Fréttablaðið - 08.02.2012, Qupperneq 2
8. febrúar 2012 MIÐVIKUDAGUR2
SAMGÖNGUR Hættulegasti vegur
landsins er leiðin milli Neskaup-
staðar og Stöðvarfjarðar sem
meðal annars liggur í gegnum Odd-
skarð. Þetta kemur fram í rann-
sókn sem birtist í Læknablaðinu
nýverið.
Það voru þeir Þóroddur Bjarna-
son félagsfræðingur og Sveinn
Arnarson félagsfræðinemi sem
framkvæmdu rannsóknina. Niður-
stöðurnar eru athyglisverðar, ekki
síst vegna þess að Reykjanesbraut-
in á milli Hafnarfjarðar og Reykja-
nesbæjar er ein öruggasta leiðin á
Íslandi. Fræðimennirnir reiknuðu
út að miðað við milljón ekna kíló-
metra væru fæst slys á Reykjanes-
brautinni, en aftur á móti kemur
fram að flest slys verða þar. Mun-
urinn er hins vegar sá að miðað
við umferðina er vegurinn nokkuð
öruggur.
Tímabilið sem var skoðað var
frá 2007 til 2010. Fram kemur að
hættulegasti vegarkaflinn utan
þéttbýlis er leiðin milli Neskaup-
staðar og Stöðvarfjarðar um Odds-
skarð og Fáskrúðsfjarðargöng. Í
öðru sæti var vegurinn frá Hellis-
sandi að Stykkishólmi en vegur-
inn frá Þingeyri til Súðavíkur um
Gemlufallsheiði og Vestfjarða-
göng í þriðja sæti. Í fjórða sæti var
kaflinn frá Seyðisfirði til Reyðar-
fjarðar um Fjarðarheiði og Fagra-
dal. Vegurinn milli Jökulsárlóns og
Skaftafells er sá öruggasti á land-
inu, miðað við sömu forsendur.
Þannig segir í greininni að sé
litið á umferðaröryggi út frá for-
sendum lýðheilsu er brýnast að
draga úr fjölda slysa á Reykjanes-
braut, Suðurlandsvegi allt að Hvols-
velli og Vesturlandsvegi norður
yfir heiðar til Akureyrar, og helstu
vegum á Mið-Austurlandi.
- vg, shá
Tvisvar höfum við
flúið á gistiheimili til
að fá svefnfrið
SERGIY OKHREMCHUK
Í SUÐURGÖTU 15.
Eygló, var kerfið kannski alveg
sjóðbullandi ruglað bara?
„Það voru margir sjóðbullandi rugl-
aðir á árunum fyrir hrun.“
Eygló Harðardóttir, alþingismaður Fram-
sóknarflokksins, vill að Alþingi skipi
rannsóknarnefnd til að skoða starfsemi
lífeyrissjóða hérlendis árin 1997 til 2011.
VIÐ FÁSKRÚÐSFJARÐARGÖNG Stóraukið
umferðaröryggi fékkst með opnun
Fáskrúðsfjarðarganga. Þrátt fyrir það er
leiðin milli Stöðvarfjarðar og Neskaup-
staðar hættulegri en flestar.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Leiðin milli Stöðvarfjarðar og Neskaupstaðar er hættulegasti vegkaflinn á Íslandi:
Reykjanesbrautin nú ein öruggasta leiðin
SVEITARFÉLÖG Starfshópur allra
sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu segir að með því að efla
samstarf þeirra megi bæta þjón-
ustu við innflytjendur. Verkefni
hópsins var að kanna kosti þess
að endurvekja samstarf um inn-
flytjendur.
Lagt er til samstarfs um
fræðslu og þjálfun, samvinnu
vegna túlkaþjónustu og að komið
verði á fót sérfræðiteymi með
aðkomu ríkisins í tilraunaskyni
til tveggja ára. „Það er sýn hóps-
ins að með þessum aðgerðum
megi bæta þjónustu við innflytj-
endur,“ segir starfshópurinn. - gar
Starfshópur sveitarfélaga:
Samvinna um
innflytjendur
Á LEIÐ Í SKÓLA Lögreglan brýnir fyrir
ökumönnum að sýna aðgát í grennd
við skóla.
LÖGREGLUMÁL Ekið var á tvö gang-
andi börn í gær, en þau voru bæði
á leið í skóla.
Slysin urðu í Garðabæ og Hafn-
arfirði en börnin, tíu ára stúlka
og tólf ára drengur, slösuðust
ekki alvarlega.
Lögreglan brýnir fyrir öku-
mönnum að fara varlega, ekki
síst í nágrenni skóla. Gangandi
vegfarendur þurfa líka að sýna
aðgát og vera með endurskins-
merki til að gera sig sýnilegri. Þá
mega ökumenn eiga von á því að
lögreglan verði sýnilegri í eftir-
liti á næstu dögum en vant er.
