björgvin Páll var ekki
nálægt því að verja skot. Slóvenar
hreinlega völtuðu yfir strákana
okkar og náðu mest sjö marka
forskoti. Þeir hefðu hæglega getað
sent íslenska liðið heim en vildu
frekar fara í milliriðil með tvö stig
eins og eðlilegt er.
Þeir „leyfðu“ því íslenska liðinu
augljóslega að skora tvö ódýr
mörk í lokin. Fyrir vikið fara þeir
í milliriðilinn með tvö stig, Ísland
ekkert og Norðmenn halda heim á
leið. Hefðu Slóvenar unnið Ísland
með meira en þremur mörkum
hefðu Slóvenar farið áfram með
núll stig, Norðmenn tvö og Ísland
farið heim. Norðmenn voru því
eðlilega súrir en þetta snýst um
árangur. Íslenska liðið þekkir
þessa stöðu sjálft eftir að hafa
„leyft“ Frökkum að skora nokkur
mörk á HM árið 2007. Fyrir vikið
fór Ísland í milliriðil með tvö stig
þar.
Það er alveg ljóst að ef íslenska
liðið ætlar að gera eitthvað af
viti í næstu leikjum þarf margt
að breytast. Allt sjálfstraust og
öryggi er farið úr varnarmönnum
liðsins. Sverre virkar hægur og
Alexander er ekki nema skugginn
af sjálfum sér. Hann hefur ekkert
getað á þessu móti því miður.
Sömu sögu er að segja af Björgvini
Páli Gústavssyni. Hann var síðasta
púslið í okkar frábæra liði og
með hann í formi unnum við til
verðlauna. Björgvin virðist rúinn
öllu sjálfstrausti og markverðirnir
hafa ekkert getað. Þeir hafa þess
utan varið eitt skot úr horni allt
mótið.
Svo vantar miklu meiri
stemningu og geðveiki í strákana.
Þetta er ekkert fjandans kaffiboð
og ef þeir rífa ekki upp geðveikina
hjá sér verða þeir flengdir í Novi
Sad. Það á engum eftir að finnast
gott.
Nestislausir á leið til Novi Sad
Hörmulegur varnarleikur í bland við grátlega lélega markvörslu varð strákunum okkar að falli í leiknum
gegn Slóveníu í gær. Íslenska liðið heldur nú í erfiðan milliriðil með ekkert stig í farteskinu.
ÞUNG SPOR Í LEIKSLOK Íslensku strákarnir gáfu þakkað Slóvenum fyrir að komast áfram í milliriðla á EM í Serbíu og leyndu ekki
vonbrigðum sínum í leikslok. Hér þakka þeir Slóvenum fyrir leikinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EM 2012 „Ég ætla að reyna að vanda
orðavalið núna því ég vandaði
það ekki í sjónvarpinu áðan,“
sagði Guðjón Valur Sigurðsson
landsliðsfyrirliði eftir tapið
gegn Slóveníu í gær. Það sauð á
fyrirliðanum og skal engan undra
miðað við frammistöðu liðsins.
„Mér er andskotans drullusama
hvað við klúðrum af færum
en ef við skorum 32 mörk þá
skal það gjöra svo vel og duga
til sigurs. Þetta fer að verða
komið nóg. Það er orðið erfitt að
kyngja því hvernig við missum
menn í vörninni og fáum litla
markvörslu,“ segir Guðjón en fá
teikn voru á lofti fyrir mót um að
varnarleikurinn yrði í ólagi.
„Mánuðurinn byrjaði vel í
Danmörku á æfingamóti og þar
var vörnin góð. Það er eitthvað
óöryggi. Ég myndi aldrei saka
nokkurn mann í þessu liði um að
vilja ekki leggja sig fram. Það
er einhver vírus kominn í menn
sem gerir það að verkum að þeir
eru óöruggir. Það vantar síðasta
skrefið hjá okkur.“
Íslenska liðið fer án stiga í
milliriðilinn og það er öllu liðinu
mikil vonbrigði.
„Svona er veruleikinn og lífið er
stundum tík. Þetta er staða sem við
komum okkur sjálfir í. Nú verðum
við bara að taka þessari niðurstöðu
af karlmennsku og gera það besta
úr þeirri stöðu sem upp er komin.
Það eru stórir hlutir fram undan
á þessu ári og nú verðum við að
byrja að undirbúa okkur fyrir
það. Það er samt ekkert búið og
við ætlum að selja okkur dýrt í
milliriðlinum. Vonandi náum við
smá stíganda í okkar leik.“ - hbg
Það sauð á landsliðsfyrirliðanum eftir tapleikinn gegn Slóveníu í gær:
Komum okkur í þessa stöðu sjálfir
GUÐJÓN VALUR SIGURÐSSON Var ekki
sáttur í leikslok. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
M
SA
5
80
87
0
1/
12
100%
HÁGÆÐA
MYSUPRÓTEIN
MS.IS
PRÓTEINDRYKKURINN
SEM ÍSLENDINGAR FÁ
ALDREI NÓG AF