Fréttablaðið - 21.01.2012, Blaðsíða 91
LAUGARDAGUR 21. janúar 2012 59
Sigurjón M. Egilsson
stýrir Sprengisandi
á sunnudags-
morgnum kl. 10–12
Sprengisandur
kraftmikill
þjóðmálaþáttur
Tónlist ★★★★ ★
Spilaðu lag fyrir mig
Valgeir Guðjónsson
Á Spilaðu lag fyrir mig eru sjötíu
lög sem Valgeir Guðjónsson samdi,
einn eða í félagi við aðra, á þeim
ríflega fjörutíu árum sem eru
liðin síðan hann byrjaði í popp-
bransanum. Platan er gefin út í
tilefni af sextíu ára afmæli Valgeirs
sem hann fagnar einnig með tón-
leikum í Hörpu. Mörg þeirra laga
og texta sem hér er að finna voru
samin með félögum Valgeirs í Spil-
verki þjóðanna og Stuð mönnum,
en eins og Valgeir tekur fram á
plötuumslaginu, þá eiga þau það
sammerkt að þar hefur hans hlutur
verið stærri en hinna höfundanna.
Auk laga sem samin voru fyrir
fyrrnefndar sveitir eru á Spilaðu
lag fyrir mig meðal annars lög af
plötum Hrekkjusvína og Jollí og
Kóla og lög af sólóplötum Valgeirs.
Um það bil helmingur laganna í
þessum þrefalda pakka eru með
Stuðmönnum og Spilverkinu.
Valgeir er mjög góður laga- og
textasmiður eins og heyrist vel hér.
Mörg laganna hafa náð miklum
vinsældum og flest þeirra hafa
líka elst vel. Þarna eru meðal
annarra Popplag í G-dúr, Blind-
fullur, Íslenskir karlmenn, Slá í
gegn, Bíólagið, Gestir út um allt og
Gerum okkar besta. Flest laganna
eru með upprunalegum flytjendum,
en í nokkrum tilfellum eru aðrir
flytjendur, t.d. Todmobile (Haustið
75), Matti Matt (Ekki bíl), Hjálmar
(Ólína og ég) og Helgi Björns
(Kramið hjarta). Þá eru einhver
lög flutt af Valgeiri sem áður voru
með hljómsveitunum hans, t.d.
Hrekkjusvínalagið Gestir út um allt
og Stuðmannalagið ÚFÓ. Engin
þessara síðari tíma útgáfa er betri
en frumútgáfan, en sú ákvörðun að
hafa þær með kemur samt vel út
og eykur fjölbreytnina. Það virðist
engri sérstakri reglu fylgt varðandi
niðuröðun laganna, enda hefði það
kannski verið snúið. Tímaröð, sem
oft virkar vel, hefði til dæmis ekki
komið vel út í þessu tilfelli.
Á heildina litið er Spilaðu lag
fyrir mig næsta pottþéttur sjötíu
laga popppakki. Það eru líkur á
því að margir Spilverks- og Stuð-
mannaaðdáendur eigi flest þessara
laga fyrir einhvers staðar í fórum
sínum, en það er gott að fá úrval
lagasmíða Valgeirs Guðjónssonar á
einn stað. Þessi pakki er ekki jafn
bráðnauðsynlegur og heildarútgáfa
Spilverksins sem kom út fyrir rúmu
ári, en fínn engu að síður.
Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Öll þekktustu lög
Valgeirs Guðjónssonar í þreföldum
afmælispakka.
Sjötíu laga ofurpakki Valgeirs
SPILAÐU LAG FYRIR MIG Sjötíu lög eru
á nýrri safnplötu Valgeirs Guðjóns-
sonar.
STOFNAÐ 1971
RAFEINDAVIRKI
Raftækjaverkstæðið annast þjónustu á mörgum heimþekktum vörumerkjum
á borð við Philips, Panasonic, Toshiba, Grundig og Kenwood.
Umsækjendur þurfa að:
SJÓNVARPSMIÐSTÖÐIN ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA RAFEINDAVIRKJA
Leikkonan Jennifer Aniston ætt-
leiddi lítinn hund á nýju ári.
Hundurinn er blanda af velskum
corgi og terrier og fann leik-
konan hann í dýraathvarfi í Utah.
„Jennifer var miður sín eftir
dauða Normans, gamla hundsins
hennar. Hún var lengi að jafna
sig en ákvað loks að nú væri
rétti tíminn til að gefa nýjum
hundi gott heimili,“ var haft eftir
heimildar manni. Norman var
fimmtán ára gamall þegar hann
drapst og fékk leikkonan sér húð-
flúr til minningar um þennan
gamla vin sinn.
Fékk sér
nýjan hund
ÆTTLEIÐIR Jennifer Aniston fékk sér
nýjan hund. NORDICPHOTOS/GETTY
Vélaverkstæði Hjalta Einarssonar ehf.
Melabraut 21-27, 220 Hafnarfi rði
Hrauni 5, 730 Reyðarfi rði
Sími: 575 9700 www.vhe.is
VHE hefur í rúm 40 ár rekið Vélaverkstæði
þar sem boðið er uppá alla almenna
þjónustu sem við kemur viðhaldi, smíði og
hönnun véla og tækjabúnaðar fyrir stóriðju
og önnur fyrirtæki, bæði innanlands og utan.
Hjá VHE á Austurlandi vinnur 150 manna kraftmikill
hópur iðnaðar- og tæknimanna, verka- og
skrifstofufólks af báðum kynjum.
VHE á Austurlandi rekur meðal annnars:
• Vélsmiðju
• Renniverkstæði
• Járnsmíðaverkstæði
• Viðhaldsþjónustu, fyrir vél- og rafbúnað
• Byggingadeild, nýbyggingar og viðhald
• Steypueiningarverksmiðju
• Kersmiðju, endurfóðrun og viðhald rafgreinikerja
• Verslun, sala á vökvabúnaði og f.l
• Vökvaþjónustu, sérfræðiþjónusta í vökvakerfum,
nýsmíði og viðhald tjakka, háþrýstislöngur
Velkomin(n) um borð.
Einungis er tekið á móti umsóknum á heimasíðu VHE.is.
Nánari upplýsingar veitir Sigurjón Baldursson í síma 575-9783 eða í tölvupóst
sigurjon@vhe.is. Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Járniðnaðarmenn, rafvirkjar og verkafólk
Við leitum að:
• Vélvirkjum
• Vélstjórum
• Járniðnaðarmönnum
• Málmsuðumönnnum
• Rafvirkjum
• Verkafólki til framleiðslustarfa og ýmissa starfa í Kersmiðju.
Öll ofangreind störf eru framtíðarstörf
Góð laun eru í boði fyrir góða starfsmenn
Fríar ferðir til og frá vinnu innan áætlanakerfi s ASFB
VHE getur útvegað húsnæði ef með þarf
Vegna aukinna verkefna leitar VHE Vélaverkstæði að dugmiklu og ábyrgu
starfsfólki til að vinna á starfsstöð félagsins við Reyðarfjörð. Ráðningar
fara fram á tímabilinu frá janúar til júní 2012. Um framtíðarstörf er að ræða.