Fréttablaðið - 27.01.2012, Síða 46
KYNNING − AUGLÝSINGHáskólar FÖSTUDAGUR 27. JANÚAR 20128
Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykja-vík býður upp á tveggja ára (120 ECTS-eininga) framhaldsnám til MSc-gráðu í
tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræði. Her-
wig Lejsek var í hópi þeirra sem skráðu sig í
meistaranámið við skólann þegar það bauðst
í fyrsta sinn 2003 og útskrifaðist tveimur árum
síðar. Hann segist hafa góða reynslu af því.
„Ég kom hingað sem skiptinemi frá háskól-
anum í Vín í Austurríki eftir að hafa velt vand-
lega fyrir mér framhaldsnámi í öðru landi.
Háskólinn í Reykjavík á Íslandi var einn fárra
samstarfsháskóla hans ásamt því að kenna á
ensku en góð kynni mín af íslenskum skipti-
nemum í Vín urðu þó til þess að hann varð
loks fyrir valinu,“ rifjar Herwig upp og segir
það hafa verið mikil viðbrigði fyrir sig að hefja
nám við íslenskan háskóla. „HR var mjög lítill
í samanburði við háskólann í Vínarborg. Áður
hafði ég setið námskeið með allt að 2.000 nem-
endum en í HR voru þeir í mesta lagi 30 talsins
og þar af leiðandi fékk ég miklu meiri athygli
sem var auðvitað alveg frábært.“
Fleira var ólíkt að mati Herwigs en mestu
munaði þó um námið sem kom honum
skemmtilega á óvart. „Í Austurríki var meiri
áhersla lögð á stærðfræði og eftir á að hyggja
má segja að þar hafi ég lagt stund á tölvun-
arverkfræði. Við HR fékk ég að forrita miklu
meira og stunda rannsóknarvinnu sem ekki
er öllum aðgengileg innan þess valdapíramída
sem þrífst úti. Námið hér var því hagnýtara.“
Herwig bætir við að meistaranám í tölvun-
arfræði og hugbúnaðarverkfræði við HR hafi
auk þess verið góður grundvöllur fyrir frum-
kvöðlastarf. Námið feli í sér tækifæri til að fá
nýjar hugmyndir og þróa yfir í hátæknilausnir
sem veiti forskot á alþjóðlegum vettvangi. Það
þekkir hann af eigin raun.
„Þegar ég var í meistaranáminu þróuðum
við Friðrik Heiðar Ásmundsson, samnem-
andi minn, sjálfvirka leitarvél sem getur borið
kennsl á mynd- og vídeóefni á tölvum og að-
stoðað við að uppræta ólöglegt efni. Þannig
varð til hugmynd sem var loks lögð til grund-
vallar fyrirtæki sem við stofnuðum ásamt
fleirum undir merkjum Videntifier Technolo-
gies í lok 2007. Síðan þá höfum við átt í sam-
starfi við fjölda aðila, íslenska og erlenda og
þar á meðal lögregluna sem hefur nýtt útgáfu
af hugbúnaðinum til að finna ólögmætt efni í
tölvum sem hald hefur verið lagt á,“ segir Her-
wig um námið sem lagði þannig grunn að hag-
nýtri vöru og skapaði þeim félögum einstakt
atvinnutækifæri með alþjóðleg tengsl.
Þannig að námið hefur nýst þér og ykkur
vel? „Klárlega, það opnar ýmsar dyr,“ segir
Herwig, sem hefur nú hafið doktorsnám við
HR.
Námið veitir forskot á
alþjóðlegum vettvangi
Meistaranám í tölvunarfræði og hugbúnaðarverkfræði við HR opnar nemendum ýmsar dyr, að mati Herwigs Lejsek.
Hann er á meðal þeirra fyrstu sem útskrifuðust úr náminu og segir það hafa komið að góðum notum í atvinnulífinu.
Ársæll Þór Jóhannsson, Herwig Lejsek og Friðrik Heiðar Ásmundsson, hjá Videntifier Technologies, en þeir hafa allir þrír
lokið meistaranámi í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík. MYND/STEFÁN
EYKUR SAMKEPPNIS
HÆFNI
Yngvi Björnsson er dósent í
tölvunarfræði og forstöðumaður
Gervigreindarsetursins við Há-
skólann í Reykjavík. Hann segir
meistaragráðu
í tölvunarfræði
vera nemendum
til framdráttar.
„Tölvunarfræði er
alþjóðlegt nám
sem nýtist fólki
í atvinnuleit um
allan heim. Er-
lendis er hefð fyrir að fólk bæti við
meistaranáminu og þess vegna
ætti fólk að íhuga þennan kost
til að vera samkeppnishæfara.
Hérlendis hefur hins vegar verið
algengara að fólk fresti meistara-
námi vegna mikillar eftirspurnar
eftir tölvunarfræðingum með
grunnmenntun. Með hliðsjón af
umbrotum sem eru að eiga sér
stað í frumkvöðla- og sprota-
málum um þessar mundir skiptir
hins vegar máli að vera tæknilega
frambærilegur og það geta menn
orðið með meistaragráðu að
vopni.“ Þá segir Yngvi hugbúnað-
arverkfræði auka færni nemenda
í gerð stórra og áreiðanlegra
hugbúnaðarkerfa. „Það á bæði við
um verkefnastjórnun og hvernig
maður villuleitar búnað, með það
fyrir augum að búa til öruggari
tölvukerfi. Það er eitthvað sem
við Íslendingar þurfum að læra
aðeins betur. Öll fyrirtæki, stór og
smá, hefðu gagn af því að starfs-
menn þeirra væru betur lærðir í
þessum fræðum.“
Yngvi Björnsson.
„EF ÞÚ VILT SJÁ HEIMINN
BREYTAST, VERÐUR ÞÚ AÐ VERA
FYRIRMYND BREYTINGANNA.“
Mahatma Gandhi
OPNUM FYRIR UMSÓKNIR 15. FEBRÚAR
ORGANISATIONAL BEHAVIOUR
AND TALENT MANAGEMENT
Námið er 90 ECTS einingar
Hægt er að bæta við 30 ECTS eininga
rannsóknarverkefni og ljúka þar með MSc gráðu
Hentar þeim sem vilja stunda nám með vinnu
Kennsla fer fram á ensku
Kynntu þér námið á www.en.ru.is/obtm
MSC Í
ALÞJÓÐAVIÐSKIPTUM
Námið er 120 ECTS einingar og lýkur með
MSc gráðu
Kennararnir eru þekktir á sínum fræðasviðum
og virtir á alþjóðlegum vettvangi
Nemendum gefst kostur á skiptinámi við
háskóla víða um heim
Kennsla fer fram á ensku
Kynntu þér námið á www.en.ru.is/ib