Fréttablaðið - 27.01.2012, Page 24
KYNNING − AUGLÝSINGHáskólar FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 20122
Háskólanám verður sífellt fjölbreyttara og banda-rískir háskólar virðast
teygja sig sérstaklega langt til að
vekja athygli og áhuga nemenda.
Á námsskrám þeirra má finna
hin furðulegustu námskeið. Sæ-
berfemínismi, Hlynsýróp, Böllur-
inn, Á að gefa Marx annað tæki-
færi?, Hinsegin tónlistarfræði og
Evrópskir nornagaldrar eru allt
nöfn á kúrsum sem finna má á
námsskrám háskóla víðs vegar
um Bandaríkin. Enn forvitnilegri
eru þó námskeið eins og Listin að
ganga og Star Trek og heimspekin
sem einnig er þar að finna.
Listin að ganga nefnist nám-
skeið sem Ken Keffer, prófess-
or við Center College í Danville,
hleypti af stokkunum og nýtur
töluverðra vinsælda meðal há-
skólastúdenta. Á námskeið-
inu einbeitir Keffer sér að því að
kanna hvernig ganga hætti nán-
ast alveg að vera viðurkennd leið
til að komast ferða sinna með til-
komu bílsins og annarra hrað-
virkari farartækja.
Til að bæta úr þeirri vöntun
kennir hann göngu sem miðast
við að sýna fram á tengsl göngu við
listaverk og fegurð náttúrunnar.
Heimspeki og Star Trek er nám-
skeið sem kennt er við háskólann í
Georgetown og þar keppast menn
við að bera saman þekktar heim-
spekikenningar fortíðarinnar og
hvernig þær speglast í þemum
Star Trek-þáttanna með sérstakri
áherslu á tímaflakk og ýmis önnur
fyrirbæri sem enginn veit hvort
eiga sér stoð í raunveruleikanum
eða ekki. Á einu námskeiðanna
í Kvennafræðideild háskólans í
Wisconsin eru sápuóperur við-
fangsefnið með sérstakri áherslu
á að skoða hvernig þær móta þá
sem á þær horfa og breyta bæði
fjölskyldu- og félagslífi þeirra.
Svona mætti lengi telja og ætti
því að vera óhætt að fullyrða að
nánast hvert einasta mannsbarn
ætti að geta fundið eitthvað sem
vekur áhuga þess í námsskrám
háskólanna.
Heimspeki Star Trek
og Listin að ganga
Á námsskrám bandarískra háskóla kennir ýmissa undarlegra grasa og virðast lítil
takmörk fyrir hugkvæmni skólanna í baráttunni um athygli og umsóknir nemenda.
Dr. Spock í Star Trek var víst mikill heimspekingur samkvæmt námskeiði sem kennt er
við háskólann í Georgetown.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000
Umsjónarmaður auglýsinga: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is s. 512 5462 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
Á námskeiðinu Lífsviðhorf – Lífsstíll – Lífsgæði (Wellbeing) í Opna
háskólanum í HR fá þátttakendur færi á að víkka sjóndeildarhringinn og
setja sér markmið. Þeir læra líka að njóta augnabliksins og efla persónu-
legan árangur með því að taka eftir hvaða þættir gefa lífinu gildi.
Námskeiðið fer af stað í fjórða sinn 7. mars. Salóme Guðmundsdóttir
forstöðumaður rekur vinsældir námsins til þess að þátttakendur fái að
taka frá þrjár klukkustundir vikulega til að líta inn á við, fá innblástur og
styrkja sig. „Við gefum okkur yfirleitt ekki tíma til þess í dagsins amstri.
Þetta snýst um að finna gullna meðalveginn og samræma þá þætti
sem togast á í lífi okkar daglega: fjölskyldan, vinnan, vinirnir, tómstundir
o.fl. Svo eiga leiðbeinendurnir stóran þátt í vinsældunum en við höfum
fengið til liðs við okkur sérfræðinga með víðtæka reynslu og þekkingu
á hverju sviði. Rjómann af námskeiðinu tel ég vera að í lokin erum við
hvött til að hugleiða hvernig við getum haft áhrif og látið gott af okkur
leiða.“ Sjá www.opnihaskolinn.is.
LÍFSVIÐHORF LÍFSSTÍLL LÍFSGÆÐI
Aukin þekking - fjárfesting til framtíðar
Háskóli Íslands býður upp á úrval námskeiða
í viðskiptafræði með vinnu.
Nánari upplýsingar á www.bsv.hi.is
Námskeið kennd í febrúar - mars
- Inngangur að fjárhagsbókhaldi
- Rekstrarhagfræði II
- Fjármál II
- Ársreikningagerð A
- Markaðsáætlanagerð
- Verkefnastjórnun
Námskeið kennd í mars - maí
- Markaðsfærsla þjónustu
- Fjármál I
- Tölfræði B
- Fjármálamarkaðir
- Stefnumótun fyrirtækja
MEISTARANÁM
Í VIÐSKIPTAFRÆÐI
Alþjóðaviðskipti
OBTM
Organisational Behaviour and Talent Management
Fjármál fyrirtækja
Fjárfestingarstjórnun
Reikningshald og endurskoðun
Stjórnunarreikningsskil og viðskiptafærni
MBA
Kynntu þér námið á www.ru.is/vd/framhaldsnam