Fréttablaðið - 27.01.2012, Blaðsíða 54
27. janúar 2012 FÖSTUDAGUR22
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
timamot@frettabladid.is
Merkisatburðir
98 Trajanus verður keisari Rómar við lát Nerva.
1606 Réttarhöld yfir samsærismönnum í Púðursamsærinu á
Englandi hefjast.
1880 Thomas Alva Edison sækir um einkaleyfi fyrir raflampa.
1888 National Geographic Society stofnað í Washington-borg.
1891 Verzlunarmannafélag Reykjavíkur stofnað.
1907 Bríet Bjarnhéðinsdóttir stofnar Kvenréttindafélag
Íslands.
1940 Þjóðargrafreiturinn á Þingvöllum vígður við útför Einars
Benediktssonar skálds.
„Við reynum að hafa úrvalið sem fjöl-
breyttast og velja myndir á breið-
um skala sem höfða til sem flestra
áhorfenda,“ segir Karl Codard, fram-
kvæmdastjóri Alliance Française í
Reykjavík sem í samvinnu við Sendi-
ráð Frakklands á Íslandi og Græna
ljósið stendur fyrir franskri kvik-
myndahátíð sem hefst í dag. Hátíðin
er nú haldin í tólfta sinn og stendur til
9. febrúar í Háskólabíói. Síðan verð-
ur haldið norður í land og myndirnar
sýndar í Borgarbíói á Akureyri dagana
17. til 20. febrúar.
Í ár verða tíu myndir sýndar á hátíð-
inni, átta frá Frakklandi, ein frá Kan-
ada og ein frá Tsjad í Afríku. „Það
sem er sérstakt við hátíðina í ár er
að við leggjum áherslu á myndir sem
konur leikstýra,“ segir Karl. „Fjórar
af þessum tíu myndum eru í leikstjórn
kvenna. Ástæðan er sú að við gerðum
okkur grein fyrir því að konur hafa
blásið nýju lífi í franska kvikmynda-
gerð á undanförnum árum. Hlutfall-
ið milli karl- og kvenleikstjóra er ekki
enn þá orðið jafnt, en hlutur kvenna á
þessari hátíð er þó mun stærri en áður
hefur verið.“
Frönsk kvikmyndahátíð hefur fest
sig í sessi sem einn stærsti kvik-
myndaviðburður ársins á Íslandi og
árlega sækja um 10.000 manns hátíð-
ina. Í ár má búast við að kvikmyndin
Listamaðurinn eftir Michel Hazana-
vicius veki mesta athygli, en hún hefur
óvænt slegið hressilega í gegn og er
tilnefnd til tíu Óskarsverðlauna, meðal
annars sem besta mynd ársins 2011.
Önnur mynd sem vakið hefur mikla
athygli er Stríðsyfirlýsing í leikstjórn
Valérie Donzelli sem öllum að óvör-
um sló í gegn á kvikmyndahátíðinni
í Cannes síðastliðið vor og var valin
besta mynd ársins 2011 í Frakklandi.
Allar nánari upplýsingar um aðrar
myndir á hátíðinni og sýningartíma
þeirra má sjá á heimasíðu Alliance
Française, www.af.is og á midi.is.
Þetta er þriðja árið sem hátíðin
verður einnig haldin á Akureyri og
segir Karl það lengi hafa verið á óska-
listanum að sinna landsbyggðinni
betur. „Það er mikilvægt að einangra
ekki starfsemina við Reykjavík,“ segir
hann.
„Við reynum að ná til sem flestra
landsmanna og samstarfið við Borgar-
bíó á Akureyri er einn liðurinn í því.“
fridrikab@frettabladid.is
FRÖNSK KVIKMYNDAHÁTÍÐ HEFST Í DAG: TÓLFTA ÁRIÐ Í RÖÐ
ÁHERSLA Á MYNDIR SEM
LEIKSTÝRT ER AF KONUM
TIL Í SLAGINN Karl Codard framkvæmdastjóri og Rannveig Sigurgeirsdóttir, starfsmaður Alliance française, bera hitann og þungann af vali mynda
á frönsku kvikmyndahátíðina. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Þennan dag árið 1984 hlaut tónlistarmaðurinn
Michael Jackson, sem margir hafa kallað konung
poppsins, 2. gráðu brunasár á höfði við upptökur á
sjónvarpsauglýsingu fyrir gosdrykkinn Pepsi Cola.
