Fréttablaðið - 27.01.2012, Page 10

Fréttablaðið - 27.01.2012, Page 10
27. janúar 2012 FÖSTUDAGUR10 Hagar, Kaupás og Samkaup eru samtals með 90% mark- aðshlutdeild á dagvöru- markaði. Aðgangs hindranir eru inn á markaðinn og hlutdeild lágvöruverslana á markaðnum þrefaldaðist á áratug. Samkeppniseftirlitið (SE) hvetur birgja til að taka verðstefnu sína til athugunar og láta kjör sín styðj- ast við málefnaleg sjónarmið. Það telur mjög mikilvægt að búvöru- lög verði tekin til endurskoðun- ar til að auka virka samkeppni og vill að aðilar á dagvörumark- aði skoði vel starfshætti sína og stefnumörkun með það í huga að efla samkeppni. Þá vill eftirlitið að stjórnvöld grípi til aðgerða til að efla samkeppni á dagvöru- markaði. Þetta kemur fram í til- lögum sem SE leggur fram í nýrri skýrslu um verðþróun og sam- keppni á dagvörumarkaði sem kynnt var í gær. Fréttablaðið greindi frá því í gær að verslunum á markaðnum bjóðast afar mismunandi kjör frá birgjum sem mynda aðgangs- hindranir fyrir nýja aðila inn á markaðinn. Minni verslanir á dag- vörumarkaði greiða að meðaltali um 15% hærra verð fyrir vörur frá birgjum en Hagar, stærsta dagvörukeðja á Íslandi. Í nokkrum vöruflokkum er lægsta smásölu- verð Haga lægra en það innkaups- verð sem minni verslunum býðst hjá birgjum. Minni verslanirnar verða því að keppa á grundvelli annars en verðs þegar þær eru að reyna að laða til sín viðskiptavini. Þrjár samstæður með 90% Skýrslan byggir á ítarlegri rann- sókn SE á þróun dagvörumarkaðar á undanförnum árum. Niðurstöð- urnar sýna að á árinu 2010 voru 174 verslanir starfandi á þeim markaði sem seldu dagvöru (inn- flutt og innlend matvara og hrein- lætis- og snyrtivörur)fyrir samtals 100 milljarða króna. Rannsóknin leiddi í ljós að Hagar, sem reka verslanir Bónus og Hagkaupa, voru með 53% markaðshlutdeild á dagvörumarkaði á árinu 2010. Samstæðan er langstærsti aðilinn á þeim markaði og hefur staðfesta markaðsráðandi stöðu í skilningi samkeppnislaga. Það þýðir að sam- stæðan hefur „þann efnahagslega styrkleika að geta hindrað virka samkeppni á markaðnum og geti að verulegu leyti starfað án þess að taka tillit til keppinauta, við- skiptavina og neytenda“. Þrjár stærstu samstæðurn- ar (Hagar, Kaupás og Sam- kaup) á markaðnum eru saman- lagt með 90% markaðshlutdeild. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Samkeppniseftirlitsins (SE) um verðþróun og samkeppni á dag- vörumarkaði sem kynnt var í gær. Í miklum vexti Hlutdeild Haga hefur vaxið gríðar lega á síðastliðnum áratug. Hún var 29% um aldamótin en náði því að verða 55% árið 2009. Hún hefur síðan lækkað lítillega, meðal annars eftir að 10-11 versl- anirnar voru seldar út úr sam- stæðunni á árinu 2011 en hlut- deild þeirra mælist á bilinu 3-4%. Kaupás, sem rekur meðal annars Krónuna og Nóatún, er með 21% markaðshlutdeild og Samkaup, sem rekur meðal annars Nettó og Samkaupsverslanir, eru með 16%. Aðrar og minni verslanir voru því með tæplega 10% markaðs- hlutdeild. Hlutdeild þeirra á mark- aðnum hefur lækkað töluvert frá árinu 1999, þegar hún var 22%. Þegar horft er til einstakra verslanakeðja, ekki samstæða, kemur í ljós að Bónus, sem rekur 28 verslanir, er með um 