- þeb
Slösuðust ekki alvarlega:
Keyrt á tvö
gangandi börn
LÖGREGLUMÁL Stúlka leitaði sér
aðhlynningar á slysadeild í
hádeginu í gær eftir að hópur
stúlkna réðst á hana í Fjölbrauta-
skólanum við Ármúla.
Í tilkynningu frá lögreglu
segir að árásin hafi verið nokkuð
harkaleg og samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins brotnuðu
meðal annars gleraugu stúlk-
unnar. Lögregla veit hverjir ger-
endurnir eru og hyggst stúlkan
leggja fram formlega kæru á
hendur þeim.
Barnaverndaryfirvöldum var
gert viðvart um málið. - sh
Hópur stelpna réðst á eina:
Brotin gleraugu
eftir hópárás
FÓLK „Það er búið að vera alveg ógeðslega kalt eða
gusåkalt eins og Svíarnir segja alltaf,“ segir Hall-
bera Guðný Gísladóttir, landsliðskona í fótbolta sem
nýverið gerðist atvinnumaður með sænska liðinu
Piteå í Svíþjóð. Gríðarlegur kuldi hefur verið í Evr-
ópu undanfarna daga og þar á meðal í Piteå sem er í
norðurhluta Svíþjóðar.
„Við æfum sem betur fer inni en við fórum um
helgina í bæinn Storforsa og ætluðum að fara á
gönguskíði. En þar sem mælirinn sýndi 39 gráðu
frost á laugardeginum þurftum við að halda okkur
innandyra. Daginn eftir var aðeins hlýrra eða 30
stiga frost. Þá fórum við í göngutúr og ég var í föður-
landi, þrennum buxum, tveimur flíspeysum, dún-
úlpu, lopasokkum og í öllum græjum en samt var ég
að frjósa,“ segir Hallbera hlæjandi.
„Mér var samt aðallega kalt í andlitinu og eftir
korters göngu úti byrjuðu augun eiginlega að lím-
ast saman því að augnhárin voru komin með svona
ískrap.“
Hallbera er nýkomin til Piteå en hefur ekki náð að
skoða bæinn sem skyldi vegna kuldans.
„Ég fer ekkert mikið út í þessum kulda, rétt hleyp
út í súpermarkaðinn til þess að kaupa í matinn en það
sem er samt gott við þetta veður er að oftast er alveg
logn og sól, bara dáldið mikið kaldara en maður á
að venjast,“ segir Hallbera sem bíður eftir sendingu
sem á eftir að koma að góðum notum.
„Á morgun fer ég á pósthúsið að sækja lopapeysu
sem mamma var að senda mér í póstinum,“ segir
Hallbera Guðný en um 20 stiga frost var í Piteå í
gær. - kh
Hallbera Guðný Gísladóttir, landsliðskona í fótbolta, kynntist Vetri konungi í Piteå:
Augnlokin frusu saman í kuldanum
HALLBERA Í PITTEÅ Frostið í Svíþjóð fór niður í 39 stig á
Celsíus um helgina og þá frusu augnlokin á Hallberu næstum
því saman. MYND/ÚR EINKASAFNI
40 konur á smábátum
Landssamband smábátaeigenda
hefur fengið þær upplýsingar frá
Siglingastofnun að alls voru 1.423
sjómenn skráðir á smábáta í fyrra
og var meðalaldur þeirra 43 ár, en
af þeim voru 40 konur. Flestir eru á
aldursbilinu 40-49 ára 321 eða 23%,
en 79% voru eldri en 20 ára og yngri
en 60 ára.
SJÁVARÚTVEGUR
FJÖLBRAUTASKÓLINN Í ÁRMÚLA Lög-
reglan veit hvaða stúlkur voru að verki.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
UMHVERFISMÁL „Þetta er alveg
hrikalegt þegar maður er með lítið
barn og getur ekki verið með það
heima,“ segir Sergiy Okhremchuk,
íbúðareigandi í Suðurgötu 15, sem
fast er við Tjarnarbíó þaðan sem
berst svo mikill hávaði að heil-
brigðisreglugerðir bresta.
Sergiy segir að eftir að breyt-
ingar voru gerðar á Tjarnarbíói
og það tekið aftur í notkun haust-
ið 2010 hafi hávaðinn þaðan keyrt
um þverbak. Virðist sem sú ein-
angrun sem fyrir var hafi horfið
í framkvæmdunum. Fjórar íbúðir
eru í Suðurgötu
15, tvær eru í
einkaeigu og
tvær á Hjálp-
ræðisherinn.
„ Þ et t a er
farið að taka
á taugarnar,“
segir Sergiy
sem á þriggja
ára son með
konu si n n i .
