Fréttablaðið - 27.01.2012, Síða 58
27. janúar 2012 FÖSTUDAGUR26 26
menning@frettabladid.is
Myrkir músíkdagar hófu göngu
sína í gær. Hátíðin er umfangs-
meiri í ár en nokkru sinni fyrr
að sögn Péturs Jónassonar, fram-
kvæmdastjóra hátíðarinnar. Helg-
ast það einkum af því að nú eru
allir tónleikarnir í Hörpu sem auð-
veldar það að hafa dagskrána þétt-
skipaða. „Í fyrra þurftum við alltaf
að pakka öllu niður og fara svo á
næsta stað, sú er ekki raunin núna.“
Myrkir músíkdagar hafa fyrir
löngu unnið sér sess sem einn
helsti vettvangur samtímatónlist-
ar á Íslandi og nú sem endranær
verða mörg verk frumflutt. Fern-
ir tónleikar voru haldnir í gær og
í dag verður dagskráin þéttskipuð.
Sex tónleikar verða haldnir en
dagskrá dagsins hefst á tónsmið-
stofu Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Hið þekkta danska tónskáld Hans
Abrahamsen leiðbeinir þrem-
ur ungum íslenskum tónskáldum
Guðmundi Steini Gunnarssyni,
Gunnari Karel Mássyni og Krist-
jáni Guðjónssyni í verkum þeirra
sem valin voru sérstaklega í tilefni
vinnustofunnar. Ilan Volkov hljóm-
sveitarstjóri verður með hljóm-
sveitina alla til taks og búast má
því við afar áhugaverðum morgni
fyrir hin ungu tónskáld sem og
aðra viðstadda, en öllum er frjáls
aðgangur að viðburðinum. Yfirlit
yfir tónleika dagsins er að finna
í viðburðadálki Fréttablaðsins á
næstu síðu.
Myrkum músíkdögum
vex fiskur um hrygg
DUO HARPWERK Eru á meðal listamanna sem halda tónleika á tónlistarhátíðinni
Myrkum músíkdögum í dag.
Sýningin Kjólar og kors-
elett, sem verður opnuð í
Þjóðminjasafninu á morg-
un, sýnir svo ekki verður
um villst að íslenskar konur
voru í takti við það sem
gerðist í París, London og
New York á árunum 1940 til
1970.
„Ég fyllist stolti af íslenskum
konum þegar ég geng hérna um á
milli gínanna. Stolti yfir því að sjá
hvað þær gerðu á erfiðum tímum
og hvað þeim tókst vel upp. Við
nútímakonur getum lært margt af
þeim,“ segir Steinunn Sigurðar-
dóttir fatahönnuður. Hún er konan
að baki sýningarinnar Kjólar og
korselett sem verður opnuð í Boga-
sal Þjóðminjasafnsins á morgun.
Á sýningunni má sjá módelkjóla,
sem saumaðir voru eftir pöntun
fyrir íslenskar konur á árunum
1940 til 1970.
Kjólarnir eru ýmist látlausir og
einfaldir, eða tilkomumiklir og
glæsilegir, en allir listaverk út af
fyrir sig. Á sýningunni má jafn-
framt sjá ýmsa fylgihluti, undir-
föt, skó, hanska og hatta.
Steinunn hefur notið verkefnis-
ins til hins ýtrasta. Hún er þess
fullviss að allar íslenskar konur
geti fundið sína tískufyrirmynd á
meðal þeirra kvenna sem sagt er
frá á sýningunni. „Í gegnum þetta
ferli hef ég fundið mitt „fashion
icon“. Þegar ég sá kjólana frá þess-
ari konu hugsaði ég: „Vá, hvað hún
er elegant! Og við þekkjum hana
ekki einu sinni,“ segir Steinunn,
með hrifningu í rómi, og segir að
umrædd kona sé nú þegar orðin
henni innblástur fyrir eigin hönn-
un. Hún gefur ekki upp hver þessi
smekklega kona er, fyrr en sýn-
ingin hefur verið opnuð á morgun.
Steinunn lítur svo á að íslensk-
um konum hafi láðst að horfa til
baka á þessar glæsilegu konur for-
tíðarinnar, til að finna sínar tísku-
fyrirmyndir. „Þessar konur voru
mjög elegant. Ég er viss um að
margir eigi eftir að verða hissa að
sjá það. Á þessum árum áttu konur
kannski bara eina kápu, en það var
fín kápa sem þær hugsuðu mjög
vel um. Hér er til dæmis til sýnis
einstaklega falleg dragt, sem er
elegant, eldrauð með miklum smá-
atriðum. Hún er saumuð af garð-
yrkjubónda í Hveragerði. Þess-
ar konur fylgdust með tískunni
erlendis. Svo vönduðu þær sig við
verkin og gáfu sér tíma.“
Samhliða sýningunni verður
gefinn út 70 síðna bæklingur, með
tískuljósmyndum sem aldrei hafa
verið birtar áður. Myndirnar sem
prýða hann, og veggi safnsins,
voru á meðal þeirra gersema sem
Steinunn dró fram í dagsljósið,
þegar hún fór í gegnum geymslur
Þjóðminjasafnsins fyrir sýn-
inguna. Nokkrir kjólanna koma
úr einkaeign. Steinunn valdi flík-
urnar af mikilli kostgæfni, ásamt
Ágústu Kristófersdóttur, fagstjóra
sýninga í Þjóðminjasafninu.
„Sumir þessara kjóla eru í
algjörum hágæðaflokki og þá sér-
staklega þeir eldri. Ég reyndi líka
að velja kjóla sem skipta máli.
Suma þeirra valdi ég vegna tækni-
legra atriða, svo það sést kannski
ekki um leið hvað gerir þá svona
sérstaka. Allar saumakonur munu
hins vegar skilja um leið af hverju
ég valdi þá.“
Sýningin mun standa frá morg-
undeginum, 28. janúar, fram til 28.
ágúst 2012. holmfridur@frettabladid.is
TÍSKUFYRIRMYNDIR ÚR FORTÍÐINNI
FALLEGIR OG FJÖLBREYTTIR Steinunn Sigurðardóttir, fata- og sýningahönnuður, og Ágústa Kristófersdóttir, fagstjóri sýninga í Þjóðminjasafninu, standa hér við litla svarta
kjólinn, sem allar konur vita að nauðsynlegt er að eiga í skápnum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
MIÐSTÖÐ MUNNLEGRAR sögu býður til málþings í Þjóðarbókhlöðu
laugardaginn 28. janúar kl 13.30 til 17 undir yfirskriftinni Miðlun minninganna.
Meðal fyrirlesara eru Guðni Th. Jóhannesson, Þórunn Erlu- Valdimarsdóttir og
Kristinn Schram. Málþingið er öllum opið og aðgangur ókeypis.
Í gegnum þetta ferli
hef ég fundið mitt
„fashion icon“. Þegar ég sá
kjólana frá þessari konu
hugsaði ég: „Vá, hvað hún er
elegant!
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR
FATAHÖNNUÐUR