Jackson og nokkur af systkinum hans héldu
plat-tónleika frammi fyrir fullu húsi af fólki í
tónleikahöllinni Shrine Auditorium í Los Angeles
fyrir auglýsinguna. Starfsmenn sem sáu um flug-
eldasýningu gerðu mistök með þeim afleiðingum
að það kviknaði í hári popparans, sem þurfti að
gangast undir aðgerð vegna meiðsla á höfði. Stuttu
síðar gekkst Jackson undir þriðju lýtaaðgerð sína á
nefi.
Málið var útkljáð utan dómstóla og borgaði
Pepsi tónlistarmanninum andvirði um 185 milljóna
króna, sem runnu til Brotman-læknamiðstöðvar-
innar í Kaliforníuríki. Í miðstöðinni er nú starfrækt
sérstök brunadeild sem kennd er við Jackson.
ÞETTA GERÐIST: 27. JANÚAR 1984
Michael Jackson slasast á höfði
WOLFGANG AMADEUS MOZART, tónskáld, fæddist þennan dag árið 1756.
„Ég kæri mig kollóttan um hrós fólks og svívirðingar. Ég fylgi einfaldlega
tilfinningum mínum.“
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir,
afi, bróðir og mágur,
Erlingur Aðalsteinsson
Þórunnarstræti 93,
varð bráðkvaddur 23. janúar sl. Útförin fer fram frá
Akureyrarkirkju mánudaginn 30. janúar kl. 13.30.
Lára María Ellingsen
Óttar Gautur Erlingsson Margrét Helgadóttir
Rakel María og Elisabeth Eiríka Óttarsdætur
Ólöf Hörn Erlingsdóttir Sigurður Hólm Sæmundsson
Tumi Snær, Katla Snædís og Auður Gná Sigurðarbörn
Margrét Aðalsteinsdóttir
Gylfi Aðalsteinsson Nanna K. Christiansen
Eiginmaður minn, faðir okkar, afi og langafi,
Georges Rolland
andaðist í Fellering, Frakklandi, þann 17. janúar sl.
Hans verður minnst í messunni í kvöld kl. 18.00
í dómkirkju Krists konungs í Landakoti.
Solange Rolland – Théry
Séra Jakob Rolland
Gabriel Rolland Gladys Ramos Jacome
Christophe Rolland
Valérie Diémé Dominique Diémé
Veronica Correa
Jacques Diémé
Erik Diémé
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát og útför elskulegs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Sigurgísla Sigurðssonar
húsgagna- og innanhússarkitekt,
Gullsmára 9, Kópavogi.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki
Heimahjúkrunar Kópavogs fyrir góða umhyggju.
Guðmundur Vikar Einarsson Guðrún Garðars
Hjördís Sigurgísladóttir Dennis Davíð Jóhannesson
Hilmar Sigurgíslason Ásgerður Atladóttir
Sjöfn Sigurgísladóttir Stefán Jökull Sveinsson
barnabörn og barnabarnabörn
Fyrstu tónleikar hljómsveitarinnar A
Band on Stage árið 2012 verða á Café
Rosenberg í kvöld klukkan 22. Bandið
lætur þó ekki þar við sitja heldur endur-
tekur leikinn á sama stað annað kvöld á
sama tíma.
A Band on Stage er skipuð þeim Söru
Blandon söngkonu, Lofti S. Loftssyni sem
leikur á kontrabassa, Ármanni Guðmunds-
syni gítar- og banjóleikara og Guðrúnu
Sóleyju Sigurðardóttur sem gerir sér lítið
fyrir og leikur á fiðlu, harmóniku og gítar
auk þess að syngja.
Á tónleikunum verða flutt lög úr ýmsum
áttum og einnig mun hljómsveitin flytja
frumsamið efni.
Rétt er að taka fram að aðgangseyrir er
1.000 krónur og enginn posi verður í miða-
sölunni.
A Band on Stage á Café
Rosenberg tvö kvöld í röð
Á SVIÐ Hljómsveitin A Band on Stage heldur tvenna
tónleika um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN