Fréttablaðið - 27.01.2012, Page 27
KYNNING − AUGLÝSING Háskólar27. JANÚAR 2012 FÖSTUDAGUR 5
Háskóli Íslands er elsti háskóli lands-ins, og fagnaði aldarafmæli sínu í fyrra. Héðan hafa brautskráðst
um 40 þúsund nemendur, sérfræðingar og
stjórnendur, sem hafa tekið virkan þátt á
öllum sviðum íslensks samfélags,“ segir Jón
Örn Guðbjartsson,
sviðsstjóri mark-
aðs- og samskipta-
sviðs Háskóla Ís-
lands.
„Þegar þú hefur
nám við Háskóla
Í s l a nd s v er ð u r
þú ekki einungis
nemandi í nýjum
skóla, þú verð-
ur hluti af f jöl-
breyttu, alþjóðlegu
og lifandi samfé-
lagi. Í háskólanum
er öf lugt félagslíf
þar sem allir geta
f undið eit t hvað
við sitt hæfi. Leik-
hús, kórastarf og
dans er meðal þess
sem boðið er upp á
ásamt störfum fyrir nemendafélög og Stúd-
entaráð,“ segir Jón Örn.
Jón Örn segir að við Háskóla Íslands starfi
stór hópur vel menntaðra og þjálfaðra kenn-
ara sem margir hafi stundað bæði nám og
rannsóknir við virta erlenda háskóla. „Al-
þjóðleg tengsl kennara eru því mikil og sterk
og margir þeirra eru í fremstu röð í sínum
fræðum í alþjóðlegu vísindasamfélagi.“
Fjölbreyttir námsmöguleikar í HÍ
Háskóli Íslands býður upp á gríðarlega fjölbreytt nám. Við skólann eru fimm fræðasvið, 25 deildir og námsleiðirnar skipta hundruðum. Háskóli
Íslands er eini háskólinn í landinu sem býður upp á nám á öllum fræðasviðum og á öllum námsstigum. Hann hefur útskrifað um 40 þúsund nema.
HÓPURINN ER FRÁBÆR OG SAMHELDINN
Helga Kristín Ólafsdóttir, BS-nemi í stærðfræði
Hvers vegna valdirðu Háskóla Íslands og þína námsleið?
„Ég hafði áhuga á stærðfræði og hún er ekki kennd í öðrum
háskólum hér á landi.“
Hvað stendur upp úr í náminu og skólanum?
„Hópurinn sem ég er að læra með. Hann er frábær og samheldinn.“
Hvaða hlutverk hefur Háskóli Íslands gagnvart íslensku samfélagi?
„Hann er mjög mikilvægur upp á hvatningu fyrir fólk til þess að
sækjast eftir meiri menntun og það skiptir máli að fólk geti valið úr
ólíkum leiðum til að mennta sig.“
HÁSKÓLINN VARÐVEITIR MENNINGU LANDSINS
Kristján Gauti Karlsson, BA-nemi í íslensku og fjölmiðlafræði
Hvers vegna valdirðu Háskóla Íslands og þína námsleið?
„Ég hef áhuga á íslensku og langaði að prófa að taka fjölmiðlafræði
með henni. Háskóli Íslands bauð upp á hvort tveggja.“
Hvað stendur upp úr í náminu og skólanum?
„Það er mikill munur að koma úr framhaldsskóla yfir í háskóla í fag
þar sem allir sem eru í tíma með þér eru þar af því að þeir hafa
áhuga á viðkomandi fagi. Þeir eru hér til þess að læra og kennarar
hafa yfirleitt mjög gaman af því sem þeir eru að miðla. Það er líka
gaman að djamma með háskólanemum.“
Hvaða hlutverk hefur Háskóli Íslands gagnvart íslensku samfélagi?
„Það er meðal annars að varðveita menningu landsins og svo þarf að mennta fólk sem vill
mennta sig. Skólinn á að kenna þeim sem vilja læra. “
SKIPULAG NÁMSINS ER MJÖG FÍNT
Bergþóra Smáradóttir, BS-nemi í umhverfis- og byggingar-
verkfræði
Hvers vegna valdirðu Háskóla Íslands og þína námsleið?