40% markaðshlutdeild. Krónan kemur þar á eftir með um 16% og Hag- kaup er með um 10% af markaðn- um. Aðrar einstakar keðjur eru með minni hlutdeild. Allsráðandi í höfuðborginni Þegar horft er einvörðungu til höfuðborgarsvæðisins var mark- aðshlutdeild Haga um 60% og Kaupáss um 26% á árinu 2010. Þessir tveir aðilar voru því með um 86% af allri dagvöruverslun á því svæði. Á landsbyggðinni eru Hagar líka sterkastir allra með 42% markaðshlutdeild. Í skýrsl- unni kemur fram að samstæð- an hafi aukið umfang sitt á þeim markaði fyrst og síðast með því að opna nýjar verslanir. Samkaup eru mun sterkari á landsbyggðinni en í þéttbýlinu á suðvesturhorninu. Markaðshlutdeild samstæðunnar þar er 35% og hefur aðallega aukist við að Samkaup hafa yfirtekið kaup- félög og aðrar dagvöruverslanir. Í skýrslunni er sagt að skrán- ing Haga á markað, sala 10-11 út úr Högum og innkoma aðila á borð við Kost og Víði inn á dagvöru- markaðinn á allra síðustu misser- um beri vott um jákvæða þróun á honum. Lágvöruverslanir taka fram úr Rannsókn SE sýnir fram á að algjör eðlisbreyting hefur átt sér stað á þeim tegundum verslana sem draga að sér mest viðskipti. Árið 1999 voru lágvöruverslanir með um fimmtungsmarkaðshlutdeild en í lok árs 2010 var hún orðin 63%. Viðbótin kemur nánast öll frá stór- mörkuðum á borð við Hagkaup og Nóatún. Þá hefur hlutdeild svokall- aðra klukkubúða skroppið saman um helming og litlar matvöruversl- anir eru nú einungis með um 1% af markaðnum. FRÉTTASKÝRING: Skýrsla Samkeppniseftirlitsins um verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði Þórður Snær Júlíusson thordur@fréttabladid.is 80 70 60 50 40 30 20 10 0 120 100 80 60 40 20 10 0 1999 2010 DAGVÖRUVERSLANIR EFTIR TEGUNDUM ■ Lágvöruverslanir ■ Stórmarkaðir og almennar dagvöruverslanir ■ Klukkubúðir ■ Litlar matvörubúðir 10% 16% 21% 53% MARKAÐSHLUTDEILD Á DAGVÖRUMARKAÐI VERÐ BIRGJA TIL VERSLANASAMSTÆÐNA Hagar (Bónus og Hagkaup) Kaupás (Krónan, Nóatún, 11-11 og Kjarval) Samkaup (Kaskó, Nettó og Samkaup) Minni verslanir Minni verslanir 100 104 106 115 Markaðshlutdeild dagvöruverslana og verð birgja til þeirra Þrjár samstæður með 90% hlutdeild MATVARA Verð á dagvöru hefur hækkað um 60% á síðustu sex árum á sama tíma og kaupmáttur almennings hefur rýrnað. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra samkeppnismála, segir skýrsluna vera geysilega viðamikla og vandaða. Hann er afar ánægður með hana. „Mér finnst þetta gott verk hjá Samkeppniseftirlitinu. Ég fæ ekki betur séð en að þetta gefi nokkuð góða mynd af því sem þarna er undir. Verslunin, og ekki síst dag- vöruverslunin, er þjóðar- búskap okkar afar mikilvæg. Niðurstaða skýrslunnar staðfestir hluti sem maður hefur oft heyrt um, meðal annars um mismunandi kjör sem dagvöru- verslunum bjóðast hjá birgjum. Sá munur er dreginn mjög skýrt fram. Hann er skýranlegur upp að vissu marki, en í öðrum tilvikum finnst manni ansi langt gengið. Sá munur sem þarna er sýndur er ekki hollur í samkeppnislegu tilliti.“ Steingrímur segir jákvæðu tíðindin vera þau að samkeppnin virðist vera að styrkjast á þessum markaði. „Það er þó full þörf á að vakta þetta ástand vel. Skýrslunni verður örugglega fylgt eftir á ýmsan hátt. Verðþróunin sem hún dregur fram virðist skýrast fyrst og fremst af gengi krónunnar og öðrum ytri aðstæðum.