„Tvisvar höfum við flúið með
barnið á gistiheimili til að fá
svefnfrið. Það var ekki hægt að
vera þarna, sérstaklega þegar
voru Airwaves-tónleikar. Það var
eins og jarðskjálfti. Ljósin í loft-
inu og ísskápurinn titraði.“
Fyrir hönd eigendanna í Suð-
urgötu 15 hefur Sergiy leitað til
ýmissa í borgarkerfinu til að fá
lausn á málinu. Í minnisblaði frá
fyrirtækinu Verkís um hugsan-
legar endurbætur á hljóðeinangr-
un Tjarnarbíós kemur fram að
ýmsar aðgerðir sem hafi verið
reyndar hafi ekki skilað tilætluð-
um árangri. Aðalvandinn er lág-
tíðnihljóð frá bassahátalara.
Meðal annars hafi hátalarinn
verið látinn hvíla á púða og hengd-
ur í „fjaðrandi upphengi“ en án
árangurs.
Verkís leggur því til að vegg-
irnir milli Suðurgötu 15 og Tjarn-
arbíós verði skornir í sundur, nýir
veggir steyptir og hljóðeinangr-
un sett á milli. Þetta kosti um 20
milljónir króna. Aðrir valkostir
séu að banna rafmagnaða tónlist í
Tjarnarbíói eða leggja af íbúðirn-
ar í Suðurgötu og nota húsið undir
skrifstofur. Rekstrargrundvöllur-
inn sé horfinn með skorðum sem
settar hafi verið við starfsem-
inni í bíóinu. Borgarráð frestaði
afgreiðslu málsins á síðasta fundi.
Sergiy hefur ekki trú á þeim
aðgerðum sem lagðar eru til.
Miðað við núverandi stöðu sé
varla mögulegt að selja íbúðirn-
ar nema með talsverðum afföll-
um enda séu þær nánast óíbúðar-
hæfar. Það megi þó skoða sölu ef
borgin vilji leysa íbúðirnar til sín
á sanngjörnu verði.
Það er hópur sjálfstæðra leik-
hópa sem rekur Tjarnarbíó með
samningi við Reykjavíkurborg.
Friðrík Friðriksson, sem situr í
stjórn Tjarnarbíós, segir endur-
bæturnar á húsinu og aðstöðuna
hafa verið eins og draum sem hafi
ræst. Nú sé draumurinn að snúast
upp í andhverfu sína því húsið nýt-
ist ekki eins og til stóð. „Okkur
langar ekki til að skila inn lykl-
inum heldur langar okkur til að
leysa vandann. Þetta er hins vegar
mjög, mjög erfitt,“ segir Friðrik.
gar@frettabladid.is
SPURNING DAGSINS
Í TJARNARBÍÓI Hljóðeinangrunin er svo léleg að íbúar í Suðurgötu 15 haldast varla
við þegar rokktónleikar eru í Tjarnarbíói. Þungarokkshljómsveitin Skálmöld kom fram
í húsinu í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FRIÐRIK
FRIÐRIKSSON
Hávaði úr Tjarnarbíói
hrakti fólk að heiman
Hljóðleki er svo mikill frá Tjarnarbíói að það stenst ekki heilbrigðiskröfur. Íbúi
í næsta húsi segir ástandið hrikalegt. Hátalarar voru settir á púða en allt kom
fyrir ekki. Grundvöllur rekstrarins er horfinn með skorðum við starfseminni.
Lesa skal vandlega leiðbeiningar á umbúðum og fylgiseðli.
Nicotinell lyfjatyggigúmmí inniheldur 2 mg eða 4 mg nikótín (nikótínpólacrillín). Nicotinell lyfjatyggigúmmí er notað til að draga úr nikótínþörf og
fráhvarfseinkennum nikótíns hjá einstaklingum sem eru háðir nikótíni. Þannig getur það auðveldað reykingafólki sem vill hætta að reykja að hætta
eða að draga úr reykingum. Ekki má nota fleiri en 25 stk. 2 mg lyfjatyggigúmmí eða meira en 15 stk. 4 mg lyfjatyggigúmmí á sólarhring. Ef þú ert
með ofnæmi fyrir nikótíni eða einhverju öðrum innihaldsefnum eða reykir ekki má ekki nota Nicotinell lyfjatyggigúmmí. Ráðfærðu þig við lækninn
eða lyfjafræðing ef þú hefur nýlega fengið hjartabilun eða hjartastopp - ert með hjartasjúkdóma, of háan blóðþrýsting, sykursýki, ofvirkan
skjaldkirtil, ofvirkar nýrnahettur, alvarlega skerta nýrna- og/eða lifrarstarfsemi eða magasár. Ef þú ert barnshafandi eða með barn á brjósti máttu
einungis nota lyfið í samráði við lækni. Lyfið er ekki ætlað börnum yngri en 18 ára nema í samráði við lækni. Geymið þar sem börn hvorki ná til né
sjá. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhraun 12a, 210 Garðabæ.
20%
afslátturGildir einungis í verslunum Lyfja & heilsu