Fréttablaðið - 27.01.2012, Side 42
14 • LÍFIÐ 27. JANÚAR 2012
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Draumurinn var
að verða arkitekt og hanna stór-
ar byggingar. Ég er alltaf jafn heill-
uð af arkitektúr og elska að skoða
byggingar og kynna mér fjölbreytt-
an stíl víðs vegar um heiminn.
Hvernig lá leið þín í skartgripina?
Allt frá barnæsku hef ég verið mjög
listræn; teiknað, málað og leirað.
Ég hafði reyndar sístan áhuga á
skartgripagerð en þar af leiðandi
skoraði ég á sjálfa mig að kynna
mér gullsmíði betur eftir að hafa
farið á kvöldnámskeið í skartgripa-
gerð á mínum yngri árum. Leiðin lá
því í gullsmíðanám til Svíþjóðar og
þá varð ekki aftur snúið – þetta var
mín framtíð. Nú hefur svo draum-
urinn sem vaknaði á námsárunum,
um að vera með mitt eigið fyrirtæki
undir mínu nafni orðið að veruleika,
fyrirtækið er mér sem barnið mitt
sem ég nýt að fylgjast með vaxa
og dafna á hverjum degi.
Hvað veitir þér innblástur þegar
þú ert að hanna? Ég fæ minn
helsta innblástur úr umhverfinu og
náttúrunni en hvort tveggja spilar
mjög stórt hlutverk í minni hönn-
un. Einnig hafa fallegar byggingar
og hin ýmsu form sem verða á vegi
mínum áhrif á mig. Svo skiptir það
mig miklu máli að fylgja tískunni í
hönnun skartgripa.
Hvaða hráefni notarðu? Aðalhrá-
efnið sem ég nota er sterling silfur
925, með hvítagullshúð og zirkon-
steinum. Einnig er ég alveg heill-
uð af resin sem ég nota i Isola Coll-
ection með Swarowski-steinum.
Nú er það leðrið sem er mín áskor-
un og er það ferlega skemmtilegt
hráefni.
Lendirðu aldrei í hugmyndaskorti?
Nei, ekki enn sem komið er og ég
vona að ég lendi ekki í því. Ég er
full af hugmyndum sem ég næ ekki
að koma i verk vegna anna.
Hvar fást skartgripirnir þínir?
Skartgripirnir eru seldir í um fjög-
ur hundruð verslunum víðs vegar
í Skandinavíu, á netinu og hjá
hinum ýmsu flugfélögum sem
og skemmtiferðaskipum og nú á
næstu dögum bætast við nokkrar
verslanir í Póllandi. Næsti markað-
ur sem við erum að einbeita okkur
að er svo Þýskaland, sem er bæði
stór og spennandi markaður.
Hannar þú sérstaklega fyrir
Ísland? Já, ég geri það. Ísland
e r m jög
sérstakt í
mínum huga,
þar af leiðandi höfum við gert sér-
stakar skartgripalínur eingöngu
fyrir Ísland, svo hef ég tekið mest
seldu skartgripina þar og sett þá
í sölu á hinum mörkuðunum. Ís-
land er í mínum huga oft prufa –
ef íslenskar konur falla fyrir skart-
inu, gengur þetta yfirleitt mjög vel
i hinum löndunum. SJJ gerir línur
fyrir Blue lagoon, Flóra Island og
skartgripaverslanir Leonard.
Er gott að búa í Danmörku? Dan-
mörk er eins og önnur lönd, og
hefur sína kosti og galla. Mér
líður voða vel hér í Kaupmanna-
höfn. Þetta er stór en samt mjög
lítil borg. Mér leið strax eins og
ég hefði alltaf átt heima hér. Ég
er orðin frekar dönsk á mörgum
sviðum, enda búin að hafa aðset-
ur hér í næstum tólf ár og svo er ég
í sambúð með Dana. En það er allt-
af stutt í Íslendinginn í mér.
Hvernig gengur að vinna með
Dönum? Mér finnst mjög gott að
vinna með Dönum. Þeir eru mjög
nákvæm-
ir í starfi
og ég he f
mjög gaman
af þeim. Ég hef
þó frá byrjun haft
íslenska stúlku
mér við hægri
hönd, sem er
alveg ómetan-
legt.
Saknarðu Íslands? Ísland er
sérstakt land og það er ekki annað
hægt en að sakna þess. Náttúran
er svo stórbrotin, fjöllin svo fal-
leg og orkan sem maður fær við að
koma til Íslands er með eindæm-
um. Svo er það auðvitað fjölskyld-
an og vinirnir sem ég sé allt of lítið
af vegna anna.
Hvað er fram undan? Það er mjög
margt spennnandi fram undan hjá
SJJ, kynningar á nýjum skartgripa-
línum fyrir vor/sumar 2012 og
mörg ferðalög. Á næstu vikum
er til dæmis á dagskrá að heim-
sækja Noreg, Pólland, Þýskaland
og Ítalíu. Það er
a ldre i logn-
mo l l a hé r
hjá okkur
og enginn
dagur eins.
SIF JAKOBSDÓTTIR
ALDUR: 35
HJÚSKAPARSTAÐA: Sambúð með Søren
Dahl.
BÖRN: Engin
MENNTUN: Gullsmiður/hönnuður.
HANNAR SÉRSTAKLEGA
FYRIR ÍSLENSKAR KONUR
Sif Jakobsdóttir, gullsmiður og hönnuður hefur átt mikilli velgengi að fagna hér-
lendis sem erlendis en skartgripir hennar fást á um fjögur hundruð sölustöðum
í Skandínavíu. Hún herjar nú á Evrópumarkað og viðurkennir að íslenskar konur
leggi línurnar með smekkvísi sinni.
Ísland er í
mínum huga
oft prufa –
ef íslensk-
ar konur falla
fyrir skartinu,
gengur þetta
yfirleitt mjög
vel í hinum
löndunum.