“ Skýrslunni verður fylgt eftir Hagur neytenda hefur versnað á síðustu sex árum. Á þeim tíma hefur kaupmáttur almennings rýrnað og hlutfall matar- og drykkjarvara í neysluútgjöldum hækkað. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Samkeppnis- eftirlitsins (SE). Þar segir að verð á dagvöru hafi hækkað um tæp 60% í smásölu frá ársbyrjun 2006 og fram að síðustu áramótum. Sú verðhækkun sem orðið hefur skýrist fyrst og fremst af ytri ástæðum, gengishruni íslensku krónunnar og hækkun á heimsmarkaðsverði á hrávöru. Matvöruverðið hefur lækkað umtalsvert ef það er mælt í evrum en hækkað gífurlega þegar það er mælt í krónum. Íslenska krónan féll um 112% gagnvart evru á tímabilinu ef miðað er við gengi Seðlabanka Íslands. Á sama tíma hefur heimsmarkaðsverð á mikilvægri hrávöru á borð við hveiti hækkað um 70% þegar hún er mæld í íslenskum krónum. Verð á hrís- grjónum og kaffi hefur þrefaldast og sykur hefur fjórfaldast í verði. Allt þetta hefur orðið til þess að verð á bæði innfluttri og innlendri dagvöru hefur hækkað á sama tímabili. Verulegur munur er þó á verðþróun inn- lendra og erlendra dagvara. Verðhækkun innlendra vara, sem eru um tveir þriðju allra slíkra, nam um það bil 50% en innfluttra vara um 80%. Í skýrslunni segir: „eftir gengislækkun krón- unnar hefur matvöruverð á Íslandi farið frá því að vera hlutfallslega mun hærra til þess að vera því sem næst jafnt meðalmatvöru- verði í ESB löndum mælt í evrum á skráðu gengi. Í krónum talið hækkaði matvöruverð hins vegar gífurlega eftir hrunið. Ráðstöf- unartekjur á Íslandi hafa hins vegar lækkað enn meira í hlutfallslegum samanburði við meðaltal í ESB löndunum. Kaupmáttur launa hefur dregist saman frá hruni og hlutfall mat- og drykkjarvara af neysluútgjöldum hefur hækkað. Hagur neytenda hefur því versnað.“ Dagvara hækkað um 60% og hagur neytenda versnað Samkeppniseftirlitið (SE) álítur að bankar hefðu átt að nýta það tækifæri sem hrunið veitti þeim til þess að „skipta upp stórum, mikilvægum fyrirtækjum og fjölga með þeim hætti keppinautum á mörkuðum“. Þetta kemur fram í skýrslu þess um dagvörumarkaðinn. Hagar, stærsta samstæðan á dagvöru- markaði, lenti í fangi Arion banka á árinu 2009. Bankinn seldi 10-11 verslanakeðjuna, sem er með 3-4% markaðshlutdeild, út úr Högum en að öðru leyti er samstæðan sú sama og var fyrir hrun. Heildarmarkaðshlutdeild Haga er um 53% samkvæmt skýrslunni. SE telur að slík uppskipting hefði stuðlað að aukinni sam- keppni og þannig leitt til meiri hagsældar til lengri tíma litið. Það er einnig mat eftirlitsins að það hefði falið í sér meiri ávinning fyrir bankana „heldur en skammtímaviðhorf um hærra söluandvirði stærri einingar“. Í skýrslunni segir að færa megi rök fyrir því að ofangreint eigi við um Haga og ýmis önnur fyrirtæki á öðrum mörkuðum en að taka beri fram að sala verslana 10-11 út úr Högum á árinu 2011 hafi verið til bóta. Þó séu ekki vísbendingar uppi um að salan hafi í grundvallaratriðum breytt stöðu Haga á markaðinum. Bankarnir taka skammtímagróða fram yfir langtímahagsæld STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.