„Frænka mín mælti með verkfræðinámi og mér fannst þetta áhuga-
verðasta grein verkfræðinnar. Ég valdi Háskóla Íslands vegna þess að
mér fannst það hagstæðara.“
Hvað stendur upp úr í náminu og skólanum?
„Það sem tengist mannvirkjum finnst mér mjög spennandi . Skipulag
námsins er mjög fínt og hentar mér mjög vel.“
Hvaða hlutverk hefur Háskóli Íslands gagnvart íslensku samfélagi?
„Mér finnst mikilvægt að háskólinn tengir það sem við erum að læra við það sem gerist í samfé-
laginu, t.d. góða og slæma hönnun. Fræðin eru því tengd við framkvæmdina á hagnýtan hátt.“
HÍ GEGNIR MIKILVÆGU HLUTVERKI VIÐ MENNTUN ÞJÓÐARINNAR
Alberta Gullveig Guðbjartsdóttir, BA-nemi í félagsráðgjöf
Hvers vegna valdirðu Háskóla Íslands og þína námsleið?
„Ég hafði skoðað og prófað mig áfram með hvað mér líkaði og mér
líkaði best við félagsráðgjöf.“
Hvað stendur upp úr í náminu og skólanum?
„Fyrirkomulag námsins hentar mér vel. Ég hafði kynnst sams konar
fyrirkomulagi í menntaskóla og er mjög sátt við það.“
Hvaða hlutverk hefur Háskóli Íslands gagnvart íslensku samfélagi?
„Hann hefur mikilvægu hlutverki að gegna við menntun þjóðarinnar.
Svo er ákveðin háskólamenning sem er gaman og gott að kynnast.“
Á MENNTAVÍSINDASVIÐI ÞEKKJAST ALLIR MEÐ NAFNI
Hjalti Enok Pálsson, BA-nemi í tómstunda- og félagsmálafræði
Hvers vegna valdirðu Háskóla Íslands og þína námsleið?
„Ég var í félagsfræði og fannst það svolítið þurrt og ákvað að finna
eitthvað líflegra með henni og valdi tómstunda- og félagsmálafræði.
Reynslan af henni hefur verið mjög góð.
Hvað stendur upp úr í náminu og skólanum?
„Hér á menntavísindasviði þekkjast allir með nafni og kennarar þekkja
nemendur sína og það er mjög heimilisleg stemning.“
Hvaða hlutverk hefur Háskóli Íslands gagnvart íslensku samfélagi?
„Hann skiptir máli til þess að byggja upp almennilegt fólk. Hann stuðlar líka að þekkingarleit og
því að fólk fái að mennta sig.“
HÁSKÓLINN FÆRIR SAMFÉLAGINU ÞEKKINGU
Hróðmar Jónsson, MS-nemi í lyfjafræði
Hvers vegna valdirðu Háskóla Íslands og þína námsleið?
„Ég valdi Háskóla Íslands vegna þess að lyfjafræðin var ekki í boði
annars staðar. Ég valdi lyfjafræði því mér fannst hún spennandi því hún
sameinar líffræði og efnafræði.“
Hvað stendur upp úr í náminu og skólanum?
„Reynsla mín af háskólanum hefur verið góð. Það er skemmtilegt hvað
lyfjafræðideildin er lítil þannig að maður kynnist bæði kennurum og
nemendum vel. Reynslan er það góð að ég ákvað að vera áfram í Há-
skóla Íslands í meistaranámi.“
Hvaða hlutverk hefur Háskóli Íslands gagnvart íslensku samfélagi?
„Hann færir samfélaginu rannsóknir og þekkingu. Eins má benda á að ef álitamál koma upp í
samfélaginu þá ætti að vera hægt að leita til háskólans sem óháðs aðila.“
SPURT OG SVARAÐ
„Þegar þú hefur nám við Háskóla Íslands verður þú ekki einungis nemandi í nýjum skóla, þú verður hluti af fjölbreyttu, alþjóðlegu og lifandi samfélagi,” segir Jón Örn.
Jón Örn Guðbjartsson.